Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Qupperneq 30
Fyrir 4 fullorðna
7-800 g grísalund
salt og pipar
2 stórir laukar
olía til steikingar
smjör
1 dl vatn
1 ½ kjötkraftsteningur (svína eða kjúk-
linga)
4 dl rjómi, sojasósa, dijon-sinnep, mai-
zena-mjöl, sósulitur
Aðferð Skerið lundina í frekar þunnar sneið-
ar og steikið þær á pönnu þar til þær brúnast
aðeins. Kryddið með salti og pipar og setjið til
hliðar.
Mýkið niðursneiddan laukinn í olíu á pönnu
við meðalhita og setjið einnig smásmjör. Bæt-
ið svo vatni og krafti á pönnuna og sjóðið í
nokkrar mínútur. Bætið þá rjómanum út í og
látið malla í svolitla stund við vægan hita og
bragðbætið með smá sojasósu og dijon-
sinnepi. Sirrý setur um eina tsk. af sinnepinu
og smá skvettu af sojasósunni, en allt fer þetta
eftir smekk. Hún þykkir einnig sósuna með
maizena ef henni finnst þurfa og notar sósulit.
Þegar sósan er tilbúin, bætið þá kjötinu út í
og leyfið þessu að sjóða í 5-7 mínútur við
vægan hita. Með þessu finnst Sirrý gott að
bera fram gott salat og t.d. soðið blómkál og
spergilkál.
GRÍSALUND MEÐ
RJÓMALAUKSÓSU
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2013
Matur og drykkir
S
igríður Arnardóttir, eigandi PLUSMINUS OPTIC gler-
augnaverslunar, er sá aðilinn í hjónabandinu sem eldar
mat fyrir fjölskylduna en hún er gift Örvari Hallgríms-
syni sjónfræðingi. „Ég er mjög sátt við það ef ég fæ
frið í eldhúsinu og get einbeitt mér að matseldinni og átt
góða stund með sjálfri mér,“ segir Sirrý eins og hún er jafn-
an kölluð en saman eiga þau hjónin þrjár dætur á aldrinum
fjögurra, átta og tíu ára. „Þær hafa enn sem komið er lítinn
áhuga á eldamennsku nema sú í miðið, Agnes Gígja, sem hef-
ur gaman af því að skera grænmetið en ég reyni að nota
mikið grænmeti í matinn og með matnum. Ég er sjálf alin
upp við að hafa mat á borðum á kvöldin og hef haldið þeirri
reglu og hefur áhugi minn á matseld aukist með árunum.
Örvar skiptir sér ekki mikið af eldamennskunni enda nóg að
gera hjá honum í verslun okkar í Smáralind. En þótt mér
finnist gaman að elda vil ég sjaldnast eyða miklum tíma í það
nema á hátíðarstundum svo ég laðast að einföldum en góðum
réttum eins og þessari grísalund sem er bæði fljótlegt að elda
og ekki svo dýrt fyrir stóra fjölskyldu“.
Morgunblaðið/Rósa Braga
GRÍSALUND ER GÓÐ
Alin upp við að
hafa mat á borðum
ÞAÐ ER NOTALEGT AÐ FÁ FRIÐ Í ELDHÚSINU SEGIR SIGRÍÐUR ARNARDÓTTIR
EN HÚN VILL ÞÓ EKKI EYÐA OF MIKLUM TÍMA ÞAR NEMA Á HÁTÍÐARSTUNDUM.
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
Sigríður fær
gjarnan hjálp frá
dóttur sinni
Agnesi Gígju, við
að skera græn-
meti og annað í
eldhúsinu.