Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Page 59
27.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Jakob og afætur fá hluta af húsgögnum. (9)
4. Brjálæði kisa yfir því að leggja of mikið á. (8)
9. Partar sem enda í skýlu. (11)
10. Dallas-safn getur byggt á svæði sem var selt. (10)
12. Ofan á mikið kemur kaffi. (11)
14. Söngur sunginn á mannfagnaði um málamiðlun. (10)
16. Alin af gulli færir tin til gripanna. (9)
17. Greip aðsjált fyrir tæknilegt. (8)
19. San Jose dalinn yfirgefur maður með skóinn. (9)
20. Hamingjusöm passi lítið afkvæmi sem er gefið fyrir góðgæti.
(12)
23. Efnisagnir og þættir af þeim. (6)
24. Lagagrein og hyggindi finnast í starfi. (12)
26. Staðall námstíma hjá hluta af Frökkum. (9)
28. Eftir vímu keyr ekki, Sigurður Ari, til einvalds. (12)
31. Hluti andlits á krá er frekar hlutinn af hálsinum. (7)
32. Við mörk lækja er drukkin undirförul. (10)
33. Sú sem er þreytt á því að vera heima finnur veg. (8)
34. Hluti plöntu og ofn sem starfsmaður hljómsveitar finnur. (8)
LÓÐRÉTT
1. Býsnast með kíló til að skapa aust-rómverskt. (8)
2. Dett af fjalli. (4)
3. Vegna sára ennþá gef sveigjanlega. (8)
5. Marghlunnfarið einhvern veginn vegna byssu. (14)
6. Ók aftur með te fyrir Letta með kjötstykki. (9)
7. Þökk. Inn fer hnappurinn. (7)
8. Við bjór og kjark kemur hryggð inn með sjávarganginum. (13)
11. Fús ómakar ljómandi mann. (8)
13. Pressan fær greini til að sýna konuna. (10)
15. Erlend kona ætti að sjá rifrildi. (8)
18. Tvíátt efldi Erling og vetrarsköpun hans. (11)
21. Ruglast vegna tilvísunar til dansks mannvirkis. (10)
22. Athuga sögn mjög vandlega. (10)
24. Teiknimyndapersóna sem sagt er að klappi kind. (8)
25. Kýs heilaga fjölskyldu og ríkt. (8)
27. Það gengur ágætlega að skrópa ekki. (7)
29. Afi fær klukku sem helsi. (5)
30. Stór endar á svallhátíð. (5)
Eftir fyrri helming Íslandsmóts skák-
félaga hélt haustmót Taflfélags
Reykjavíkur áfram og þar hélst stað-
an hvað varðar efsta sætið óbreytt.
Einar Hjalti Jensson vann sinn
stærsta sigur á ferlinum, hlaut 7 ½
vinning úr 9 skákum. Á Norðurlanda-
mótinu í skák sem haldið var í strand-
bænum Köge í Danmörku tefldu fyrir
Íslands hönd Henrik Danielsen og
Guðmundur Kjartansson. Henrik
hlaut 6 ½ vinning og varð í 3.-5. sæti
en Guðmundur fékk 5 ½ vinning og
varð í 15.-23. sæti. Norðurlandameist-
ari varð Svíinn Axel Smith.
Í lok síðustu viku hélt Víkinga-
sveitin til Rhodos án nokkurra lyk-
ilmanna en þó með Hannes Hlífar,
Björn Þorfinnsson og Davíð Kjart-
ansson innanborðs. Hjörvar Steinn
Grétarsson sem í haust gekk til liðs
við Víkingana valdi að tefla fyrir hitt
liðið sitt, skosku sveitina Dukes of
Kent. Þeir eru búnir að standa sig vel,
Hannes með 3 vinninga úr fjórum
skákum og Hjörvar og Björn með 2 ½
vinning.
