Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Page 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Page 34
*Græjur og tækniMikil notkun tölvu og síma veldur streitu sem hægt er að vinna gegn með einföldum leiðum »36 A ugu Íslendinga fyrir GSM-símum opnuðust árið 1994 þegar Póstur og sími opnaði farsímanetið. Þá voru ekki margir símar á markaðnum. Nokia og Ericsson voru vinsælustu símarnir hér á landi en þeir voru nærri því hálft kíló að þyngd. Árið 2000 var WAP-tæknin kynnt til sögunnar. Þá sagði í frétt í Morgunblaðinu að ný tegund farsíma gerði „notendum nú mögulegt að sækja upplýsingar á vefsíður og notfæra sér margs konar þjónustu þeirra“. Það var sem sagt hægt að fara á netið, sem þykir jafn eðlilegt og fyrir fólk að opna augun þegar það vaknar í dag. Það sem þykir æðislegt í dag verður gjarnan hallærislegt á morgun og jafnvel aftur æðislegt hinn daginn.Tískan fer í hringi eins og allir vita. Það á ekki síður við um far- síma. Farsímar eru ekkert öðruvísi en annað í þessum efnum. Stórir og voldugir þóttu símar frábærir á upphafsárunum, svo minnkuðu þeir niður í nánast ekki neitt. Margir muna þá tíð þegar farsíminn vó hátt í hálft kíló en örfáum árum síðar vógu símar rétt rúmlega 70 grömm. Í dag er Iphone 5 gefinn upp sem 112 gramma ferlíki, Samsung Galaxy mini er 107 grömm og HTC One S vegur 120 grömm. En þessa síma mætti líka kalla tölvu. GSM-símar seldust mjög vel enda tók hinn vestræni heimur þessari tækni opnum örmum. Snjallsíminn hefur tekið við hinum gamla góða síma sem entist og entist og entist. Apple hefur selt yfir 300 milljónir iPhone-síma frá því það undratæki kom á mark- aðinn. iPhone 4s seldist í 60 milljónum eintaka en iPhone 5 hefur nú þegar selst í 50 milljónum eintaka og ekki er langt síðan hann kom á markað. Samsung hefur einnig selt vel af snjallsímum enda er það mál manna í símaiðnaðnum að Nokia hafi orðið á eftir í þróun síma. Þar ríkja Samsung og Apple, allavega í bili. iPhone 3GS kom á markað 2009. Seld- ist í rúmlega 35 milljónum eintaka. Nokia 6230 kom á mark- að 2004. Seldist í 50 millj- ónum eintaka. Nokia 1200 kom á markað 2007. Seld- ist í rúmlega 150 milljónum eintaka. Motorola Star- TAC kom á mark- að 1996. Seldist í rúmlega 60 millj- ónum eintaka. Farsímar sem selst hafa í yfir 100 milljónum eintaka Nokia 1100 Nokia 3210 Nokia 1110 Nokia 1200 Nokia 5233 Nokia 3310 Nokia 2600 Motorola RAZRV3 Nokia 1600 Nokia 1208 100 130 130 135 136 150 150 150 160 250 Heimild: Daily Telegraph SÖLUHÆSTU FARSÍMARNIR Nokia trónir á toppnum 1994 OPNAÐI PÓSTUR OG SÍMI GSM-FARSÍMANET HÉR Á ÍSLANDI. ÁÐUR VAR NOTAST VIÐ NMT-KERFIÐ. ÞRÁTT FYRIR SNJALLSÍMAVÆÐ- INGU HEIMSINS ERU GÖMLU GÓÐU NOKIA-SÍMARNIR SÖLUHÆSTU SÍMAR HEIMSINS FRÁ UPPHAFI. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Nokia 1100 kom á markað 2003 og seldist í 250 millj- ónum eintaka hið minnsta. Motorola RAZR V3 kom á markað 2004. Seldist í rúmlega 130 milljónum eintaka. Nokia 3210 kom á markað 1999. Seldist í rúmlega 160 milljónum eintaka. Samsung Galaxy S II og S III komu ár markað 2011 og 2102. Seldust í 40 millj- ónum eintaka.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.