Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Síða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Síða 39
Í síðustu viku talaði ég um fata- stíl Jasmine í nýjustu mynd Woody Allen, Blue Jasmine. Hvernig búningahönnuðurinn hafi náð að fanga fyrrum lífsstíl Jasmine, sem leikin er af Cate Blanchett, með því að klæða hana í alla þá merkjavöru sem ríkum konum finnst eftirsóttar. Í kreðs- um forríkra kvenna er snobbað fyrir allt öðrum merkjum en hjá okkur venjulegu konunum. Eitt hrokafullt dæmi er að forríkar konur myndu aldrei láta sjá sig með Marc Jacobs-tösku … Sannleikurinn er sá að það sem þú getur keypt í massavís í erlend- um stórverslunum þykir ekki sér- staklega spennandi í fyrrnefndum kreðsum. Allar konur sem hafa farið í bandarískar stórverslanir vita um hvað ég er að tala. Alla jafna gætir þú líklega keypt fjórar Marc Jacobs-töskur fyrir eina Prada-tösku, en ég get ekki reikn- að út hvað þú gætir keypt margar Marc Jacobs-töskur fyrir eina Birkin-tösku frá Hermés. Árið 1981 lenti forstjóri Hermés, Jean-Louis Dumas, við hliðina á kyntákninu Jane Birkin í flugvél frá París til Lundúna. Þar kvartaði hún sáran yfir því að hana vantaði smart helgartösku úr leðri sem gæti geymt allar hennar gersemar og kæmi í veg fyrir að hún þyrfti að druslast með tvær töskur. Þremur árum síðar, 1984, kom Birkin-taskan á markað og hefur síðan þá þótt með því fínna sem konur geta eignast. Það er ekkert skrýtið enda er það ekki á færi allra kvenna að eignast slíkan grip. Fyrir þann tíma var Kelly-taskan frá Hermés, sem nefnd var eftir Grace Kelly, ein af eftirsóttustu töskum veraldar og er enn. Vic- toria Beckham á til dæmis eitt stærsta safn af Hermés-töskum sem um getur, bæði með Kelly og Birkin sniði. Ódýrasta Hermés Birk- in-taskan kostar í kringum 900 þúsund krónur. Allar venjulegar konur myndu líklega frekar fara í jógaferð til Taílands og kaupa sér lítinn gamlan Yaris fyrir afganginn ef þær ættu þessa upphæð í lausu. Á sama tíma er það grátlegt að krónan leiki okkur svo grátt að Marc Jacobs-taska hérlendis kosti næstum því jafn mikið og Prada- taska í útlöndum. Það „meikar engan sens“ eins og sagt er … Vinkona mín var einu sinni á lausu og á því tímabili var þekktur „peningamaður“ líka á lausu þann- ig að þau ákváðu að hittast eins og tíðkast hjá einhleypu fólki. Hún var 22 ára, lífsglöð og til í allt og fannst gæinn spennandi. Hún mætti heim til hans í sínu fínasta pússi ef ég þekki hana rétt og þeg- ar þetta atvik var rifjað upp á dög- unum fengum við hláturskast. „Hann benti mér á að kaupa mér nýja handtösku. Ég benti honum á að það væri góður siður að eiga fyr- ir hlutunum. Hann er í dag eigna- laus en ég á loksins aðeins betri handtösku,“ sagði vinkona mín. Ódýrasta Hermés- taskan kostar um 900 þúsund. Kelly-taskan var nefnd í höfuðið á Grace Kelly. Victoria Beck- ham, Nicole Ric- hie og fleiri sjást hér bera djásnið. Forríkar snobba fyrir Hermés Hermés Birkin er sko enginn Marc Jacobs. 6.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16 GYRO fáguð hönnun & þægindi sameinuð í einum stól Skandinavísk hönnun og framleiðsla. Verð frá kr. 152.000 MOSFELLSBAKARÍ Handverksbakarí fyrir sælkera Daglega er bakað bakkelsi sem fá bragðlaukana til að kætast. Hjá okkur er hægt að fá þetta gamla og góða og einnig eitthvað nýtt og spennandi. Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.