Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Blaðsíða 9
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Þ
etta er mjög flott tækifæri og
mjög spennandi að sjá hvað kem-
ur út úr þessu,“ segir fatahönn-
uðurinn Rakel Sölvadóttir sem
nýlega sendi útskriftarlínu sína í
heild til poppstjörnunnar og tískufyrirmynd-
arinnar Lady Gaga.
Eftir útskrift úr Listaháskóla Íslands síð-
astliðið vor var Rakel boðið að taka þátt í
Designer’s Nest sem er keppni milli nýút-
skrifaðra fatahönnuða í Skandinavíu. Keppn-
in er haldin í samfloti við tískuvikuna í Kaup-
mannahöfn og mæta þangað nemar með þrjá
alklæðnaði úr útskriftarlínum sínum. Tísku-
vikan í Kaupmannahöfn er með þeim stærri í
Skandinavíu og er því frábært tækifæri fyrir
nýútskrifaða hönnuði að geta tekið þátt í
keppninni og kynnt sig og línur sínar.
Eftir sýninguna hvarflaði þó að Rakel að
skilja fatnaðinn eftir í Kaupmannahöfn enda
sá hún ekki fyrir sér að línan yrðinotuð í
annað en að taka pláss í fataskápnum.
Stuttu eftir heimkomu hafði þó umsjón-
armaður keppninnar samband við Rakel með
þau skilaboð að Lady Gaga hefði áhuga á lín-
unni og var hún beðin um að senda línuna í
heild til stílista Lady Gaga.
„Lady Gaga er þekkt í tískubransanum
sem ákveðið tískuíkon og er í raun frægust
fyrir fötin sem hún klæðir sig í,“ segir Rakel
sem er að vonum ánægð með tækifærið.
Lady Gaga er ein af brautryðjendum
tískuheimsins og hafa stjörnur á borð við
Karl Lagerfeld fatahönnuður og Marina
Abramovic, einn fremsti gjörningalistamaður
samtímans, hampað stíl hennar og framkomu
sem jafnvel mætti túlka sem nokkurskonar
gjörninga. Lady Gaga hefur vissulega vakið
mikla athygli fyrir fatnaðinn sem hún klæðist
og því mikið hrós fyrir nýútskrifaðan hönnuð
að hún hafi beðið um fatnaðinn.
Lady Gaga er að gefa út geisladisk í byrj-
un nóvember og eru fötin hugsuð í ýmsar
kynningar og viðburði tengda útgáfunni. Rakel Sölvadóttir fatahönnuður, er að vonum ánægð með athyglina sem útskriftarlínan hefur fengið.
VAKTI ATHYGLI Á TÍSKUVIKUNNI Í KAUPMANNAHÖFN
Lady Gaga vildi
alla fatalínuna senda
RAKEL SÖLVADÓTTIR FATAHÖNN-
UÐUR VAR BEÐIN AÐ SENDA
POPPSTJÖRNUNNI LADY GAGA ÚT-
SKRIFTARLÍNU SÍNA Í HEILD EFTIR
AÐ STÍLISTI SÖNGKONUNNAR SÁ
VERK RAKELAR Á TÍSKUVIKUNNI Í
KAUPMANNAHÖFN. LADY GAGA
ER ÞEKKT FYRIR ÁBERANDI STÍL OG
LISTRÆNA GJÖRNINGA Á SVIÐI
Sigurborg Selma Karlsdóttir
sigurborg@mbl.is
Lady Gaga er þekkt fyrir skapandi stíl og sviðs-
gjörninga.
„Kjötkjóllinn“ svokallaði vakti gífurlega athygli á
VMA-verðlaunaafhendingunni 2010. Kjóllinn
var gerður úr hráu kjöti.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Lína Rakelar er frekar óhefðbundin og
einkennist af formum og umbreytingu
líkamans. Rakel skapaði ákveðna erki-
týpu og hannaði línuna út frá þeirri
hugmynd. „Það er framtíðarblær yfir
línunni sem endurspeglar eins konar
samspil milli valda og elegans. Þetta er
köld distópía um herveldi kvenna sem
stefna ótrauðar áfram og líta aldrei til
baka. Þær finna ekki, þær gleðjast
ekki, þær hræðast ekki. Konurnar eru
valdamiklar og kaldar,“ segir Rakel.
Að sögn Rakelar hófst ferlið sem
rannsókn á formum í tengslum við lík-
amann. Form línunnar eru hörð og
sterk og grafík er notuð til að ýkja þau.
Síð, niðurmjó silúetta, stórar axlir og
grafísk form blása lífi í kraftmikla, ag-
aða konu.
Sterk grafík undir-
strikar og ýkir form
línunnar.
Köld framtíðarsýn um
herveldi kvenna