Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Side 53
6.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
inni í Reykjavík, RIFF, lýkur
um helgina. Því er um að
gera að bregða sér í bíó að
sjá áhugaverðar leiknar kvikmyndir
eða heimildarmyndir, fjölbreytileik-
inn er mikill og margt gott að sjá.
2
Sýning á nýjum olíu-
málverkum og teikningum
Þorra Hringssonar verð-
ur opnuð í Studio Stafni,
Ingólfsstræti 6, á laugardag klukkan
15. Verkin eru öll frá liðnu sumri,
þegar Þorri dvaldi og starfaði í Haga í
Aðaldal. Vinnur hann út frá umhverf-
inu á næman og persónulegan hátt.
4
Á laugardagskvöld er
Drangsnes staðurinn. Þá
vaknar tónleikaröðin Mölin
úr sumardvala þegar tónlist-
armaðurinn Benni Hemm Hemm
sækir Strandamenn heim og heldur
tónleika á Malarkaffi á Drangsnesi.
5
Í Gerðurbergi verða á
sunnudag kl. 13.15 tónleikar
undir yfirskriftinni „Ekta-
makinn elskulegi“. Hlín Pét-
ursdóttir Behrens sópransöngkona
og Nína Margrét Grímsdóttir pí-
anóleikari leiða áheyrendur þá gegn-
um aldirnar með ástina að vegvísi,
og flytja lög eftir ólík en áhrifamikil
tónskáld, innlend sem erlend.
3
Anna María Bogadóttir
sýningarstjóri ræðir á sunnu-
dag kl. 15 við gesti um hina
áhugaverða sýningu „Vísar“ í
Hafnarborg. Verkin eru eftir Elínu
Hansdóttur, Ilmi Stefánsdóttur, Mar-
cos Zotes og Theresu Himmer.
MÆLT MEÐ
1
Þetta verkefni hefur gerjast lengi hjáokkur,“ segir Guðbjörg Lind Jóns-dóttir myndlistarkona um sýningu
þeirra Hjartar Marteinssonar, rithöfundar
og myndlistarmanns, eiginmanns hennar, í
Listasafni ASÍ. Sýninguna kalla þau
„Umhverfis djúpan fjörð“ og verður hún
opnuð klukkan 15 í dag, laugardag.
Hjónin eiga bæði rætur á Vestfjörðum;
Guðbjörg er uppalin á Ísafirði, Hjörtur
rekur ættir til Stranda og fyrir sex árum
keyptu þau gamalt hús á Þingeyri og
hafa verið að gera það upp, hægt og bít-
andi.
„Við erum því mikið á ferðinni, á þess-
ari löngu leið, og höfum reynt að gera
hana að viðfangsefni, að vera stöðugt að
upplifa og sjá eitthvað nýtt,“ segir Guð-
björg Lind.
„Verkin mín hafa lengi tengst landslagi
og uppruninn fyrir vestan hefur líka ver-
ið uppspretta í verkunum. Hjörtur hefur
haft mikinn áhuga á sögunni og sögnum
sem tengjast örnefnum og ýmsu sér-
kennilegu. Við höfum oft rætt um að
sýna saman og nú er komið að því.“
Þegar spurt er hvernig þeim hjónum
hafi gengið að vinna saman að sýning-
unni segir hún hlæjandi að það hafi verið
stormasamt á köflum. „En við náum allt-
af lendingu – og þetta er líka gefandi.“
Guðbjörg Lind bætir við að verk þeirra
séu afar ólík, eins og tveir heimar.
„Hann er með nóttina og stjörnuhimininn
í Gryfjunni í safninu en ég með birtuna
og landið í málverkum uppi í Ásmund-
arsal. Við mætumst síðan í Arinstofunni
þar sem verkin blandast.
Ákveðið flæði er því um sýninguna og
vonandi tekst okkur að búa til einhvers-
konar ferðalag á henni.“ efi@mbl.is
HJÓNIN GUÐBJÖRG LIND JÓNSDÓTTIR OG HJÖRTUR MARTEINSSON SÝNA Í LISTASAFNI ASÍ
Ferðalagið gert að viðfangsefni
VINNAN AÐ SÝNINGUNNI VAR
STORMASÖM Á KÖFLUM EN HJÓN-
IN NÁÐU ALLTAF LENDINGU.
