Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2013
H
jónin Yesmine Olsson og Arn-
grímur Fannar Haraldsson,
betur þekktur sem Addi
Fannar, eru fólk sem þykir
ekkert annað koma til greina
en að koma þeim hugmyndum sem þau fá í
verk, hvort sem það tengist dansi, matargerð
eða skemmtanaiðnaðinum. Einar Bárðarson,
stóri bróðir Adda Fannars var sá sem kynnti
þau en frá þeirri viðkynningu liðu þó um
þrjú ár þar til þau settust niður og tóku
meðvitaða ákvörðun um að byrja saman.
Við hittumst í Hörpu og þegar blaðamaður
biður um „Arngrím Fannar“ hugsar mað-
urinn í móttökunni sig smástund um... „Já
Addi?“ Enda er Arngrímur ekki neinn Arn-
grímur. Hann er Addi Fannar úr hinni
geysivinsælu sveitaballahljómsveit Skíta-
móral og hvar sem við stöndum í pólitík og
hvaða þjóðfélagshópi sem við tilheyrum,
hljótum við öll að geta raulað „Ertu þá far-
in?“ En Addi er einmitt núna kominn – í af-
greiðsluna með Yesmine. Hann segir reynd-
ar að Addi Fannar sé gaurinn í Skítamóral
og í dag sé hann Addi. Þetta gæti orðið flók-
ið. Hann starfar sem verkefnastjóri tónlistar-
viðburða í Hörpu en hefur einnig tekið þátt í
verkefnum eiginkonu sinnar, svo sem mat-
reiðslubókum og framleiðslu matreiðsluþátta.
Snúum hlutverkunum aðeins við. Hvað
getið þið sagt mér um bakgrunn hvort ann-
ars?
Addi „Yesmine fæddist á Sri Lanka. Hún
var átta mánaða þegar hún og systir hennar
voru sóttar þangað af sænskum foreldrum
sem ættleiddu þær en þeir fóru í mikla svað-
ilför til Sri Lanka og náðu í stúlkurnar. Þær
voru svo aldar upp sem tvíburar en það var
aðeins ár á milli þeirra. Þær systur gengu í
sama bekk og æska Yesmine einkennist af
íþróttum – fótbolta, fimleikum og svo æfði
hún keppnisíþrótt sem Íslendingar eiga erfitt
með að skilja en það er mjög töff sport sem
er trampólínhopp á skíðum. Ég veit að sem
unglingur fór hún að tengja við rætur sínar,
leita að einhverju framandi, sem hún fann þá
meðal annars í dansi.“
Yesmine„Addi er uppalinn á Selfossi. Í
rosalega fallegu húsi sem foreldrar hans
byggðu. Foreldrar hans voru lengi í eigin
rekstri, ráku blómabúð á Selfossi og svo á
hann hálfbróður sem heitir Einar Bárðarson
sem hann er alinn upp með. Fjölskyldan var
mikið á skíðum og í veiði og þegar Addi var
12 ára gamall keypti hann sér hest. For-
eldrum hans þótti það svo skemmtilegt að
þau seldu húsið sitt, fluttu út í sveit og hófu
hestabúskap. Ég veit að hann var pínu gang-
ster. Að minnsta kosti mjög óþekkur. Nei,
ég þori ekki að segja frá því sem ég hef
heyrt!“
Addi „Yesmine var mjög virk og orku-
mikil. Það kallast ekki óþekkt en fjölskyldan
þurfti að hafa svolítið fyrir henni að því leyti
að passa að hún hefði alltaf nóg fyrir stafni.“
Yesmine „Ég var uppi í öllum trjám.“
Addi „Og fékkst útrás við að elta geitur.
Hún bjó í fiskiþorpi en auk þess á fjölskylda
hennar sveitasetur í Svíþjóð og þar var hún
mikið, svo sem öll sumur.“
Yesmine „Hann var sem sagt óþekkur og
ég bara smá villt. Addi er mikið náttúrubarn
og sveitastrákur, gengur í öll verk því hann
kann því vel að gera hlutina sjálfur. Hann er
mikill dýravinur og veit allt um fugla, fiska
og jörðina. Á tímabili var hann alltaf að tala
um að hann vildi verða bóndi og mér leist
nú ekki alveg nógu vel á það og spurði hann
af hverju hann hefði ekki sagt mér það áður
en við giftumst! Ég er meiri borgarstelpa.
