Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2013
HEIMURINN
BANDARÍKIN
WASHINGTON
Barack Obama
forseti undirritaði
samkomulag
leiðtoga öldunga-
deildar þingsins
um tímabundnar fjárh
framlengin
áramót. Þu
sagði að e
sem valdið t
TAÐ
Bandaríski upp-
ljóstrarinn Edward
Snowden sagði í
wsamtali við ba agblaðið The Ne
ðYork Times a hann hefði ekki flogið me
snein leyn Kong til Rússland
auog fyri hætta á því að þ
ða kínverskraæm skra e
stjó
SÍLE
SANTÍA
verið dæm
yfirlögðu r
kynhneigðan mann
að því búnu hakakro
hans. Í dómsorði segi
um yfirgengilega grim
mannslífi. Refsing ve
LAJAFJÖLL
ST Sextu
ns ðisað nafni, örm
hafa unnið frækil
Eftir að tjald sem
flóði að bráð gr
anuppfer
distbyg
Mannréttindasamtök halda
því fram að ekkert ríki, að
Kína undanskildu, sé eins
duglegt að taka þegna sína af
lífi og Íran. Fyrir minni sakir
og meiri. Að sögn Amnesty
International hafa ríflega
fimm hundruð manns verið
teknir af lífi í landinu á þessu
ári. Flestir þeirra vegna fíkni-
efnasmygls eða vörslu fíkni-
efna. Í byrjun vikunnar
reyndu vinir og vandamenn
dæmds morðingja að trufla
aftöku hans með því að
fleygja handsprengju í átt að
böðlinum. Um þrjátíu
manns lágu sárir eftir.
Hinn dæmdi var
hengdur.
L
æknar og hjúkrunarfólk
á spítala í borginni
Bojnord í Íran leggja
sig nú í líma til að
koma sjúklingi nokkr-
um til heilsu. Það væri svo sem
ekki í frásögur færandi nema fyrir
þær sakir að tilgangurinn er sá að
hægt verði að taka hann af lífi –
aftur.
Maðurinn, sem kallaður er Al-
ireza M í fjölmiðlum, var gripinn
glóðvolgur með eitt kílógramm af
metamfetamíni í fórum sínum fyrr
á þessu ári en við þeim glæp liggur
dauðarefsing í Íran. Alireza M,
sem er 37 ára tveggja barna faðir,
hlaut sinn dóm og átti að taka
hann af lífi fyrir rúmri viku. Snara
var sett um háls hans og Alireza M
látinn hanga eins og lög gera ráð
fyrir í tólf mínútur uns læknir úr-
skurðaði hann látinn.
Að því búnu var hann fluttur í
líkhús, þar sem plasti var vafið ut-
an um „líkið“. Degi síðar vakti það
grunsemdir starfsmanna líkhússins
að móða var á plastinu og var því
flett af. Kom þá í ljós að „hinn
látni“ var með lífsmarki. Hann var
vitaskuld sendur með hraði á spít-
ala þar sem hann er allur að
hjarna við. Þökk sé umönnun
lækna og hjúkrunarfólks.
Mikil gleði greip að vonum um
sig hjá fjölskyldu Alireza M. Í stað
þess að sækja lík til greftrunar í
líkhúsið var henni stefnt þráðbeint
á spítalann. Lazarus var upp ris-
inn. „Dætur hans tvær ráða sér
ekki fyrir kæti,“ sagði fjölskyldu-
meðlimur í samtali við íranska fjöl-
miðla.
Skammgóður vermir
Það gæti þó verið skammgóður
vermir. Eftir stendur að Alireza M
var dæmdur til dauða, en ekki
bara hengingar, og talsmaður
stjórnvalda í Íran lét þegar í stað
hafa eftir sér að dómnum yrði
framfylgt. Alireza M yrði hengdur
um leið og hann hefði heilsu til.
Þungvopnaðir verðir gæta hans
dag og nótt á sjúkrabeðinum.
