Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2013
Menning
D
ag einn rölti ókunnugur
maður inn á skrifstofu
bókaforlagsins Bjarts í
Reykjavík og mælti stund-
arhátt yfir hópinn: „Ég er
með hugmynd að bók!“ Guðrún Vilmund-
ardóttir bókmenntafræðingur brást strax
við og bauð manninum til sætis. Spjölluðu
þau saman í drykklanga stund.
Um var að ræða glæpasögu og það
vakti forvitni Guðrúnar að maðurinn, Jón
Óttar Ólafsson, var ekki aðeins starfandi
lögreglumaður heldur jafnframt með dokt-
orspróf í afbrotafræði. Hann hlyti þar af
leiðandi að hafa forsendur til að nálgast
efnið. Hvatti Guðrún hann til að ljúka
verkinu. Skömmu síðar lá samningur á
borðinu.
„Ég hef engan bakgrunn í ritstörfum
og þess vegna leitaði ég til Bjarts,“ út-
skýrir Jón Óttar. „Langaði að vita hvort
ég væri á réttri leið. Mér var frábærlega
tekið hjá Bjarti og fékk þar ómetanleg
ráð hjá Guðrúnu, Pétri Má Ólafssyni og
fleirum. Það var mikil hvatning þegar þau
ákváðu að semja við mig.“
Það er til marks um trúna sem Bjartur
hefur á Jóni Óttari að ekki var samið um
eina bók, heldur þrjár, sem koma munu
út ekki bara á Íslandi, heldur jafnframt í
Noregi og Frakklandi. „Ég er mjög hepp-
inn með þetta,“ segir Jón Óttar en Hlust-
að kemur út í Noregi strax í janúar á
næsta ári og í Frakklandi síðar sama ár.
Um er að ræða þríleik þar sem sami
lögreglumaðurinn, Davíð að nafni, er í
forgrunni. Í fyrstu bókinni, Hlustað, sem
kemur út á næstu dögum, er sögusviðið
Ísland en í annarri bókinni berst leik-
urinn til Cambridge og Lundúna og í
þeirri þriðju þvælir morðrannsókn Davíð
víða um heim og á endanum til Flórída.
Langaði að bæta við
En hvers vegna ætli Jón Óttar hafi farið
að skrifa glæpasögur?
„Í ljósi menntunar minnar og starfs-
reynslu langaði mig að prófa hvort ég
gæti bætt einhverju við íslenska
glæpasagnaflóru. Ég hef lesið mikið af ís-
lenskum glæpasögum gegnum tíðina og
finnst þær yfirleitt mjög góðar,“ útskýrir
hann. „Smáatriðin hafa hins vegar stund-
um stuðað mig aðeins. Eins og til dæmis
hvernig rannsóknirnar fara fram í þessum
bókum. Oftar en ekki fer lögreglumað-
urinn á milli fólks, ræðir við það og leys-
ir málið með þeim hætti. Þannig er það
oftast ekki í raunveruleikanum. Lögregla
talar yfirleitt ekki við grunaða fyrr en
hún er með eitthvað áþreifanlegt í hönd-
unum eða er að minnsta kosti viss um að
það skemmi ekki neitt í rannsókninni.
Þannig er Davíð mikið inni á lög-
reglustöðinni í Hlustað, að vinna sína
vinnu og fylgist með úr fjarlægð.“
Velta má fyrir sér hvort þessi raunsæ-
islega nálgun þjóni framvindunni í skáld-
skapnum og Jón Óttar skellir upp úr
þegar hann er spurður hvort sagan verði
ekki bara leiðinlegri fyrir vikið. „Ég vona
svo sannarlega ekki. Það er algjört lyk-
ilatriði að sagan sé dregin áfram á plott-
inu og ef ég var að gleyma mér í tækni-
legum hlutum létu ritstjórarnir mig strax
vita. Ég vona að okkur hafi tekist að
finna gott jafnvægi.“
Hann segir skrif sín alls ekki sett fram
til höfuðs öðrum íslenskum glæpasagna-
höfundum heldur vilji hann bara gefa les-
endum tækifæri til að gægjast inn um
annan glugga.
Vann að allskonar sakamálum
Jón Óttar lauk doktorsprófi í afbrotafræði
frá háskólanum í Cambridge í Bretlandi
árið 2004. Eftir heimkomuna vann hann
til skamms tíma sem fangavörður og sem
sérfræðingur hjá embætti ríkislög-
reglustjóra. Því næst skráði Jón Óttar sig
í Lögregluskólann og frá 2005 til 2011
vann hann hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu, lengst af í upplýsingadeildinni.
Gerði raunar stuttlega hlé á þeim störfum
árið 2008, þegar hann réð sig til fjárfest-
„Það er ekkert í þessari
bók sem ekki gæti gerst í
raunveruleikanum,“ segir
Jón Óttar Ólafsson um
fyrstu skáldsögu sína.
Auðveldara að finna
lausnir í bókum
JÓN ÓTTAR ÓLAFSSON, DOKTOR Í AFBROTAFRÆÐI OG FYRRVERANDI LÖGREGLUMAÐUR, SENDIR Á NÆSTU DÖGUM FRÁ
SÉR SÍNA FYRSTU GLÆPASÖGU, HLUSTAÐ. HVATINN AÐ SKRIFUM HANS VAR EKKI SÍST AÐ GEFA LESENDUM RAUNSÆRRI
MYND AF STÖRFUM LÖGREGLU VIÐ LAUSN SAKAMÁLA EN GERT HEFUR VERIÐ Í ÍSLENSKUM GLÆPASÖGUM TIL ÞESSA.
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Mynd: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is