Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Qupperneq 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2013 Menning É g var ráðin til að horfa gagn- rýnum augum á þessa stofnun og vega og meta bæði kosti hennar og galla,“ segir Fríða Björk Ingvarsdóttir sem tók við rektorsstöðu Listaháskóla Íslands 1. ágúst sl. Aðspurð segist hún hafa sótt um starfið þar sem hún sá með því tækifæri til að sameina öll áhugasvið sín. „Ég hef í gegn- um tíðina verið viðriðin svið nánast allra listgreina. Mér hefur líka alltaf fundist gam- an að kljást við heildarmyndina. Síðast en ekki síst finnst mér menningarpólitík skipta gríðarlega miklu máli. Menningarpólitík er sú umræða úr stjórnmálunum sem alltaf stendur eftir. Hún felur í sér svo stórar ákvarðanir sem móta samfélagsmyndina og umhverfið sem við lifum í. Menntun og menningarpólitík snýst um framtíðarhorfur barnanna okkar, hvernig við förum að því að þróast sem samfélag og hvernig við sjáum okkur í samhengi við aðra. Allt eru þetta stórar spurningar sem lúta að mann- legri tilvist og því hvernig við upplifum okk- ur sem einstaklinga í samfélaginu.“ Er eitthvað sem hefur komið þér á óvart í sambandi við LHÍ á þeim tíma sem þú hefur þegar haft til að setja þig inn í nýja starfið? „Nei, í raun og veru ekki enda eru engar beinagrindur í skápum hér. Það sem ég undrast samt er hversu mikið hefur áorkast og hvað hefur verið hægt að gera fyrir lítið fé og með fáum manneskjum. Starfsfólk er mjög einbeitt, fórnar gríðarlega miklu og er tilbúið til þess að gefa allt sitt. Maður er öf- undsverður af því að koma inn í þannig stofnun. En þótt liðsheildin sé sterk og and- inn góður þá er spurning hvernig fólki end- ist þrek við þann aðbúnað sem hér þarf oft að sætta sig við.“ Menntun er fyrirbyggjandi Við lifum enn á niðurskurðartímum eftir hrun. Ertu uggandi yfir framhaldinu? „Já, ég held ég þurfi að vera það eins og allir aðrir sem vinna á sviði æðri menntunar á Íslandi í dag. Framlög til háskólastarfs eru lág ef við berum okkur saman við um- heiminn. Þau eru lág miðað við OECD- löndin, og mjög lág miðað við Norðurlöndin. Það er alveg ljóst að við eyðum miklu minna til háskólastarfs en þeir sem við vilj- um bera okkur saman við. Ég veit ekki hversu lengi við komumst upp með það, því hreyfanleikinn er orðinn svo mikill á milli landa, bæði á fólki og fyrirtækjum. Við þurfum hreinlega að óttast það að missa okkar fólk úr landi ef við getum ekki boðið upp á sömu gæði í menntun hér eins og aðrar þjóðir. Þeim fjármunum sem varið er til menntunar á háskólastigi er mjög vel varið. Menntun er fyrirbyggjandi í öllum skilningi og uppbyggjandi líka.“ Hver er framtíðarsýn þín fyrir LHÍ? „Mín framtíðarsýn varðandi skólann lýtur fyrst og fremst að uppbyggingu hug- myndafræði og rannsókna á fræðasviðinu listum. Þar liggur sérstaða LHÍ og hlut- verk. Listræn sköpun miðar að því að fram- kvæma hið óframkvæmanlega og kortleggja það sem við ekki þekkjum. Framlag sköp- unar til samfélagsins felst í því að vinna á mörkum óvissunnar og vera í framlínu nýrra uppgötvana og mótandi hugmynda- fræðilegra hræringa. Í LHÍ þarf því að móta starfsumhverfi þar sem listgreinarnar vinna saman þvert á allar greinar, jafnt utan skólans sem innan. Húsnæðismálin hafa óneitanlega verið haml- andi í því. Við þurfum líka að skapa farvegi fyrir nánara samstarf við aðra skóla hér innanlands á sviði menningar og mennta og jafnframt við atvinnulífið, sem hefur auðvit- að verið gert upp að ákveðnu marki. Það sama á við um samstarf við stofnanir er- lendis. Að mínu mati er þverfaglega nálg- unin, sem í raun og veru er orðin grunnur að aðferðarfræði 21. aldarinnar, mjög mik- ilvæg. Það er því okkar að þróa ný viðmið í rannsóknum á sviði lista, fræða og fagur- fræði og hefja til vegs í samhengi við þróun á öðrum sviðum.