„Við höfum oft rætt um að sýna saman og nú er komið að því.“ Guðbjörg Lind og Hjörtur.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Blint stefnumót í plötubúð
Spurður hvert hann sæki sér innblástur að
dansverkum sínum segir Strømgren ekkert
launungarmál að tónlistin sé hans helsti inn-
blástur. „Ég fer þannig ekki í rannsókn-
arferðir til Balí eða hangi inni á bókasafni,
heldur safna ég plötum. Í einni Íslandsferð
minni kynntist ég tónlist Hauks Morthens
og hef síðan notað hana mjög mikið í verk-
um mínum erlendis. Það er alltaf jafn magn-
að að sjá hversu djúpt söngur hans snertir
við fólki, en ég hef iðulega séð fólk fella tár
yfir flutningi hans,“ segir Strømgren og tek-
ur fram að sér finnist gaman að nota í verk-
um sínum tónlist sem sárafáir ef nokkrir
þekkja. „Sama er uppi á teningnum núna,
því í Sentimental again, nota ég tónlist sem
rússneski söngvarinn Pjotr Leschenko syng-
ur, en upptökurnar eru frá því fjórða og
fimmta áratug seinustu aldar,“ segir Strøm-
gren og tekur fram að enginn utan Rúss-
lands hafi heyrt Leschenkos getið. „Meira að
segja Rússum finnst ég svolítið skrítinn þeg-
ar kemur að tónlistaráhuga mínum.“
Spurður hvernig hann sjálfur hafi kynnst
tónlist Leschenkos segist Strømgren hafa
farið á blint stefnumót í plötubúð. Þegar
blaðamaður hváir útskýrir Strømgren: „Í dag
kaupa flestir tónlistina sína í gegnum Netið,
en hér áður fyrr fór maður alltaf í plötubúð
og gat þá látið koma sér á óvart. Mér finnst
gaman að kaupa plötur listamanna sem ég
þekki ekki. Það var þannig sem ég kynntist
tónlist Hauks Morthens. Eina ástæða þess
að ég keypti plötuna hans var að mér fannst
myndin á umslaginu skemmtileg, en þar er
Haukur brosandi í fínum jakkafötum,“ segir
Strømgren og tekur fram að hann sé forfall-
inn plötusafnari og hafi safnað í allmörg ár.
Hugmynd sem varð að raungera
„Ég ferðast mikið vinnu minnar vegna og er
forvitinn að eðlisfari. Æti ég hafi ekki lagt
leið mína til Rússlands a.m.k. tuttugu sinn-
um. Ég hef því núorðið sterk tengsl við
Rússland og finnst ég jafnvel vera rúss-
neskur að hluta. Mér fannst því skjóta
skökku við þegar gagnrýnandi Morgunblaðs-
ins sakaði mig um rasisma í garð Rússa í
uppfærslu minni á Ræðismannsskrifstofunni
hjá Leikfélagi Reykjavíkur fyrir nokkrum
árum. Það var alröng greining að mínu
mati.“
Eins og fyrr sagði náði blaðamaður tali af
Strømgren rúmum mánuði fyrir frumsýn-
inguna, en hann var þá í löngu helgarstoppi
og átti ekki von á að koma aftur fyrir frum-
sýningu, sem helgast af því að hann er önn-
um kafinn listamaður. „Ég var búinn að
skipuleggja verkefni vetrarins þegar við
Lára [Stefánsdóttir, listrænn stjórnandi Íd]
hittumst yfir kaffibolla í Þýskalandi. Hún
hafði orð á því að gaman væri að fá mig til
að semja nýtt verk og þar kviknaði hug-
mynd að uppsetningu sem varð hreinlega að
verða að veruleika þó að það væri mikið
púsluspil að koma því í framkvæmd. Sem
betur fer eru dansarar Íd mjög duglegir að
læra sporin af upptökum sem þýðir að þeir
kunna næstum verkið þegar ég mæti á stað-
inn og þá er hægt að vinna með túlkunina
og framsetninguna,“ segir Strømgren sem
nú hefur í nógu af snúast við að undirbúa
fyrstu óperuuppsetningu sína. „Ég er að
fara að leikstýra og semja sviðshreyfingar í
Orfeusi og Evridísi eftir Gluck hjá Norsku
óperunni sem frumsýnd verður 17. október,“
segir Strømgren og tekur fram að hann
bindi enn vonir við að geta mætt á frumsýn-
inga.
Morgunblaðið/Ómar
* „Í einni Íslandsferðminni kynntist égtónlist Hauks Morthens
og hef síðan notað hana
mjög mikið í verkum
mínum erlendis.“