En í dag eru hlutverkin þannig að Addi er
mjög rólegur og ég ekki,“ segir Yesmine og
hlær. „Hann hefur þó kennt mér að taka líf-
inu með meiri ró.“
Addi „Yesmine hefur kennt mér að ég hef
ekki alltaf rétt fyrir mér.“
Heppni að ferðaplönin breyttust
Hefurðu einhvern tíma fundið til löngunar til
að fara til Sri Lanka og skoða rætur þínar
þar?
Yesmine „Ég hef fundið til þeirrar löng-
unar já og við í raun vorum alltaf á leiðinni
að fara þangað en landið var svo stríðshrjáð
að það var erfitt. Ég ætlaði að heimsækja
þessar slóðir um áramótin 2003-2004 og við
áttum bókað far þá. Við vorum mjög heppin
að ferðaplönin breyttust og við seinkuðum
ferðinni því flóðbylgjan gekk yfir þarna ná-
kvæmlega á þeim tíma sem við höfðum ætl-
að að fara.“
Flóðbylgjan gekk á land í 14 löndum,
meðal annars í Sri Lanka og Indlandi, og
250.000 manns létu lífið.
Yesmine „Kunningjakona okkar hafði
stungið upp á að við myndum bíða aðeins
með að fara þar sem við gætum þá búið hjá
henni svo að við fórum til Dubai í staðinn.
Það er ótrúlegt að hugsa til þessa eftir á.
En ég held að ég hafi fengið að upplifa minn
uppruna í gegnum matargerðina og svo Bol-
lywood-dansinn sem virðist vera mér eðl-
islægur. Ég ætla að fara einn daginn og mig
langar en ég finn ekki þörf sem truflar mig
dagsdaglega. Ég er mjög ánægð með það
sem ég á. Mér finnst það eðlilegt að flesta
sem eru ættleiddir langi til að fara og sjá
landið sitt.“
Hafið þið lært að meta umhverfi hvort
annars – þú sveitina sem fjölskylda eig-
inmannsins býr í, Yesmine, og hefur eig-
inmaðurinn á móti heimsótt Svíþjóð?
Yesmine „Það var mjög gott fyrir mig að
komast út í sveitina hans og náttúruna en
svona rosalega friðsælu umhverfi var ég
ekki vön. Það var róandi en líka stundum
erfitt fyrst því það var áskorun að taka því
alveg svona rólega. Þarna ertu bara að njóta
þess sem þú hefur – þess sem skiptir máli.
Hjá fjölskyldu hans lærði ég líka að meta
hestamennsku. Og auðvitað er æðislegt að
vera þarna og fá alla matvöru beint frá býli.
Hef ég lært að meta allan íslenskan mat?
Já, nema slátur, ég ætlaði að elda það handa
Ronju dóttur okkar um daginn og tók upp á
því að steikja það. Hún varð alveg brjáluð
yfir því! Sagði að það mætti sko ekki.“
Addi „Ég hef heimsótt Svíþjóð einu sinni
til tvisvar á ári frá því að við byrjuðum sam-
an og þarna er stutt að fara til að synda í
vötnum, skreppa á ströndina og í sumar
þótti okkur sérstaklega gott að koma þangað
þar sem sumarið hér heima var eins og það
var. Úti hjá þeim lærði ég að meta síld og
snafs og hina ýmsu sjávarrétti sem ég hafði
ekki kynnst áður eins og nokkrar tegundir af
skelfiski.“
Auk þess sem þau hjónin eiga sjö ára
stúlku sem heitir Ronja á Addi 14 ára strák,
Harald Fannar. Þau byrjuðu að vera saman
þegar Haraldur var tveggja ára og Yesmine
segir fjögurra manna fjölskylduna mjög nána
og samheldna.
