Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Blaðsíða 37
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Með smáforritinu Discovr getur þú
uppgötvað hljómsveitir og tónlist
sem svipar til þíns tónlistarsmekks.
Auk þess getur þú fylgst með þín-
um uppáhaldshljómsveitum og
smáforritið lætur þig vita af nýjum
lögum og nýjum fréttum sem frá
þeim koma. Þá geturðu spilað lög
með appinu í gegnum Spotify, You-
tube og önnur tónlistarforrit.
DISCOVR
Finndu nýjar
hljómsveitir
Smákökuleikurinn er álíka ávana-
bindandi og Candy Crush. Leikurinn
gengur út á það að ýta eins oft og þú
getur á skjáinn til að framleiða eins
margar kökur og þú getur innan
ákveðins tíma. Síðan ferðu með af-
raksturinn í næsta bakarí til að næla
þér í enn betri aðferð við að baka
óendanlega margar smákökur á sem
skemmstum tíma.
COOKIE CLICKERS
Bakaðu skrill-
jón smákökur
Nú er lausnin komin fyrir þig og
köttinn þinn. Engir erfiðleikar eða
misskilningur í samskiptum ykkar á
milli framar. Þetta smáforrit getur
þú notað sem túlk fyrir köttinn.
Forritið nemur rödd þína, tekur
upp það sem þú vilt segja og yf-
irfærir yfir á mjálm kattarins. Einnig
er sniðugt að nota það til að
hrekkja samstarfsmenn og vini.
Talaðu við
köttinn þinn
HUMAN-TO-CAT
TRANSLATOR
Opnunartímar:
Smáralind
Virka daga 11-19 | Fimmtudaga 11 - 21 | Laugardaga 11 - 18
Sunnudaga 13 - 18 | Sími 512 1330
Laugavegi 182
Virka daga 10-18 | Laugardaga 12 - 16 | Sími 512 1300
Komin í verslanir okkar
Nýr
iMac
* Skipuleggðuákveðinn tíma til að
skoða tölvupóst.
Ekki skoða tölvu-
póst og önnur
samskipti (Face-
book-skilaboð,
twitter-
samskipti) jafn-
óðum allan dag-
inn. Temdu þér
að skoða sam-
skipti með 2-4 tíma
fresti til dæmis. Þegar
þú ferð heim úr vinnunni
skaltu hafa þá reglu að svara
ekki meiri tölvupósti þann daginn
nema ýtrustu nauðsyn beri til.
Stilltu tölvu og síma þannig að þú
fáir ekki tilkynningu um nýjan póst
með hljóði, titringi, blikkandi ljósi
eða öðrum sambærilegum leið-
um. Pósturinn verður þarna
ennþá þegar þú vaknar á
morgun. Láttu vini og
samstarfsaðila vita,
og þau munu virða
ákvörðun þína.
* Temduþér að nota
síur á póst-
inn og stilla
þær svo að ein-
ungis mikilvægur
póstur fari þang-
að, svo sem frá yf-
irmanni og helstu
samstarfsmönnum. Öðru
sem ekki á þar heima má safna í
sérstaka möppu sem hægt er að
skoða sjaldnar.
* Ekki nota tölvu rétt fyrir svefn. Ljósflestra tölvu- og símaskjáa er á litrófi sem
skekkir mat heilans á birtustigi og getur trufl-
að líkamsklukkuna. Þetta getur valdið miklum
svefntruflunum. Lestu frekar bók – eða í
versta falli, prentaðu út skýrsluna sem þú þarft
að lesa fyrir morgundaginn. Ekki geyma símann á
náttborðinu. Ef hann pípir og titrar á nóttunni bitn-
ar það á svefni þínum.
* Einbeittu þér að því að leysa eitt verkefni íeinu. Það er gagnlegt að notast við einhvers konar
tímastjórnun á því ef þurfa þykir. Hafðu sömuleiðis
einungis opna þá glugga tölvuforrits sem þú þarft að
nota til að leysa verkefnið sem er fyrir höndum.
* Notaðu 20/20/20 regluna til að hvílaaugun. Kanntu ekki 20/20/20 regluna? Hún er
einföld. Á 20 mínútna fresti skaltu horfa á eitthvað
annað en tölvuskjáinn úr 20 metra fjarlægð í 20
sekúndur. Þessu tengt: Stattu upp
og hreyfðu þig. Gakktu hring
á skrifstofunni. Í það
minnsta kringum skrif-
borðið. Ekki gleyma
að hlífa líkamanum
og sitja rétt.
* Prófaðu aðhringja í stað
þess að skrifa
SMS. Þú skrifar
enga vitleysu á með-
an, og stundum er fólk
bæði skemmtilegt og
fróðlegt og samtalið leiðist
inn á aðrar gagnlegar brautir.
* Feldu leiðinlegu Facebook-vinina. Þúveist hverjir það eru, þessir sem eru alltaf nei-
kvæðir og sjá slæmu hliðar allra mála og þurfa
endilega að deila þeim með öðrum. Það er
engin ástæða til þess að vera að láta neikvætt
viðhorf annarra draga þig niður. Þau munu
aldrei komast að því að þú tókst þau úr tíma-
línunni.
* Engar fréttir,síma eða aðra truflun
á matmálstíma.
Höldum þessa stund
hátíðlega. Eyðum tíma
hvert með öðru, fjöl-
skyldu og vinum og
látum hörmungar
heimsins bíða betri
tíma. Kertaljós við
matarborðið myndar
oft þægilega stemningu
sem hvetur til samveru og
samræðna.
Nokkur góð ráð
gegn tæknistreitu