Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 18
H elena Aðalsteinsdóttir kom fyrst til Damaskus, höfuðborgar Sýrlands, sumarið 2009 en móðir hennar, Solveig Sveinbjörnsdóttir, starfaði á þeim tíma þar á vegum Flóttamannastofn- unar Sameinuðu þjóðanna. Henni leist vel á borgina. „Mér leið strax vel í Damaskus og heillaðist af menningunni. Þá eignaðist ég vini þetta sumar sem ég er enn í sambandi við,“ segir Helena. Í þessari ferð fór hún einnig yf- ir til Jórdaníu. Strax við heimkomuna fór Helena að leggja drög að næstu ferð á arabaslóðir. „Mig lang- aði að taka vinkonu mína með og ferðast um Sýrland og fleiri lönd og kynnast þeim betur.“ Ásgerður Birna Björnsdóttir var til í tuskið og eftir að hafa lokið stúdentsprófi vorið 2010 unnu þær í hálft ár til að safna fyrir ferðinni. Lagt var í’ann í febrúar 2011. Söknuðu strax Sýrlands „Við byrjuðum í Tyrklandi en héldum þaðan yfir til Sýrlands. Þarna voru mótmæli hafin í Egyptalandi og spennustigið hærra í Sýrlandi en það hafði verið tveimur árum áður,“ segir Helena. Stöllurnar drifu sig því yfir til Beirút í Líb- anon. „Við vorum ekki fyrr komnar þangað en við fórum að sakna Sýrlands,“ segir Hel- ena hlæjandi. „Birna féll alveg kylliflöt fyrir landi og þjóð eins og ég.“ Ekki var því um annað að ræða en snúa þangað aftur. Í þeirri lotu ferðuðust þær vítt og breitt um landið, meðal annars til Aleppo, Hama og Homs. Þeim var hvarvetna vel tek- ið. „Sýrlendingar eru afskaplega opið og vin- gjarnlegt fólk. Mjög spenntir að kynnast ferðamönnum. Það helgast örugglega að hluta af því að túrismi er ekki mikill í landinu. And- rúmsloftið þarna var svo afslappað og þægi- legt því hrikalega sorglegt að hugsa til þess hvernig allt er núna,“ segir Helena. Stöllurnar komu varla svo í verslun að ekki væri boðið upp á te og heimboðin voru ófá. „Fólk sem við hittum á förnum vegi vildi endilega bjóða okkur í heimsókn. Við fengum því einstakt tækifæri til að kynnast Sýrlend- ingum í sínu nánasta umhverfi,“ segir Helena. Dansglatt fólk Hún segir Sýrlendinga afskaplega dansglatt fólk. Þeim Birnu var víða kennt að dansa. „Eftir kvöldmat kemur fólk saman á heim- ilum og dansar hringdans í stað þess að horfa á sjónvarpið. Það er mjög skemmtilegur sið- ur.“ Hún segir íburð ekki mikinn á heimilum en fólk uni glatt við sitt. Enskukunnátta er ekki mikil í landinu en fólk fer, að sögn Helenu, létt með að gera sig skiljanlegt. Á táknmáli ef allt annað þrýtur. Sjálf getur hún bjargað sér á arabísku. Sýrlendingar versla aðallega á mörkuðum, Souq, og þar er líf í tuskunum allan liðlangan daginn. Í Aleppo, sem er, að sögn Helenu, smækkuð útgáfa af Damaskus, er elsta Souq í heimi. Mikil upplifun mun vera að koma þangað. Spurð hvort foreldrar hennar hafi ekki haft áhyggjur af henni á þessum framandi slóðum skellir Helena upp úr. „Nei, nei. Ég á mjög umburðarlynda foreldra sem treysta mér. Þess utan hefur mamma ferðast mjög víða í sínu starfi fyrir hjálparstofnanir, þar sem hún vinnur aðallega með börnum í Asíu og Afríku. Hún hefur hvatt mig til að ferðast.“ Farsímar stúlknanna virkuðu ekki í ferð- inni. Þess í stað hringdu þær heim tvisvar í viku úr almenningssíma til að láta vita af sér. Góðir ferðafélagar Þegar á hana er gengið viðurkennir Helena að fyrir hafi komið að hún hafi orðið smeyk í ferðinni. Það geti þó komið fyrir hvar sem er í heiminum. Alveg eins í Evrópu og annars staðar. Í um tvær vikur ferðuðust tveir þýskir piltar, Tom og Leif, með þeim en þeim kynnt- ust stúlkurnar í lest á leið til Sýrlands frá Tyrklandi. Þeir voru góðir ferðafélagar. „Það var sérstakt upplifa það að minna var horft á okkur meðan strákarnir voru til staðar og það var dálítill léttir,“ segir hún. Helena hefur verið í góðu sambandi við þá félaga síðan og Leif kíkt hingað upp á klak- ann í heimsókn. Stöllurnar ferðuðust einnig um Jórdaníu og Líbanon sem Helena segir um margt túrista- vænni lönd. Fleiri ferðamenn komi þangað að ÆVINTÝRAFERÐ UM ARABALÖND Vor í Sýrlandi BLÓÐUG BORGARASTYRJÖLD GEISAR Í SÝRLANDI. HÉR HEIMA FYLGIST HELENA AÐALSTEINSDÓTTIR MYNDLISTARNEMI ÁHYGGJUFULL MEÐ ENDA HEFUR HÚN MIKIÐ DÁLÆTI Á LANDINU OG FÓLKINU SEM ÞAR BÝR. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is *Eftir kvöldmatkemur fólk samaná heimilum og dansar hringdans í stað þess að horfa á sjónvarpið. Það er mjög skemmti- legur siður. Helena og Birna með vinafólki sínu í Sýrlandi. Þær eru í góðu sambandi við fólkið. Þessi litla og litríka hurð var í þröngri götu gamla bæjarins í Damaskus. Ásgerður Birna stendur í gættinni. Brosmildur kúnni á rakarastofu. Kátir strákar sem stöllurnar hittu í gamla bænum í Damaskus. Þessi verslaði með gullfiska á útimarkaði. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2013 Ferðalög og flakk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.