Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Side 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Side 48
að skrifa um mig í blöðin þegar ég kom tíu ára gamall með kálfskratta á landbún- aðarsýningu í Reykjavík. Þegar ég fór fyrst á fjall, sautján ára, var Guðlaugur Tryggvi Karlsson með í för en hann var á þeim tíma að gera kvikmynd um Land- mannaafréttinn. Hann var með okkur í þrjú skipti. Eftir það kom Kristinn Bene- diktsson ljósmyndari og myndaði í gríð og erg, síðan RAX. Þannig að maður þekkir ekkert annað, myndataka er partur af fjallferðinni.“ – Hefurðu fengið einhver viðbrögð við bókinni? „Já, töluverð. Vænst þykir mér um um- mæli minnar fyrrverandi, Margrétar Egg- ertsdóttur, sem var viðstödd útgáfuhófið í Hörpu. Sjálfur komst ég ekki, var á fjöll- um. Mikið var um dýrðir og fjölmenni. Þegar hófinu var lokið hringdi Magga, sem er ekki kona margra orða, í mig og sagði: „Þetta snerist dáldið um þig.““ Sé alltaf eitthvað nýtt – En hvað er það við fjöllin, hvers vegna unir þú hag þínum svo vel þar? „Það eru fjárleitirnar. Ég hugsa að ég myndi aldrei nenna að ganga á fjall án þess að vera í fjárleit. Sumir keppa í íþróttum af ýmsu tagi. Ég keppi í smala- mennsku. Það er alltaf nýtt verkefni, ný áskorun. Að smala svona erfitt land, eins og Landmannaafréttinn, við misjafnar að- stæður er að stóru leyti hópvinna. Byggist á því að fólk vinni saman. Stundum þarf maður samt að treysta á sjálfan sig.“ Í landi Köldukinnar í Holtum er álagablettur, Kaldólfsleiði. Bletturinn sker sig úr á túninu, ósleginn enda harðbannað að valda þar raski. Hvers vegna ætli það sé? Á álaga- blettum hvílir helgi, samkvæmt íslenskri þjóðtrú, og ef helgin er rofin verður ein- hver óskundi. Enginn veit fyrir víst hvers vegna helgi hvílir á téðum bletti en Þórð- ur Guðnason fjallmaður hefur heyrt að það sé vegna þess að gamall bóndi sem eitt sinn bjó í Köldukinn, Kaldólfur, hafi verið lagður þar til hinstu hvílu. Í aldarfjórðung hefur Ragnar Axelsson ljósmyndari, RAX, fylgt smalamönnum eft- ir á Landmannaafrétti. Afraksturinn getur nú að líta í bókinni Fjallalandi, þar sem Þórður í Köldukinn er í forgrunni. Í máli jafnt sem myndum. „Ég var fjóra smaladaga á Auðkúluheiði í fyrra og á seinni hluta annars dags fór mér að líða eitthvað undarlega. Þá áttaði ég mig á því að engar myndir höfðu verið teknar af mér í ferðinni. Það vantaði RAX. Ég hef aldrei skilið hvers vegna hann hefur tekið svona margar myndir af mér,“ segir Þórður þegar við erum sestir við eldhúsborðið í Köldukinn. Hans vandamál, ekki mitt – Eitthvað hlýtur RAX að sjá í þér. „Það má vel vera en ég lít frekar á það sem hans vandamál en mitt.“ – Hefur myndatakan einhvern tíma truflað þig? „Nei, ég er ýmsu vanur. Það var byrjað – Drakkstu smalamennskuna í þig með móðurmjólkinni? „Ekki get ég sagt það. Pabbi fór aldrei á fjall, ekki heldur mamma. Þau hafa allt önnur áhugamál en ég. Kúabúskap og skógrækt. Afar mínir höfðu hins vegar báðir gaman af hrossum og gott lag á þeim.“ – Er það alltaf sama tilhlökkunin að fara á fjall? „Já, það er alltaf jafn merkilegt að fara í leitir. Þegar ég fór í fyrsta skipti sagði Haraldur í Hólum, sem var margreyndur fjallmaður, mér að það væri alveg sama hversu oft hann færi á fjall, hann sæi allt- af eitthvað nýtt. Þetta þótti mér á þeirri stundu ótrúlegt en var fljótur að sannfær- ast um að Haraldur hafði á réttu að standa. Ef það er til einhver sannleikur um Landmannaafréttinn þá er þetta hann.“ Fæddur á uppgangstímum Þórður Guðnason fæddist árið 1957 á bænum Þverlæk í Rangárþingi ytra. Elst- ur fimm barna hjónanna Guðna Guð- mundssonar og Margrétar Þórðardóttur sem enn búa á Þverlæk. Búskapinn hafa þau hins vegar eftirlátið bróður Þórðar, Guðmundi Kristni. Hinn bróðir Þórðar, Þröstur, leggur líka stund á búskap í sveitinni. Systurnar tvær, Ásdís og Frið- gerður Helga, sinna öðru. Þegar Þórður segist vera fæddur á Þverlæk meinar hann einmitt það. Hann leit fyrst dagsins ljós heima á bænum. „Arndís á Fosshólum tók á móti mér.“ Margir Sunnlendingar kannast eflaust við hana. Þetta voru miklir uppgangstímar þar um slóðir eftir langvarandi hokur. „Landsveitin er ofboðslegur harðbali frá náttúrunnar hendi. Bændur voru löngum ánægðir ef eitthvað af fénu drapst úr hor á vorin. Þá höfðu þeir ekki notað of mikið hey. Í þá tíð voru bara tvö tryggingarkerfi í þessu landi, hey og fiskur. Afi var þrettán ver- tíðir á togurum til að geta keypt Þverlæk á fjórða áratug síðustu aldar. 1944 vildi hann selja og auglýsti jörðina í útvarpinu. Ekki ein einasta fyrirspurn barst. Ekki þótti eftirsóknarvert að stunda búskap hér,“ segir Þórður. Lífsgæðin jukust með mjólkinni Vatnaskil urðu hins vegar um 1950 þegar Rangæingar byrjuðu að leggja mjólk inn í Mjólkurbú Flóamanna. Eftir það varð mjólkurframleiðsla mjög mikilvægur þáttur í búskapnum og jók lífsgæðin til muna. Ekkert rafmagn var í sveitinni á þessum árum og Þórður minnist þess að hafa handmjólkað kornungur í fjósinu við skím- una frá olíuluktinni. Upp úr 1960 kom raf- magnið og fljótlega eftir það hélt mjalta- vélin innreið sína. Það var mikil bylting. Ekki má heldur vanmeta áhrif öflugri landbúnaðarvéla og tilbúins áburðar. Á fyrri hluta tuttugustu aldar breyttist húskostur líka mjög mikið. „Ég man vel hvað afi var glaður þegar hann gat rifið síðasta torfkofann á Þverlæk sem hann Keppi í smalamennsku ÞÓRÐUR GUÐNASON Í KÖLDUKINN ER FJALLMAÐUR AF GUÐS NÁÐ. Í TÆPA FJÓRA ÁRATUGI HEFUR HANN SMALAÐ LANDMANNAAFRÉTT, VERKEFNI SEM HANN NÁLGAST SEM HVERJA AÐRA KEPPNI. OG NÚ ER HANN ORÐINN AÐALSÖGUHETJA Í BÓK, FJALLALANDI EFTIR RAGNAR AXELSSON. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is 1989. Þórður Guðnason kominn á fjall. Alsæll. 2007. Allra veðra er von á fjalli. Þá reynir á þrautseigju fjallmanna. Viðtal 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2013

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.