Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Síða 24
*Heimili og hönnunHeima hjá innanhússarkitektinum Berglindi Berndsen á Seltjarnarnesi er lýsing í hávegum höfð »26
Mig langar
í …
… Í stofuna
Það er einn tómur veggur í stofunni og þar
væri gaman að hengja verk eftir nokkra af
mínum uppáhaldslistamönnum eins og til
dæmis Þorvald Jónsson, Sunnu Ben. eða
Andy Warhol, ef ég fyndi nokkra tugi millj-
óna undir sófasessunni. Svo væri ég til í
nokkra hluti frá So By Sonja til að punta
með.
… Í svefnherbergið
Þar er fataskápurinn minn og í hann
væri ég alveg til í þykkan svartan
gullgrafarafrakka, gamlan rússneskan
ambassadorhatt og Illesteva-
sólgleraugu. Það væri reyndar gaman
að eiga líka einn gríðarstóran skóg-
arbjarnarfeld á gólfinu.
… Á vinnustofuna
Gamalt marrandi tréskrifborð,
tonn af japönsku bleki, nýjan
Rapidograph-penna, sekk af
Letraset Tria-tússpennum og
haug af skissubókum úr
einhverjum vel lykt-
andi ítölskum
pappír.
… Í forstofuna
Þar tekur einmitt núna rosalega mikil skó-
hrúga á móti mér og í þann haug má alltaf
bæta. Ég væri til í gönguskó frá Danner og
nýja Nike flyknit racer fyrir
hversdaginn.
… Í útópískri veröld
Auðvitað hamingju, heilbrigði, gæfu og ást fyrir alla mína vini og ættingja. En líka töfrasparigrís sem er
alltaf fullur af peningum og Saab 900c, árgerð 1985. Takk fyrir.
BJÖRN ÞÓR BJÖRNSSON, BETUR
ÞEKKTUR SEM BOBBY BREIÐHOLT,
ER GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR OG
TEIKNARI HJÁ ÍSLENSKU AUGLÝSINGASTOFUNNI. BOBBY HEFUR
UNNIÐ SJÁLFSTÆTT AÐ TEIKNINGUM OG AÐALLEGA AÐ PLÖTU-
UMSLÖGUM OG VANN ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN 2012
FYRIR UMSLAG PLÖTUNNAR ÓRA MEÐ HJÁLMUM. BOBBY HEFUR
EINNIG HANNAÐ PLÖTUUMSLÖG FYRIR LISTAMENN Á BORÐ VIÐ
LAY LOW, ÁSGEIR TRAUSTA OG FM BELFAST.
… Í eldhúsið
Ég er ósköp ósjálfbjarga í eldhúsinu og hef ekkert blæti fyrir
designer-leirtaui, koltrefjasleifum eða pastavélum. En mig vantar
reyndar örbylgjuofn, þannig að það væri fínt.