“ Skammtímalausnir eru dýrar Þú nefnir húsnæðismál skólans. Hvaða lausn sérðu í þeim efnum? „Það er mjög brýnt að leysa húsnæð- isvanda skólans sem hefur verið í limbói frá því skólinn var stofnaður fyrir 15 árum. Draumurinn hefur ávallt verið að allar deildir verði sameinaðar undir einu þaki og við gerum ekki ráð fyrir öðru en að hann rætist í nálægri framtíð,“ segir Fríða Björk og nefnir að að áskjósanlegt gæti verið að byggja nýtt húsnæði LHÍ upp smám saman eins og gert var með Háskólann á Akureyri með góðum árangri. „Í millitíðinni þurfum við að finna skammtímalausnir sem duga lengur en misserið og eru þannig að þær hamli ekki starfseminni,“ segir Fríða Björk og bendir á að dýrt sé að reka LHÍ á þremur stöðum eins og gert sé í dag. „Það er dýrt að reka þrjú mötuneyti, þrjú bóka- söfn og starfsfólk á þremur stöðum. Það kostar að minnsta kosti 40 milljónir á ári. Við sem rekum þennan skóla með fjár- framlögum frá ríkinu þurfum að horfa til þessara fjármuna ábyrgum augum. Við gæt- um styrkt sjálfa menntunina mikið ef rekst- urinn á þessum húsum væri ekki svona dýr. Skammtímalausnir eru alltaf mjög fjárfrekar og framtíðarlausnir hljóta að miða að því að nýta betur þann infrastrúktur sem við sem samfélag eigum. Það mætti vera meiri vilji til að hugsa út fyrir kassann. Það er t.d. heilmikið af ónotuðu rými í Hörpu sem LHÍ gæti nýtt, en þá þarf að myndast sam- félagsleg samstaða um það að LHÍ hafi efni á því að nýta sér þetta rými, því hann getur náttúrulega ekki keppt um húsnæði í Hörpu á háu markaðsverði. En er ekki skárra að stofnun eins og LHÍ nýti það rými en að það standi autt?“ Nokkrar staðsetningar hafa verið nefndar í sambandi við framtíðarhúsnæði LHÍ. Hef- ur þú skoðun á því hvar væri vænlegast að byggja skólann til framtíðar? „Í raun er búið að þrengja möguleikana niður í tvo, þannig að valið stendur nú á milli Laugarness og Sölvhólsgötu,“ segir Fríða Björk og bendir á að nefnd á vegum mennta- og menningarmálaráðherra, sem skipuð er fulltrúa frá ráðuneytinu, Reykja- víkurborg og LHÍ, vinni nú að því að kanna hvor möguleikinn sé hagstæðari fyrir skól- ann og ríki og borg, en nefndin átti að skila niðurstöðu nú um mánaðamótin. „Ég mun taka niðurstöðuna mjög alvar- lega. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að það verði allt reiknað inn í þessa jöfnu, s.s. kostnaður við lóðirnar, breytingar á deili- skipulagi, áhrif nærumhverfis og aðgengi að þjónustu auk samlegðaráhrifa við aðrar menningarstofnanir. Skóli á borð við LHÍ hefur auðvitað mikið vægi í borgarlandslag- inu og færir heilmikið með sér. Við ættum líka að hugsa til þess í hvaða infrastrúktúr borgarbúar eru þegar búnir að fjárfesta og hvernig við nýtum hann með sem bestum hætti, hvernig við þéttum þetta net sem við eigum og hvernig skólinn passar inn í það til framtíðar.“ Eins og þú nefndir eru aðeins 15 ár síðan LHÍ var stofnaður. Telur þú að þær fæð- ingarhríðir sem felast í því að breyta hand- verksskóla í háskólastofnun séu að baki? „Nei, þær eru ekki að baki og það er vegna þess að starfið þarf að vera í sífelldri endursköpun. Um leið og maður heldur að fæðingarhríðirnar séu búnar þá fer svona skóli að staðna. Hann þarf stöðugt að vinna á mörkum óvissunnar, því listræn sköpun og rannsókn er kortlagning á uppgötvunum og möguleikum mannlegrar tilvistar. Listin get- ur spurt spurninga sem öðrum dettur kannski ekki í hug að spyrja, m.a. á sviði vísinda,“ segir Fríða Björk og bendir á að ýmsar merkilegar uppgötvanir hafa orðið þegar listamenn vinna í nánu samstarfi við t.d. skammtafræðinga og aðra raunvís- indamenn, sem og tölvunarfræðinga og hönnuði. „Ég trúi því að ef 20. öldin var öld tækn- innar, sem hún svo sannarlega var, þá muni 21. öldin verða öld hinnar skapandi hugs- unar og í þeim skilningi öld listanna. Ég held að samfélag mannanna þurfi á því að halda t.d. bara til að komast út úr þeim umhverfislegu ógöngum sem við erum í. Ef við ætlum að hafa lífvænlegt fyrir börnin okkar og barnabörn þurfum við á þessari skapandi hugsun að halda sem grundvall- arþætti í öllum vinnubrögðum í samfélag- inu.“ „Það er mjög brýnt að leysa húsnæðisvanda skólans sem hefur verið í limbói frá því skólinn var stofnaður,“ segir Fríða Björk Ingvarsdóttir. Morgunblaðið/Kristinn NÝR REKTOR LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS HORFIR GAGNRÝNUM AUGUM Á HLUTINA Vill kljást við heildarmyndina LISTRÆN SKÖPUN MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ FRAMKVÆMA HIÐ ÓFRAMKVÆMANLEGA OG KORTLEGGJA HIÐ ÓÞEKKTA. SÖKUM ÞESSA GEGNIR HÚN, AÐ MATI NÝS HÁSKÓLAREKTORS, LYKILHLUTVERKI Í SAMFÉLAGINU. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is * Ég trúi því að ef 20. öldin var öld tækninnar,sem hún svo sannarlega var, þá muni 21. öldin vera öld hinna skapandi hugsunar og í þeim skilningi öld listanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.