Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Side 13
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
þau vin þeirra í Bergen að
leita. Sú leit bar ekki
árangur í fyrstu.
„Kjenner du
Hekla?“
Svo vildi það til
að blaðamaður
nokkur, Lars
Hollerud, sem
starfar á Fædre-
landsvennen í
Kristiansand frétti
af þessari sögu frá
Kristínu.
Það var í maí árið 2010 að
Anna Margrét og Jónas eiginmaður hennar
voru stödd í Stokkhólmi að heimsækja elsta
soninn, að Anna Margrét fær undarlegt sím-
tal. Þar er á línunni hinn norski Lars sem
vildi fá nánari upplýsingar hjá henni og stað-
festa þessa sögu. „Þú verður að segja mér
söguna á tíu mínútum, því þetta á að fara í
blaðið eftir tíu mínútur!“ segir hann hlæj-
andi. Sett var frétt í blaðið daginn eftir und-
ir fyrirsögninni „Kjenner du Hekla?“ og
undir var mynd af samnefndu fjalli. Þar er
rakin sagan í stuttu máli, og fólk beðið um
að láta vita ef það kannist við þessa konu
sem fæddist í flugvél árið 1955. Stúlkan var
alltaf kölluð Hekla af Önnu Margréti og
áhöfninni. „Við skírðum hana bara Heklu, af
því hún var ekki nefnd á fæðingardeildinni,“
útskýrir hún.
Íslandshálsmen úr gulli
Það stóð ekki á svari, eiginmaður „Heklu“,
sem heitir reyndar Hilde Vindsland, lét blað-
ið vita að hún væri fundin. Blaðamaðurinn
hafði strax samband og birti viðtal við þau
hjónin daginn eftir. Móðir hennar, Ellen Mar-
ie, hafði látist 2008, þá 84 ára gömul. Hilde
lýsir því í viðtalinu að móðir hennar hafi
fengið 26 dollara að gjöf frá farþegum Heklu
en fyrir það hafi hún keypt gullhálsmen sem
er eins og Ísland í laginu, hálsmen sem Hilde
gengur nú með. Hilde, sem er í dag 58 ára,
er gift Alf Helge, en saman eiga þau tvær
dætur og eitt barnabarn, öll fædd á jörðinni,
eins og þau segja.
Kynnast í gegnum tölvupósta
Anna Margrét fékk hjá Kristínu heimilisfang
og netfang hjá Hilde og sendi henni tölvu-
póst. „Ég vissi auðvitað ekkert hvernig hún
myndi taka þessu. En hún verður svona
lukkuleg með þetta,“ segir Anna Margrét,
„og hún svaraði alveg um leið. Við höfum
haldið sambandi síðan. Tölum um fjölskyldur
okkar, hvert við förum og hvað við erum að
gera, og svo fáum við alltaf póstkort þegar
þau fara til Kanarí,“ segir Anna Margrét.
„Þar sá ég barnið mitt“
Eftir þriggja ára tölvusamskipti var loks
ákveðið að hittast og héldu Anna Margrét og
Jónas til Noregs nýlega, ásamt Margréti
dóttur sinni og Magdalenu, barnabarninu.
Guðjóni Arngrímssyni, upplýsingafulltrúa
Flugleiða, fannst sagan svo skemmtileg að
hann ákvað að bjóða þeim farið þeim að
kostnaðarlausu, en ekki hefur annað barn
fæðst um borð í íslenskri flugvél.
Það var svo 14. maí síðastliðinn
að þau lögðu af stað í endur-
fundina í Kristiansand.
Þau ákváðu að hittast í
anddyri hótelsins á há-
degi daginn eftir. Þeg-
ar Anna Margrét og
Jónas koma niður,
standa þau Hilde og
Alf þar. „Og þar sé ég
barnið mitt í fyrsta sinn,
stórt og stæðilegt og
brosandi og við bara föll-
umst í faðma, ég fæ bara tárin
í augun, þetta var svo merkileg
stund!“ segir Anna Margrét, og ekki er
laust við gæsahúð hjá blaðamanni.
Yndislegir endurfundir
Hilde og Alf buðu þeim strax heim í kaffi, en
þar beið þeirra glæsileg marsipanterta
skreytt mynd af flugvél og íslenska og norska
fánanum. Anna Margrét og Jónas komu fær-
andi hendi með gjafir og þau voru bara alveg
gáttuð, segir Anna Margrét. Þau spjölluðu
allan eftirmiðdaginn, og skoðuðu svo saman
möppu sem Ellen Marie hafði sett í alls kyns
upplýsingar um fæðinguna um borð í Heklu.
Þau hittust alls þrisvar sinnum á þessum
dögum, og eyddu meðal annars með þeim
þjóðhátíðardeginum 17. maí. Þá var farið í
bæinn sem var troðfullur af prúðbúnum
Norðmönnum sem klæddust þjóðbúningum.
Anna Margrét og Jónas héldu svo heim til Ís-
lands alsæl með ferðina. Samskiptin halda
áfram, en auðvitað fékk Hilde innilegar af-
mæliskveðjur þann 29. maí síðastliðinn, ná-
kvæmlega 58 árum eftir þeirra fyrstu kynni.
Morgunblaðið/Kristinn
Það urðu fagnaðarfundir í anddyri hótelsins í Kristiansand. Alf Helge, Anna Margrét og Hilde, barn-
ið sem fæddist í flugvélinni, voru himinlifandi að hittast loksins.
Merkileg og tilfinningarík stund þegar Anna
Margrét og Hilde hittust fyrst.
*„Blasti þá við mérótrúleg sjón. Þar sit-ur konan á klósettinu með
nýfætt barn í fanginu!
Barnið grét ekki en var á
lífi. Konan horfði á mig
biðjandi augum, hún bara
gat ekki sagt neitt.“
Viðtal við hjónin Alf Helge og Hilde birtist í
norsku blaði daginn eftir að „Hekla“ fannst.