Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Skemmtileg nýjung í lesklúbbi á Akureyri er að elda mat upp úr bókum sem hópurinn les »30
E
va María á og rekur kökugalleríið Sætar
Syndir en hún sérhæfir sig í að skreyta
kökur fyrir ýmis tilefni. „Ég fann hvað
það var gaman að geta stundað áhuga-
málið og úr varð að fara bara alla leið og stofna
fyrirtæki í kringum þetta,“ segir Eva María en
hún er viðskiptafræðingur að mennt. „Ég hef að
mestu unnið við fjármál og tengd málefni síðustu
ár en ákvað að breyta aðeins til og opna köku-
gallerí, Sætar Syndir. Ég sé alls ekki eftir þeirri
ákvörðun.“
Lykillinn að því að geta reitt fram glæsilegar
kökur er að hafa áhuga að mati Evu Maríu.
„Orðatiltækið: Æfingin skapar meistarann á mjög
vel við í þessum aðstæðum og mér hefur farið
mikið fram í kökuskreytingum á aðeins einu ári,
hvað þá frá því að þetta allt byrjaði heima í eld-
húsinu fyrir fjórum árum.“ Fyrirtækið sérhæfir
sig í að skreyta kökur út frá ákveðnum þemum,
t.d. áhugamálum fyrir afmæli, fermingar og brúð-
kaup eða litum og leikfangafígúrum fyrir t.d.
skírnarveislur og barnaveislur. „Mér fannst bara
vanta svona persónulegar kökur, enda hefur sú
eftirspurn alveg sýnt sig þar sem það er mikið að
gera,“ segir Eva María.
Spurð um góð ráð fyrir byrjendur í kökugerð
hvetur Eva María fólk til að nýta netið. „Þar er
ógrynni af upplýsingum hvort sem það eru upp-
skriftir, hugmyndir eða leiðbeiningar. Svo er um
að gera að skella sér á kökuskreytingarnámskeið
til að koma sér af stað.“ Hægt er að nálgast upp-
lýsingar um kökugalleríið á www.saetarsyndir.is.
Morgunblaðið/Ómar
ÁHUGINN SKIPTIR MÁLI
Krúttlegar kökur
EVA MARÍA FÓR AÐ BAKA FYRIR ALVÖRU EFTIR AÐ SONUR HENNAR FÆDDIST
FYRIR FJÓRUM ÁRUM. HÚN SKREYTTI AFMÆLISKÖKUR HANS ÚT FRÁ ÁHUGA
HANS HVERJU SINNI OG Í KJÖLFARIÐ FÉKK HÚN BEIÐNIR FRÁ FJÖLSKYLDU OG
VINUM UM AÐ GERA PERSÓNULEGAR KÖKUR FYRIR SVIPUÐ TILEFNI.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Eva María segir að allir ættu að geta skreytt fallegar kökur, lykillinn sé að hafa áhuga og
að æfa sig í því enda skapar æfingin meistarann.
Uppskriftin gefur 24 bollakökur
150 g sykur
150 g púðursykur
125 g smjör
2 egg
260 g hveiti
1 tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
40 g kakó
200 ml mjólk
Aðferð:
Hitið ofninn í 170°. Hrærið sykur og
smjör vel saman þar til blandan verður létt
og ljós. Bætið eggjunum út í, einu í einu, og
hrærið vel. Blandið þurrefnunum saman í
skál og hrærið svo saman við ásamt mjólk-
inni. Setjið deigið í falleg form með mat-
skeið eða sprautupoka og bakið í um 16
mínútur. Hafið í huga að ofnar eru mis-
munandi svo að það er gott ráð að stinga
pinna í miðjuna á kökunum og ef pinninn
kemur hreinn út þá eru kökurnar tilbúnar.
Kremið:
230 g mjúkt smjör
4 dl flórsykur
100 g hvítt súkkulaði
2 tsk. vanilludropar
Aðferð:
Flórsykrinum og smjörinu er blandað
vel saman í nokkrar mínútur. Súkkulaðið
er brætt yfir vatnsbaði og síðan kælt í smá-
stund. Súkkulaðinu og vanillu-extract er
því næst bætt saman við blönduna og
blandað varlega saman en mjög vel í 3-4
mínútur.
Æðislegar
bollakökur
fyrir öll tilefni