Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Síða 15
hef ég leitt hugleiðslu hjá
Krabbameinsfélagi Íslands og
þangað kemur fjöldi fólks sem
fengið hefur krabbamein. Ég
kenni þessu fólki það sem ég
kann.
Ég hef sterkar taugar til
Krabbameinsfélagsins en sextán
ára varð ég einn af stofnendum
þess. Móðir mín dó þegar ég var
fjórtán ára úr krabbameini og þá
var ég sviptur þeim munaði að
eiga góða móður. Hún var yngst
systkina sinna en dó fyrst þeirra
og systur hennar tvær dóu einnig
úr þessum sama sjúkdómi. Ég
var sextán ára gamall þegar ég
sá auglýsingu um stofnun Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur. Það var
eins og mamma talaði í gegnum
mig og ég fór og skráði mig í fé-
lagið. Mér hefur alltaf fundist ég
eiga dálítið í þessu félagi.“
Heldurðu að qigong geri fólk
að aðeins betri manneskjum?
„Ein lykilhugsun í qigong er
að langrækni skili engu, eyði
einungis orku okkar. Hafir þú
einhvern tímann sagt við ein-
hvern í fjölskyldunni: „Farðu til
fjandans, mér er sama þótt ég
sjái þig aldrei aftur,“ þá átt þú
að koma til hans, jafnvel þótt
það sé eftir fjörutíu ár, og
segja: „Manstu? Ég er kominn
til að biðja þig að fyrirgefa
mér.“ Kannski réttir viðkom-
andi fram höndina og segir:
„Já, þótt fyrr hefði verið.“ En
ef viðkomandi segir: „Nei, ég
tala aldrei við þig aftur,“ þá
hefur þú öðlast frelsi frá lang-
rækninni en hann er fastur í
helsi hennar. Við eigum að
vera manneskjur friðar og kær-
leika.“Morgunblaðið/Kristinn
„Við eigum að vera mann-
eskjur friðar og kærleika.“
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Í bókinni Gunnarsæfingarnar er
sagt frá nokkrum greinum í virt-
um tímaritum þar sem fjallað er
um aukinn áhuga manna á
Vesturlöndum á hugleiðslu, þar á
meðal grein sem birtist í tímarit-
inu Wired í júlímánuði árið 2013.
Þar segir frá hugleiðslutímum
sem starfsmenn Google sækja í
höfuðstöðvum fyrirtækisins í Sili-
con Valley. Á þessum nám-
skeiðum er fólki kennt að horfast
í augu við eigin tilfinningar og ná
stjórn á þeim, og talið er að
þannig verði það betri starfs-
menn. Hálfsmánaðarlega er síðan
efnt til kyrrðarhádegisverðar þar
sem borðað er saman í þögn. Á
svæði höfuðstöva netleitarrisans
var nýlega reist völundarhús þar
sem hægt er að stunda göngu-
hugleiðslu. Meðal stofnenda
Twitter og Facebook eru nokkrir
sem hafa gert hugleiðsluæfingar
að lykilatriði í nýjum fyrirtækjum
sínum og efnt er reglulega til hug-
leiðslu í skrifstofum fyrirtækj-
anna.
HUGLEIÐSLA HJÁ STARFSMÖNNUM
GOOGLE, TWITTER OG FACEBOOK
Ábyrgðar- og þjónustuaðilar: Optical Studio Smáralind, s. 528 8500 og Optical Studio Keflavík, s. 4213811
Umgjörð:
Lindberg Spirit
Linda Ólafsdóttir
Umgjörð:
Lindberg 1800
Kristín Jóna
Hilmarsdóttir
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
ALLT AÐ 50% ÓDÝRARI
EN SAMBÆRILEG VARA Á MEGINLANDI EVRÓPU
Verslaðu á hagstæðara verði
í okkar fullbúnu gleraugnaverslun
á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð
ERTU Á LEIÐ TIL ÚTLANDA?