Þegar Yesmine og Addi kynnast, árið 1998,
hafði Yesmine verið með annan fótinn á Ís-
landi frá 1992 og starfaði sem einkaþjálfari
hjá Planet Pulse. Hún átti þá að baki ýmsa
sigra. Líklega hófst það með því að 16 ára
gömul vann hún stærstu hæfileikakeppni Sví-
þjóðar með sólódansatriði og sömu helgi varð
hún Svíþjóðarmeistari á trampólíni. Hún
vann fyrir sér lengi í dansi og ferðaðist um
heiminn sem dansari og danshöfundur. Meðal
annars samdi hún dansa fyrir Back Street
Boys á tónleikaferðalagi þeirra um Þýska-
land en hún var alltaf með hugann við íþrótt-
irnar líka. Yesmine kenndi meðal annars í
líkamsræktarstöð Jónínu Benediktsdóttur í
Svíþjóð, Aktiverum, og um það leyti lærði
hún einkaþjálfun og tók sex mánaða nám í
næringarráðgjöf í Svíþjóð. Síðar meir kom
hún til Íslands og starfaði í Planet Pulse. Í
þeirri líkamsræktarstöð hittust þau Addi ein-
mitt fyrst. Yesmine hafði þá einnig náð mikl-
um frama innan alþjóðlega Fitness-heimsins
með danslotum.
Líkaði tónlistin
Skítamórall var þarna á hátindi ferilsins,
hafðirðu heyrt í þeim Yesmine?
Yesmine „Nei, reyndar ekki, enda hafði ég
ekki haft fasta búsetu hér á landi og mikið
verið á ferðalagi út af vinnunni. En engu að
síður hafði ég samt heyrt af þeim. Ég hitti
Íslending í lest í Kaupmannahöfn og hann
fór að tala um Skítamóral en þá kom ég
hljómsveitinni ekkert fyrir mig. Síðar í
vinnunni heyrði ég tónlistarsyrpu með þeim
og lagði eyrun við. Yfirleitt þótti mér íslensk
tónlist leiðinleg en ég man að ég hugsaði;
„Hmm, kannski get ég notað þetta eitthvað“
og var þá að hugsa um eitthvað vinnutengt.
Svo sagði þulurinn í endann að þetta hefði
verið Skítamórall. Svo kom hann til mín í
Planet.“
Addi „Einar bróðir minn bauð mér með
sér í ræktina, átti eflaust eitthvað tveir fyrir
einn tilboðskort þarna, og hann fór með mig
til Yesmine og spurði hana hvort hún nennti
að þjálfa mig.“
Yesmine „En Einar lét sig hverfa, skildi
bróður sinn eftir og kom ekkert aftur! En
þarna kynntumst við sem sagt þótt við yrð-
um bara vinir. Addi fékk mig til að vinna
með sér og fara út í skemmtanaiðnaðinn aft-
ur. Ég aðstoðaði hann meðal annars með
tónlistarmyndband og fór að taka þátt í
ýmsu í kringum hljómsveitina og öðru sem
Addi Fannar var tengdur. Í þrjú ár vorum
við rosalega góðir vinir enda höfðaði hann
ekki til mín þá, hann var poppari í allt öðr-
um lífsstíl.“
Addi „Á þessum árum hafði ég hljóðfæra-
Var meðvituð ákvörðun
YESMINE OLSSON GERÐI EIGINMANN SINN SVO ÁSTFANGINN AF SÉR AÐ HANN HÆTTI AÐ VERA GRÆN-
METISÆTA. ÞAU HÖFÐU VERIÐ VINIR Í ÞRJÚ ÁR ÞEGAR HÚN SÁ AÐ ÞAU GÆTU HUGSANLEGA VERIÐ KOMIN
Á SAMA STAÐ Í LÍFINU OG ÞAU SETTUST NIÐUR OG RÆDDU ÞAÐ SÉRSTAKLEGA HVORT ÞAU ÆTTU KANNSKI
AÐ TAKA NÆSTU SKREF SAMAN.
Texti: Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is
„Ég ætlaði að heimsækja þessar
slóðir um áramótin 2003-2004 og
við áttum bókað far þá. Við vorum
mjög heppin að ferðaplönin
breyttust og við seinkuðum ferð-
inni því flóðbylgjan gekk yfir þarna
nákvæmlega á þeim tíma sem við
höfðum ætlað að fara,“ segir
Yesmine Olsson um fyrirhugaða
ferð sína fyrir tíu árum til landsins
sem hún er ættleidd frá.
Viðtal