Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Side 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Side 57
MET- SÖLU LJÓÐA- BÓK Félag íslenskra bókaútgefenda sendir reglulega frá sér metsölulista og er hann birtur hér á þessari síðu. Ey- mundsson sendir svo frá sér vikuleg- an metsölulista og þar ber telst til tíð- inda að í efsta sæti listans þessa viku situr nú ljóðabók. Þetta er bókin Ár- leysi alda eftir Bjarka Karlsson, sem nýverið hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið. Bókin kom út hinn 10. þessa mánaðar, náði öðru sæti listans vikuna eftir útgáfu og er nú kom- in á toppinn í annarri viku frá útgáfu. Bókin hefur slegið í gegn hjá lesendum og þriðju prentunar bókarinnar er beðið með óþreyju í verslunum. 27.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Vince Vaughn í skýjunum, fyrsta bók Halldórs Armands Ásgeirs- sonar, hefur fengið góðar við- tökur og er á metsölulista vik- unnar innan um bækur um lágkolvetnalífsstíl og aðrar lífs- stílsbækur. Í bókinni eru tvær sögur; Vince Vaughn í skýjunum og Hjartað er jójó. Sara er mennta- skólastelpa sem vinnur í sund- laug og Þórir er lottókynnir í sjónvarpinu. Bæði verða þau fræg, það er að segja hann verð- ur alræmdur og hún alþjóðleg stjarna um stundarsakir. Þessi fyrsta bók höfundar er alveg ágætlega heppnuð og verð- ur örugglega ekki hans síðasta. Góð frumraun Halldórs Armands Afmælisveislubókin geymir 123 hugmyndir að Disney-afmæl- isveislum. Í litskrúð- ugri bók er að finna hafsjó af uppskriftum, skreytingum og alls kyns hugmyndum fyrir afmælisveisluna. Þarna eru uppskriftir að tert- um, bollakökum, smá- kökum, pinnum, ávöxtum og brauði og sýnt er hvernig hægt er að búa til alls kyns skemmtilegar skreyt- ingar. Þið getið til dæmis fræðst um það hvernig á að baka regnboga – eða hauskúputertu, lært að bragðbæta popp og skreyta glös. Góðar leiðbeiningar og skýringarmyndir eru að sjálfsögðu í bók- inni sem auðvelda verkið. Þarna er líka að finna hugmyndir að gjöfum til veislugesta en þar á meðal eru skreyttar saltstangir, prinsessuöskjur og sjóræningjakistur. Þetta er bók sem er uppskrift að glæsilegri afnælisveislu sem gleður bæði afmælisbarn og gesti. FJÖLBREYTT AFMÆLISVEISLA Bókin Óvænt vinátta er metsölubók víða um heim, en þar eru sagðar 47 ótrúlegar sögur úr dýraríkinu og ljós- myndir varpa frekari ljósi á samskipti dýra sem eiga ekkert sameig- inlegt en bindast vin- áttuböndum. Vísinda- blaðamaðurinn Jennifer S. Holland segir sögurnar, en hún starfar hjá tímaritinu National Geographic og sérhæfir sig í lífvís- indum og náttúrusögu. Þarna er til dæmis sögð vináttusaga blinds labradors og katt- ar sem hafði fulla sjón og saga flóðhests og skjaldböku sem urðu vildarvinir og svo er saga nærsýnu dádýrshindarinnar og púðlutíkurinnar. Einnig eru þarna Afríkufíllinn og hrúturinn, górillan og kettlingurinn, snákurinn og hamsturinn ásamt fjölda annarra dýra sem fundu sér félaga í dýri sem þeir áttu ekkert sameiginlegt með. Vitanlega eru svo birtar hugljúfar myndir af þessum ólíklegu vinum sem una sér svo ósköp vel saman. BÓK FYRIR SANNA DÝRAVINI Api og dúfa á góðri stund. Vigdís Grímsdóttir á sér fjöl- marga aðdáendur sem bíða ætíð eftirvæntingarfullir eftir næstu bók hennar. Þeir munu örugglega ekki verða fyrir von- brigðum með nýjustu bók hennar sem vel má kallast skáldævisaga og ber titilinn Dísusaga – Konan með gulu töskuna. Þetta er afar tilfinn- ingarík og sérlega persónuleg saga um tvær persónur sem búa í sömu manneskjunni og eru ólíkar um margt. Tilfinningarík saga Dísu Gríms Íslenskar skáldsögur og heimspeki NÝJAR BÆKUR ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR KOMA NÚ ÚT HVER Á EFTIR ANNARRI. NÝ SKÁLDSAGA VIGDÍSAR GRÍMSDÓTTUR MUN EFLAUST HITTA Í MARK HJÁ AÐDÁENDUM HENNAR OG NÝR HÖFUNDUR KVEÐUR SÉR HLJÓÐS. HEIMSPEKIBÓKIN ER SVO BÓK SEM VONANDI RATAR TIL SEM FLESTRA ÞVÍ HÚN ER FRÓÐLEG OG SKEMMTILEG. Álfadís og grimmd gullsins er ellefta bók verðlaunahöfundarins Elíasar Snælands fyrir börn og unglinga. Hin unga valkyrja Hildur snýr aftur til Goðheima í leit að ætt sinni og uppruna og lendir í heiftarlegum átökum við illvirkja í Miðgarði. Á sama tíma ógnar yfirvofandi stríð Ása og Vana öllum heiminum. Tekst Hildi að breyta örlögunum og bjarga Goðheimum? Ævintýri ungrar valkyrju Það er ástæða til að mæla sérstaklega með Heim- spekibókinni en þar er sagt frá þekktustu hugsuðum ver- aldarsögunnar og gerð grein fyrir kenningum þeirra. Þetta er verulega aðlaðandi útgáfa, prýdd myndum og skýringum. Það er lítill vandi að sökkva sér ofan í þessa bók því hún er sneisafull af fróðleik og alveg einstaklega aðgengileg og skemmtileg aflestrar. Bók sem fróðleiks- fúsir lesendur ættu ekki að missa af. Heimspekibókin ómissandi * Ég hef alltaf ímyndað mér Paradís semeins konar bókasafn. Jorge Luis Borges BÓKSALA 7.-20. OKTÓBER Allar bækur Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Lág kolvetna ljúfmeti:100 léttir réttir Ulrika Davidsson 2 Nýir heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir 3 Heilsubók Jóhönnu: matur,lífsstíll, sjúkdómar JóhannaVilhjálmsdóttir 4 Lág kolvetna lífsstíllinnGunnar Már Sigfússon 5 FjallabókinJón Gauti Jónsson 6 Vísindabók VillaVilhelm Anton Jónsson 7 Vince Vaughn í skýjunumHalldór Armand Ásgeirsson 8 VettlingaprjónGuðrún S. Magnúsdóttir 9 AfmælisveislubókinKristín Eik Gústafsdóttir ritst. 10 LKL2 : lágkolvetnalífsstíllinnGunnar Már Sigfússon Íslensk skáldverk 1 Vince Vaughn í skýjunumHalldór Armand Ásgeirsson 2 MegasMagnús Þór Jónsson 3 Árleysi aldaBjarki Karlsson 4 I hate dolphinsHugleikur Dagsson 5 SkessukatlarÞorsteinn frá Hamri 6 DísusagaVigdís Grímsdóttir 7 RofRagnar Jónasson 8 HúsiðStefán Máni 9 Til EyjaEdda Andrésdóttir 10 EinvígiðArnaldur Indriðason MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.