Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Qupperneq 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Qupperneq 49
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 leik að viðurværi, spilaði á kvöldin og um helgar en spriklaði stundum í ræktinni á daginn. En eftir þrjú góð ár af frjálslegu bó- hemlífi ákvað ég að taka þetta allt öðrum tökum. Ég var farinn að hugsa öðruvísi og tók í raun allt í gegn. Langaði bara að gera eitthvað nýtt.“ Yesmine „Hann fór í smá átak, tók áfengi alveg út um tíma, fór að borða meira af prótíni og fá sér heilsusjeik. Ég held að þetta hafi haft mikið um það að segja að hlutirnir breyttust á milli okkar því við höfð- um verið algjörlega sitt á hvorum staðnum. Svo klippti hann af sér dreadlocks og hætti að ganga í buffalóskónum. Það gerði líklega útslagið með að ég sannfærðist endanlega,“ segir Yesmine og hlær. Og hvernig komið þið ykkur að því að þróa vináttuna yfir í ástarsamband? Addi „Það var einfaldlega ákveðið.“ Yesmine „Og var auðvitað rosalega skrýt- ið því við vorum búin að fylgjast svo lengi með hvort öðru og styðja hvort annað. Hann átti lítið barn og ég var bara með mínu liði. Svo höfðum við bæði verið einhleyp um eitt- hvert skeið en samt búin að eyða endalaus- um tíma saman. Svo sáum við að sambandið var farið að stefna í aðra átt og fiðringur farinn að gera vart við sig. Þar sem við vor- um svona góðir vinir var ekkert annað að gera en að setjast niður og byrja að ræða að það væru einhverjar fleiri tilfinningar komn- ar í spilið.“ Addi „Þetta var ákveðið í íbúð Yesmine á þessum tíma. Við settumst niður og ræddum saman, ákváðum að prófa þetta.“ Yesmine „Og þá var ekkert annað eftir en að lokka hann frá því að vera grænmetisæta sem hann hafði verið í nokkur ár! Hann var nefnilega óvenjulegur poppari hvað mat- aræði snerti, lítið í skyndibita. Og skemmti- legt að segja frá því en þarna var Addi bú- inn að vera að nota indversk krydd í sína grænmetisrétti.“ Addi „Nú eru margir tónlistarmenn auð- vitað grænmetisætur þannig að þetta er ekkert óvenjulegt í dag. En jú, kannski hef ég og við nokkrir þarna bara verið svolítið á undan. Ég hafði verið grænmetisæta í sjö ár þegar við Yesmine byrjuðum saman.“ Yesmine „Ég bjó til svakalega góðan kjúklingarétt og hann var svo ástfanginn að hann þorði auðvitað ekki annað en að smakka hann.“ Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þetta var og nokkrum árum eftir rómantísku kjúklingamáltíðina fékk Yesmine þá hug- mynd að gefa út matreiðslubók með ind- versku ívafi. Þau hjón sáu þá ekkert því til fyrirstöðu að þau myndu kýla á þetta sjálf. Í kjölfarið stofnuðu þau eigið útgáfufyrirtæki en það litla fyrirtæki hefur gefið út þrjár matreiðslubækur og hafa tvær þeirra meðal annars hlotið alþjóðleg verðlaun. Í ár ákváðu þau að fela Eddu útgáfu það verkefni að gefa nýjustu bók Yesmine út. Addi og Yesm- ine framleiddu einnig einar þrjár sjónvarps- seríur en þær hafa allar verið sýndar á RÚV við miklar vinsældir. En þar við situr ekki því heima í Norðlingaholti halda þau matreiðslunámskeið, en þá er Yesmine
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.