Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2013, Síða 55
ingabanka. „Því starfi var sjálfhætt eftir
hrun,“ segir hann.
Upplýsingadeild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu er skilgreind sem stoð-
deild og vinnur með rannsóknahópum
allra deilda. Jón Óttar fékk því yfirsýn
yfir alla flóruna, eins og hann kemst að
orði. Langmest var hann þó í fíkniefna-
málum.
Um tíma starfaði Jón Óttar hjá emb-
ætti sérstaks saksóknara en núna vinnur
hann með Sveini Guðmundssyni hæstarétt-
arlögmanni á Juralis lögmanns- & ráðgjaf-
arstofu. „Þar með er ég kominn allan
hringinn, farinn að taka þátt í vörn sak-
borninga í refsimálum. Það er ekki síður
mikilvægt hlutverk en að vera í lögregl-
unni og sækja á menn. Í réttarríkinu eiga
allir rétt á sanngjarnri málsvörn.“
Með störfum sínum hjá Juralis sinnir
Jón Óttar stundakennslu í afbrotafræði í
Háskóla Íslands. „Þegar ég fór í afbrota-
fræðina ætlaði ég mér að verða háskóla-
kennari í fullu starfi en eitt leiddi af öðru
og ég hef komið víða við. Allt nýtist það
í skrifunum.“
40 útgáfur af fyrstu blaðsíðunni
Hlustað varð fjarri því til á einum degi.
„Ég byrjaði að huga að bókinni um ára-
mótin 2007-08,“ segir Jón Óttar, „og það
var 2009 sem ég gekk inn á skrifstofu
Bjarts. Grunnhugmyndin er sú sama en
útfærslan hefur tekið miklum breytingum
á vinnsluferlinu. Ætli ég eigi ekki einar
fjörutíu útgáfur af fyrstu blaðsíðunni,“
segir hann og hlær. „Ég skrifaði bókina
með fullri vinnu og lauk við hana síðasta
vor.“
Vinna við aðra bókina, sem koma mun
út á næsta ári, er þegar komin vel á veg
og fyrir liggur hver rás atburða verður í
þeirri þriðju, þótt hún verði útfærð síðar.
Hlustað er skáldskapur en Jón Óttar
viðurkennir að margt í bókinni byggist á
raunverulegum málum sem hann hefur
sjálfur haft aðkomu að. „Það er ekkert í
þessari bók sem ekki gæti gerst í raun-
veruleikanum.“
Sama máli gegnir um persónurnar. Þær
byggjast oftar en ekki á raunverulegu
fólki, ekki síst fyrrverandi samstarfs-
mönnum Jóns Óttars. „Ég held raunar að
enginn sé það líkur að hann eigi að
þekkjast. Ég bræði menn meira saman,
skapgerðareinkenni, tilsvör og fleira. Ég
sé persónurnar gjarnan myndrænt fyrir
mér. Reyni að sjá fyrir mér útlitið,“ segir
hann.
Jón Óttar segir að aðalsöguhetjan, Dav-
íð, sé um flest býsna venjulegur náungi.
Liðlega fertugur og fæst einkum við
rannsókn á alvarlegri brotum. Davíð á
ekki við nein sérstök vandamál að stríða
og drekkur til að mynda ekki dropa í
allri bókinni, eins og Jón Óttar upplýsir
hlæjandi. Þó er ekki allt með felldu í
hjónabandinu. Þar hriktir í stoðum.
Ekki allar löggur góðar
Spurður hvernig mynd af lögreglunni sé
dregin upp í bókum hans kveðst Jón Ótt-
ar halda að hún sé jákvæð. „Það þýðir
samt ekki að allar löggur séu góðar!“
Sem fyrr segir er Jón Óttar mikill
áhugamaður um glæpasögur og segir
hann ýmsa höfunda í uppáhaldi. „Hér
heima held ég mest upp á Arnald Indr-
iðason og bíð spenntur eftir næstu bók
frá honum, 1. nóvember. Af erlendum
höfundum nefni ég Bandaríkjamanninn
Michael Connelly sem skrifar lög-
regluþrillera í raunsæisstíl. Síðan les ég
ýmsa norræna höfunda um leið og þeir
koma út, svo sem Jo Nesbø. Ég hugsa
líka að Stieg Larsson hafi haft meiri
áhrif á mig en mig grunaði í fyrstu. Ég
var einmitt að lesa hann þegar ég var að
byrja að skrifa sjálfur. Kannski kemur
hugmyndin að því að hafa þetta þríleik
þaðan.“
Þríleikurinn á hug Jóns Óttars allan
um þessar mundir en hann gæti þó vel
hugsað sér að skrifa fleiri bækur að hon-
um loknum. „Af öllum þeim störfum sem
ég hef gegnt eru skrifin skemmtilegust.
Þau eru í senn skapandi og róandi. Í
vinnunni stendur maður stundum frammi
fyrir verkefnum sem eru ekki auðleys-
anleg – það er miklu auðveldara að finna
lausnir í bókunum.“
* „Ég hef lesið mikiðaf íslenskum glæpa-sögum gegnum tíðina og
finnst þær yfirleitt mjög
góðar. Smáatriðin hafa
hins vegar stundum stuð-
að mig aðeins.“
20.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 55
Þannig er Hlustað lýst á kápu bók-
arinnar:
Ung kona finnst látin í gömlum grá-
sleppuskúr við Ægisíðu í desember
2009. Margt bendir til þess að hún
hafi tekið of stóran skammt, en lög-
reglumaðurinn Davíð er sannfærður
um að hún hafi verið myrt. Eina vís-
bending hans er óskráð símanúmer.
Af tilviljun kemst hann yfir hljóð-
upptöku af heimili efnaðs fíkniefnasala
sem lögreglan fylgist með. Upptakan
rennir stoðum undir grun hans. En
hann þarf að berjast fyrir því að fá að
rannsaka málið – um leið og hann
reynir að bjarga starfinu. Og hjóna-
bandinu.
Valdamiklir menn vernda hver ann-
an. Og þá skiptir morðrannsókn
litlu.“
Eina vísbendingin
er óskráð símanúmer
Sófar og stólar eru okkar ástríða
Swan sófi 211 cm / 252.200
Timeout hægindastóll
með skemmli 381.400
TILBOÐ 334.900
Joy hægindastóll 206.600
Stóll + skemill 272.400
Daphny stóll 99.400 Gyro stóll 152.000
Avignon leðursófi 208 cm / 308.600
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARD. 11 - 16LINAN.IS