Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 57
6.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Henning Mankell segir að
Höndin sé síðasta bókin sem
hann muni skrifa um Kurt
Wallander. Bókin á sér nokkra
útgáfusögu sem Mankell rekur í
eftirmála bókar.
Wallander hyggst flytja upp í
sveit en þegar hann skoðar
gamalt hús finnur hann í garð-
inum hönd af manneskju. Vit-
anlega rannsakar hann málið.
Þetta er stutt saga, alveg ágæt-
lega spennandi og skrifuð af
miklu öryggi. Aðdáendur Wall-
anders ættu að verða ánægðir.
Norski sakamálahöfundurinn
og nýr handhafi Glerlykilsins,
Jørn Lier Holst, skrifar eft-
irmála og Mankell skrifar grein
um lögreglumanninn vinsæla og
sáluga.
Síðasta
bókin um
Wallander
Bókin Manga með svarta
vanga eftir Ómar Ragnars-
son verður endurútgefin af For-
laginu fyrir jólin. Bókin kom upp-
runalega út 1993 en seldist upp
og hefur verið með öllu ófáanleg.
Í bókinni er fjallað um afar sér-
stæða konu, Margréti Sigurð-
ardóttur, sem lengi var heim-
ilisföst að Hvammi í Langadal í
Húnavatnssýslu. Margrét var
einn af smælingjunum í íslensku
samfélagi og var einkum fræg fyr-
ir hversu ófríð hún var og fyrir
að ganga á miðjum þjóðveginum
í dalnum og láta sig bílaumferð-
ina engu varða. Í bókinni er einn-
ig fjallað um sérkennilegt mannlíf
í Langadal. Ný útgáfa bókarinnar
verður að sögn útgefenda tals-
vert aukin og endurbætt.
Hin vinsæla bók Ómars Ragnarssonar, Manga
með svarta vanga, verður endurútgefin.
BÓK ÓMARS
ENDUR-
ÚTGEFIN
Von er á ýmsum forvitnilegum
erlendum bókum á næstunni. Í
næstu viku kemur út erlendis
áhugaverð ævisaga. Hún heitir I
am Malala eftir Malala You-
safzai og Christina Lamb.
Malala er ein af hinum sönnu
hetjum samtímans en þessi pak-
istanska stúlka var skotin í höf-
uðið af talibönum fyrir að berj-
ast fyrir menntun kvenna. Hún
náði bata og ávarpaði fulltrúa
aðildarríkja Sameinuðu þjóð-
anna á 16 ára afmæli sínu fyrr á
þessu ári. Hún hefur merkilega
sögu að segja.
Seinna í þessum mánuði er
svo von á ævisögu Alex Fergu-
son, hins heimsfræga knatt-
spyrnuþjálfara, en aðdáendur
hans hafa hann nánast í guðatölu
og bregðast iðulega ókvæða við
geri einhver lítið úr afrekum
kappans. Ævisaga Ferguson
nefnist Managing My Life.
Ferguson er kominn á áttræðis-
aldur og hefur örugglega frá
mörgu að segja.
Í bókabúðum hér á landi fylgj-
ast verslunarstjórar og bóksalar
vel með því sem er að gerast er-
lendis og þessar bækur munu
því örugglega rata hingað til
lands mjög fljótlega eftir útgáfu
erlendis.
Malala hélt tilfinningaþrungna ræðu
hjá Sameinuðu þjóðunum á sextán
ára afmælisdegi sínum.
MALALA OG FERGUSON SEGJA SÖGU SÍNA
Ævisaga Alex Ferguson kemur út í
Bretlandi í næstu viku og mun senni-
lega verða metsölubók þar í landi.
Bókaforlagið Uppheimar sýnir
mikinn metnað með útgáfu á
heildarsafni ljóða Tomasar
Tranströmers. Sænska ljóð-
skáldið fékk Nóbelsverðlaunin
árið 2011, ljóð hans hafa verið
þýdd á sextíu tungumál og ýmis
skáld hafa orðið fyrir sterkum
áhrifum af þeim.
Það er Njörður P. Njarðvík
sem þýðir ljóð Tranströmers
og annað skáld, Kjell Espmark,
skrifar eftirmála í þessu heild-
arsafni ljóða Nóbelsskáldsins.
Heildarljóða-
safn Nóbels-
skálds
Nóbelskveð-
skapur og
amma glæpon
NÝJAR BÆKUR
LJÓÐAUNNENDUR FÁ SÆNSKAN
NÓBELSKVEÐSKAP, BÖRNIN FÁ NÝJAN OG
BRÁÐSKEMMTILEGAN VERÐLAUNAHÖFUND
OG KRIMMAUNNENDUR KVEÐJA KURT
WALLANDER. ÞEIR SEM HAFA UNUN AF
AÐ ELDA FÁ SVO BÓK UM KJÚKLINGARÉTTI
EFTIR NÖNNU RÖGNVALDARDÓTTUR.
Amma glæpon er bráðskemmtileg
barnabók eftir David Walliams sem
slegið hefur í gegn í Bretlandi og
víðar. Benna finnst amma sín ekki
mjög skemmtileg og kvíðir því að
dvelja hjá henni. En svo sýnir amma
á sér óvænta hlið sem gjörbreytir
viðhorfi Benna til hennar. Walliams
er einn aðahöfundur sjónvarpsþátt-
anna Little Britain og hefur hlotið
verðlaun fyrir barnabækur sínar.
Barnabók verð-
launahöfundar
Kjúklingaréttir Nönnu er eins og nafnið gefur til kynna ný
matreiðslubók eftir matgæðinginn góðkunna Nönnu Rögna-
valdardóttur. Þarna er að finna fimmtíu fjölbreyttar upp-
skriftir að gómsætum kjúklingaréttum. Hvort sem þið viljið
snæða heilan kjúkling, kjúklingabringu, lundir, læri, leggi eða
vængi þá finnið þið auðveldlega uppskrift við ykkar hæfi í
þessari bók.
Nanna Rögnvaldar
eldar kjúkling
* Ég get lifað í tvo mánuði á góðu hrósi. Mark Twain BÓKSALA 25. SEPT. – 1. OKT.
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Maður sem heitir Ove - kiljaFredrik Backman
2 Heilsubók JóhönnuJóhannaVilhjálmsdóttir
3 Norðurslóðasókn - Ísland ogtækifærin
Heiðar Guðjónsson
4 Höndin - kiljaHenning Mankell
5 Iceland small world - small ed.Sigurgeir Sigurjónsson
6 VettlingaprjónGuðrún S. Magnúsdóttir
7 Stígum framSheryl Sandberg
8 LeðurblakanJo Nesbo
9 InfernoDan Brown
10 Árið sem 2 sekúndur bættust viðtímann
Rachel Joyce
Kiljur
1 Maður sem heitir OveFredrik Backman
2 HöndinHenning Mankell
3 LeðurblakanJo Nesbo
4 InfernoDan Brown
5 Árið sem tvær sekúndur bættustvið tímann
Rachel Joyce
6 Rosie verkefniðGraeme Simsion
7 Minnisbók MayuIsabel Allende
8 Fórnargjöf MóloksAsa Larsson
9 FrelsarinnJo Nesbo
10 Týnda dóttirinShilpi Somaya Gowda
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Miklir menn erum við,
Hrólfur minn.