Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Síða 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Síða 53
27.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Á laugardagskvöld kl. 22 hefst á Gamla Gauk við Tryggvagötu innrás tveggja athyglisverðra hljómsveita frá Bretlandi, The Activators sem er skipuð tíu manns og Kill Pretty sem kemur frá Manchester. 2 Útgáfu nýrrar bókar Lani Yamamoto, Stína stóra- sæng, verður fagnað í Sparki á Klapparstíg 33 klukkan 16 á laugardag. Börn eru sérstaklega vel- komin og boðið verður upp á vöfflur og heitt súkkulaði. Crymogea gefur bókina út og Vík Prjónsdóttir hann- aði „hlýja bókarkápu“. 4 Á sunnudag kl. 13, 14, 15 og 16 verður boðið upp á áhugaverða leiðsögn um Gljúfrastein - hús skálds- ins. Fjallað verður um húsmuni, hönnun og handverk á heimili Hall- dórs og Auðar Laxness. 5 Í Bíó Paradís hefst um helgina ný dagskrá þar sem sýndar eru vandaðar verð- launakvikmyndir fyrir börn og ungmenni á laugardögum og sunnudögum klukkan 16. Markmiðið er að auðga kvikmyndaframboðið fyrir aldurshópinn. Fyrst er sýnd teiknimynd frá 2012, Ernest og Ce- lestína, í nýrri talsetningu. 3 Á sunnudag klukkan 15 mun Anna Hallin leiða gesti um sýningu sína, Samleik“, í Ás- mundarsafni. Þar vinnur hún með einskonar samspil eigin verka og verka Ásmundar Sveinssonar frá fjórða og fimmta áratugnum. MÆLT MEÐ 1 Á dögunum var ytri vefur hins menningarsögulega gagnasafnsSarps opnaður formlega á vefslóðinni www.sarpur.is. Eru þaðumtalsverð tíðindi því þar með hafa allir aðgang að upplýs- ingum um meira en hálfa milljón muna, ljósmynda, listaverka, ör- nefna og fleira, frá söfnum landsins. Aðildasöfnin eru nú fimmtíu tals- ins, þar á meðal Þjóðminjasafn Íslands, Listasafn Íslands, Minjasafn Reykjavíkur, Mótorhjólasafnið og byggðasöfn víðsvegar um landið. Áhugasamir grúskarar geta ekki bara skoðað vefinn, heldur eru þeir hvattir til að senda ábendingar um myndir, muni, verklag sem tengist hlutum sem fjallað er um, og annað slíkt. Þá geta þeir líka pantað ljósmyndir á vefnum. Sveinbjörg Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarfélags Sarps, segir það merkileg tímamót að aðgangur hafi verið opnaður að öllum þessum upplýsingum; í dag séu yfir milljón færslur í Sarpi, þeim fjölgi með hverjum deginum, og hafi almenningur nú aðgang að um helmingi þeirra. „Það er svo margt þarna inni, myndasöfnin, listasöfnin, örnefni og ótal margt annað,“ segir hún. „Þetta er nútíminn, að allir þessir hlut- ir séu aðgengilegir almenningi á einum stað. Mörgum færslnanna fylgir líka áhugavert myndefni að skoða og átta sig á.“ Aðföngin á Sarpi spanna alla Íslandssöguna, frá landnámi til dags- ins í dag og gerir öflug leitarvél notendum kleift að leita að því sem vekur áhuga þeirra. Sarpur er rekinn í tengslum við landskerfi bókasafna og segir Sveinbjörg að það starfræki einnig vefinn Leitir.is sem auðveldi gest- um að leita í ólíkum gagnabönkum og vísi þeim leið, meðal annars inn á Sarp. „Það er ótrúlega margt skemmtilegt og áhugavert að finna á þess- um vef,“ segir hún og hvetur alla til að athuga hvað má finna í Sarpi. MENNINGARSÖGULEGT GAGNASAFN OPNAÐ ALMENNINGI Á NETINU Litið í söfnin í tölvunni Í SARPI ER OPINN AÐGANGUR AÐ UM HÁLFRI MILLJ- ÓN MUNA, LISTAVERKA OG HVER KYNS GAGNA Í ÓLÍKUM SÖFNUM LANDSINS. Í Þjóðminjasafni Íslands er urmull gripa í geymslum en hér er litið á gamlar altaristöflur. Nú er stór hluti þeirra sýnilegur í Sarpi. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins „Þetta er tími frumkvöðla sem vert er að skoða,“ segir Margrét Elísabet um sýninguna á íslenskri vídeólist í Hafnarhúsinu. Morgunblaðið/Einar Falur Dagskrá um vídeólist, með sýn- ingu myndbandsverka, fyr- irlestrum og pallborðs- umræðum, stendur yfir í Hafnarhúsi Listasafns Reykja- víkur nú um helgina. Er dag- skráin hluti verkefnisins „Nor- dic Outbreak“ sem fjallar um vídeólist á Norðurlöndum. Um er að ræða norrænt samstarfsverkefni sem leggur áherslu á að miðla nýjum mynd- bandsverkum valinna lista- manna á Norðurlöndunum og tengist það sýningunni sem fyr- ir er í húsinu, um íslenska víd- eólist áranna 1975 til 1990, á áhugaverðan hátt. Verkefnið „Nordic Out- break“ hófst í New York-borg í vor og ferðast á árinu til valinna menningarstofnana á Norð- urlöndunum. Streaming Mu- seum í New York hrinti verk- efninu af stokkunum en það er unnið í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur, Scandinavia House í New York og söfn í Helsinki, Kaupmannahöfn, Umeå, Stav- angri og Nuuk. Auk þessara sýningarstaða, hefur hluti verkefnisins þegar ferðast til São Paulo í Brasilíu, Jóhannesarborgar í Suður- Afríku og Sydney, Ástralíu. Myndbandsverkin, sem sýnd eru hér, eru valin af Birtu Guð- jónsdóttur sýningarstjóra, úr verkum er fimm sýning- arstjórar verkefnisins hafa áður valið saman. Á laugardag hefst dagskráin kl. 11-13 með pallborðs- umræðum um vídeólist í fortíð og nútíð. Kl. 13-17 er dagskrá myndbandsverka í fjölnotarými safnsins (10 myndbandsverk á 50 mín.). Kl. 17-24 er síðan dagskrá myndbandsverka utan- dyra, varpað í glugga bókasafns listasafnsins, sjávarmegin. Á sunnudag kl. 10-17 er dag- skrá myndbandsverka í fjöl- notarými og kl. 17-24 er dag- skrá myndbandsverka utandyra. DAGSKRÁ HELGUÐ NORRÆNUM MYNDBANDSVERKUM Í HAFNARHÚSINU UM HELGINA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.