Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Page 51
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
okkur í næstu viku,“ segir Addi og gefur
ýmislegt í skyn með glotti.
Addi menntaði sig í ferðamálafræði við
Háskóla Íslands með viðskiptafræði sem
aukafag og hefur komið víða við á síðustu
árum, meðal annars starfað fyrir Icelandair
hótelin, Glitni og Vodafone en segja má að
nú sé hann snúinn aftur í tónlistina.
Addi „Ég er að skipuleggja tónleika allan
daginn. Allt frá því að gera samning um
verkið, skipuleggja hvenær miðar fara í sölu
upp í það að skipuleggja allt innanhúss,
fjölda starfsfólks, tækniþarfir og allt sem til-
heyrir.“ Framundan eru meðal annars tón-
leikar Egils Ólafssonar, Iceland Airwaves og
stórsýningin Stomp. „Það má segja að við
séum að frumsýna í hverri viku en um leið
er verið að skipuleggja árin 2014 og 2015.
Það eru vissulega forréttindi að eiga þess
kost að starfa í fagi sem maður þekkir eins
og lófann á sér og þetta er líka mjög lifandi
umhverfi.“
Við ætlum að enda á að tala aðeins meira
um mat. Yesmine segir að í nýju bókinni
sinni, Í tilefni dagsins, hafi hún viljað færa
fjölbreyttar uppskriftir í aðgengilegt og ein-
falt form.
Yesmine „Ég ákvað að keyra á það sem
ég fíla mjög vel persónulega. Ekki bara ind-
verskt heldur líka ýmislegt úr mínum bak-
grunni í Svíþjóð. Þarna er sænskur bakstur
sem ég held að Íslendingum gæti þótt
spennandi að prufa því þótt Svíar standi
okkur Íslendingum aftar í matreiðslu að
mínu mati eru þeir með flottar bök-
unarhefðir. Ég geri þetta svo auðvitað á
minn hátt og nota til dæmis karrí í kanil-
snúða. Svo er þarna að finna mat sem gerð-
ur var í hestaferð og í veiðiferð, spennandi
götumat, svo sitthvað sé nefnt. Sumt er
mjög einfalt og annað aðeins flóknara en
þetta er allt með heilsusamlegu ívafi eða
hreinu hráefni.“
Er eitthvað uppi á borðum með næstu
skref í þessum heimi?
Addi „Okkur hefur fundist að veitinga-
staður væri rökrétt framhald og væri mjög
spennandi að gera það í framtíðinni.“
Yesmine „Já, við höfum rætt að það sé
eitthvað sem okkur þætti gaman að gera.
Við finnum að við erum búin að leggja grunn
að einhverju sem við þurfum að fylgja eftir.
Ég hef alltaf upplifað það þannig að það hafi
ekki verið ég sem valdi matinn heldur mat-
urinn sem valdi mig. Ég ætlaði aldrei að
gera matreiðslubækur eða elda svona. Ég
hef fyrst og fremst verið danshöfundur og
sinnt verkefnum tengdum skemmtanaiðn-
aðinum og þetta var alls ekki ætlun mín,
þetta var bara eitthvað sem kom. Ég er viss
um að ef ég hefði ekki búið á Íslandi heldur
í New York eða London hefði ég ekki farið
út í matargerð en það sem ég er að gera
passar mjög vel hér. Ég er mjög þakklát
fyrir hvernig þetta hefur allt þróast hér á Ís-
landi.“
Fjölskyldan í fríi á Seyðisfirði. Haraldur Fannar Arngrímsson er fjórtán ára og Ronja Ísabel er sjö ára.
ADDI SVARAR
1. Hver er besta kvikmynd sem Yesmine hefur séð?
„Einhver spennumynd.“ (Hún mjög hrifin af ævintýramynd-
um).
2. Hvað myndi Yesmine segja að henni þætti leiðinlegast að
gera, af daglegum hversdagslegum hlutum? „Ryksuga og
skúra.“ (Rétt).
3. Hvert myndi Yesmine fara á morgun ef hún gæti ferðast
hvert sem er í heiminum? „Gott skíðaferðalag.“ (Rangt. Hún
myndi skella sér í heimsókn til Elínar vinkonu sinnar í Dubai).
4. Hvert er eftirlætiskryddið hennar?
„Kóríander.“ Rangt. Cummin.
5. Við hvern talar hún oftast í símann?
„Oftast við mig en lengst við Bryndísi Óskarsdóttur, vin-
konu sína.“ (Rétt).
6. Hvað myndi hún fyrst kaupa sér ef hún ynni hundrað millj-
ónir í Lottóinu.
„Hún myndi kaupa skíðaferð handa fjölskyldunni.“ (Rangt. Hvolp).
7. Hvert er eftirlætislagið hennar?
„Eitthvað með Beyoncé.“ (Rétt.)
YESMINE SVARAR
1. Hver er besta kvikmynd sem Addi hefur séð?
„Held það sé The Graduate.“ (Rétt).
2. Hvað myndi Addi segja að honum þætti
leiðinlegast að gera? „Þvo þvott.“ (Rangt.
Fara í búðir).
3. Hvert myndi Addi ferðast á morgun ef
hann gæti ferðast hvert sem er? „Asíu.“
(Rangt. Rétt svar er Alaska).
4. Hvert er eftirlætiskryddið hans? „Salt og pip-
ar.“ (Rangt. Rósmarín).
5. Við hvern talar Addi oftast í símann?
„Son sinn.“ (Oft við son sinn en oftast við
Yesmine).
6. Hvað myndi hann fyrst kaupa sér ef
hann ynni hundrað milljónir í Lottóinu.
„Fjallajeppa.“ (Rangt. Rétt svar er hús
með bílskúr).
7. Hvert er eftirlætislagið hans?
„Eitthvað með Bob Marley.“ (Rangt.
Walk on the Wild Side með Lou
Reed).
Hvað vita hjónin
hvort um annað?
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
DIDRIKSONS TINDRA ÚLPA
Þrír litir.
Stærðir: 130–170
15.992 KR.
DIDRIKSONS LHTOSE ÚLPA
4 litir.
Stærðir: 80–120
11.192 KR.
DIDRIKSONS ALVAR ÚLPA.
Tveir litir.
Stærðir: S–XXL
35.600KR.
Verð áður 13.990 kr.
Verð áður 19.990 kr. Verð áður 44.500 kr.
COLUMBIA ALPINE ÚLPA
Tveir litir.
Stærðir: 104–152
11.992 KR.
Verð áður 14.990 kr.