Þessum áformum hefur verið
harðlega mótmælt, meðal annars af
Amnesty International. „Sú hræði-
lega tilhugsun að maður verði
hengdur öðru sinni, eftir að hafa
gengið í gegnum þá þolraun áður,
undirstrikar grimmd og miskunn-
arleysi dauðarefsingarinnar,“ sagði
Philip Luther, framkvæmdastjóri
svæðisdeildar samtakanna, í yf-
irlýsingu til fjölmiðla.
„Stjórnvöld í Íran eiga þegar í
stað að aflýsa aftöku Alireza
M og stöðva aðrar fyrirhug-
aðar aftökur. Það að ætla að
halda hengingunni til streitu
er til vitnis um skort á
manngæsku og grefur
undan réttarkerfi
landsins,“ sagði hann
ennfremur.
Dagblaðið Jam-e-
Jam upplýsti fyrir
helgi að fjölmargir lesendur hefðu
haft samband til að hvetja til þess
að lífi Alireza M verði þyrmt.
Kæmi þá til kasta ayatollah Ali
Khameneis erkiklerks og forseta
landsins.
Líflína að ofan?
Líflínu var mögulega fleygt til Al-
ireza M fyrir helgi þegar skrifstofa
helsta lögspekings Írans, ayatollah
Lotfollah Safi Golpaygani, sendi
frá sér yfirlýsingu þess efnis að
hann liti svo á að öðru máli gegndi
um örlög Alireza M en annarra
brotamanna. Fram að því höfðu
menn einmitt vísað til lagatúlkunar
Golpayganis þegar þeir héldu því
fram að óhjákvæmilegt væri að
framfylgja dómnum yfir Alireza M.
„Hin almenna túlkun, sem nefnd
hefur verið í þessu sambandi, á
ekki við í þessu umrædda máli.
Ayatollah hefur aðra sýn á það,“
sagði í yfirlýsingu á heimasíðu
Golpayganis. Ekki kom þó fram í
hverju sú sýn væri fólgin.
Fréttaskýrendur benda á, að
tvennskonar glæpir séu refsiverðir
samkvæmt sharía-lögum. Annars
vegar Hodud, þar sem refsingu
verði ekki breytt, og hins vegar
Tazir, þar sem dómarar geti end-
urskoðað refsinguna, ef svo ber
undir. Gera menn því skóna að
brot Alireza M falli undir síðari
skilgreininguna. Þess vegna megi
hugsanlega bjarga honum frá
næstu hengingu. Hvort hann verð-
ur þá náðaður ellegar dæmdur til
fangavistar er svo annað mál.
Í hópi þeirra sem aðhyllast
þessa niðurstöðu er lögmaðurinn
Mohammad Mostafaei en hann hef-
ur varið fjölmarga sakborninga
sem endað hafa í snörunni. Mos-
tafaei bendir þó á að málið sé snú-
ið þar sem það eigi sér engin for-
dæmi. Hengdir menn rísi alla jafna
ekki upp frá dauðum.
Hengdur í
tvígang?
ÍRANSKT RÉTTARKERFI ER Í BOBBA EFTIR AÐ MAÐUR SEM
TEKINN HAFÐI VERIÐ AF LÍFI MEÐ HENGINGU REIS UPP
FRÁ DAUÐUM. HVAÐ Í ÓSKÖPUNUM Á AÐ GERA VIÐ
MANNINN? ÞYRMA HONUM EÐA HENGJA HANN AFTUR.
Ayatollah Ali
Khamenei
YFIR 500 HENGDIR
Á ÞESSU ÁRI
Íranskur böðull gerir klárt fyrir aftöku í Teheran. Stjórn landsins er legið mjög á hálsi fyrir að beita dauðarefsingu
óspart.
EPA
* Fregnir af andláti mínu eru stórlega ýktar.Bandaríski rithöfundurinn Mark Twain. AlþjóðamálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is