Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Qupperneq 39
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Á
þessum árstíma dregur
kvenpeningurinn fram
ullarkápurnar, hansk-
ana, keipana og allt fín-
eríið. Það er eitthvað svo ódýrt og
sjoppulegt að vera ekki vel búnar
þegar kólnar í veðri. Auk þess er
lítil reisn yfir skjálfandi konum með
fjólubláar varir. Þær verða nið-
urlútar, hoknar og yfir andlitinu er
fastur skelfingarsvipur …
Á þessum árstíma þurfa konur að
eiga almennilegar kápur – ekki
brussulegar úlpur. Allavega ekki til
að ganga í svona dagsdaglega. Þeir
sem þekkja mig vel vita að þetta
kemur úr hörðustu átt. Ég er nefni-
lega stoltur eigandi hnésíðrar dún-
kápu með dúnhettu sem ég á það til
að bregða mér í þegar enginn sér
til. Þessi kápa er afar fín ef maður nennir ekki úr náttföt-
unum og þarf nauðsynlega að komast út í sjoppu að kvöld-
lagi. Einhvern veginn hefur þetta þróast þannig að ég fer
bara í dúnkápuna þegar ég er stödd á botni tilver-
unnar … og er mjög kalt. Til allrar hamingju fengi
kápan aldrei að koma með mér í leikhús eða í boð. Við
betri tilefni dreg ég fram slána úr ELLU sem saum-
uð er úr baby-camel-hárum. Konur í slám verða eins
og drottningar og þegar ég er komin í slána þarf ég
ekkert annað; engan klút, engan loðfeld og varla
tösku.
Á tískuvikunum úti í heimi, sem haldar voru í sept-
ember og október, sást greinilega hvernig káputískan
er að þróast. Reyndar ekki á tískupöllunum sjálfum
heldur á klæðaburði tískusýningargestanna. Þær sem
fá boð á fínustu tískusýningarnar eru konur sem hafa
vigt í tískuheiminum og því er ágætt að fylgjast með því
hvernig þær klæða sig. Það brást ekki; nánast allar voru í
kápum í yfirstærð í ljósbleiku, gráu eða svörtu.
Svona beinar ullarkápur eru fullkomnar fyrir þær
sem vilja fela vöxtinn en alveg agalegar fyrir þær sem
vilja sýna mittið og mjúku lærin. Það þarf því að
vanda valið vel og gæta þess að við verðum ekki
eins og sirkustjaldið sem fauk úr Vatnsmýrinni.
Ef það er hægt að setja belti á þessar kápur er
það alltaf best svo hægt sé að búa til örlitlar
kvenlegar línur sem eru svo fallegar. Ef það er
ekki hægt er ágætt að vera í aðsniðnum fötum
innanundir, svörtum vel sniðnum buxum, þunn-
um ullarpeysum og támjóum skóm.
Þegar þú ert komin í víða kápu er alger óþarfi
að vera líka með stóran klút um hálsinn því hann
bætir yfirleitt nokkrum kílóum á okkur. Ég hef
ekki enn mætt þeirri konu á minni lífsleið sem lang-
ar til að sýnast þyngri en hún er í raun og veru en
þessi kona er pottþétt til. Hún er bara ekki í minni
kreðsu … martamaria@mbl.is
Svona getur
þú rúllað …
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 | SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660
Hjarta úr hvítagulli
25 punkta demantur
99.000,-
Gullhálsmen
Handsmíðað 14K, 2 iscon
26.000,-
Demantssnúra
9 punkta demantur, 14K
57.000,-
Demantssnúra
30 punkta demantur, 14K
157.000,-
Gullhringur
Handsmíðaður 14K, 2 iscon
45.700,-