En á þessu móti þar sem saman
koma margir af sterkustu skákmönn-
um heims hefur verið tefld ein furðu-
leg skák. Við nána skoðun finnst
varla rökréttur þráður. Samt eigast
við öflugir stórmeistarar sem hitta á
frábæra leiki. Morozevich sem er
meistari sjónhverfinga leikur einum
slæmum leik í byrjun og á undir högg
að sækja eftir það. Og tilþrifin eru
mögnuð:
EM Rhodos 2013
Alexander Morozevich – Viktor
Laznicka
Enskur leikur
1. g3 e5 2. c4 Rf6 3. Bg2 Rc6 4. Rc3
Bc5 5. e3 d5!? 6. cxd5 Rb4 7. Rf3!?
Býður riddaranum til d3! Hér var
öruggast að leika 7. d4 exd4 8. cxd4
Be7 o.s.frv.
7. … Rd3+ 8. Ke2 Rxd5 9. Da4+
Vitaskuld ekki 9. Kxd3 Rxe3+ og
vinnur.
9. … Bd7 10. De4 R5b4 11. a3 Bc6
12. Dc4 b5 13. Dg4 Rc2 14. Dxg7 Hf8
15. Ha2?
Moro átti ýmsar vænlegar leiðir í
byrjun, t.d. 12. Rxe5 eða jafnvel 13.
Rxb5. En þetta er fyrst beini afeikur
hans og héðan í frá á hann undir
högg að sækja. Best var 15. Hb1.
15. … b4! 16. axb4 Rcxb4 17. Ha5
Dd6 18. Dg4 Bb6 19. Ha3 Hd8 20.
Re4 De7?!
Missir af 20. … Dg6! 21. dxg6 fxg6
22. Rg5 h6 23. Rh3 g5 24. g4 Rc5 og
svartur á að vinna – „Houdini“.
21. Df5?!
21. Rh4! skorðar f6-peðið betur.
Baráttan í framhaldinu snýst um
„blokkeringar“ að hætti Nimzowitch
„og drottningunni hentar ekki vel
það hlutverk,“ skrifaði sá góði mað-
ur.
21. … f6 22. Rh4 Bb5 23. Kf3?!
Kóngurinn leggur í óvissuferð.
23. … Rc2 24. Hxd3 Hxd3 25. Dh5
Kd8 26. Rf5 Db4 27. Kg4 Hd7
28. Kh3 Bd3 29. Df3 c6 30. g4 h5
31. gxh5 Hh7 32. Reg3 Hfh8 33. e4
Dc4 34. Kh4 Kc7?!
Hann gat unnið með 34. ….
Hxh5+! 35. Rxh5 Be2 o.s.frv.
35. b3 Dxb3 36. Bb2 Dxb2 37.
Dxd3 Hd7 38. Df3 Rb4 39. Re3 Bxe3
40. dxe3 Rd3 41. Hd1?!
Hvítur gat leikið 41. Dxf6 sem
heldur jafnvægi.
41. … a5 42. Bh3 Hd6 43. Dg4
Hhd8 44. Dg7 Kb6 45. h6 Dxf2 46.
Hb1 Rb4 47. h7 Dxe3 48. Bf5 Hd2 49.
Hh1 Dg5 50. Dxg5 fxg5 51. Kxg5 a4
52. Kf6 a3 53. Be6 H2d6 54. Rf5
Hxe6 55. Kxe6 Hh8 56. Kxe5 a2 57.
Ha1 Hxh7 58. h4 Ha7 59. Re3 Kc5 60.
Hc1 Kb5 61. Ha1 Ha3 62. Rf5 Kc4 63.
h5 Rc2
Loks gat Laznicka andað léttar.
Þessi staða er auðunnin.
64. Hxa2 Hxa2 65. h6 Ha7 66. Kf6
Rd4 67. Re7 Ha1 68. h7 Hh1 69. Kg7
Re6 70. Kg8 Hg1 71. Kf7 Rg5 72.
Kg6 Rxh7 73. Kxh7 c5 74. Rf5 He1
- og Morozevich gafst upp. Stór-
kostleg baráttuskák.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Skrýtnar myndir á skákborði
Verðlaun eru veitt fyrir rétta
lausn krossgátunnar. Senda skal
þátttökuseðilinn með nafni og
heimilisfangi ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 3. nóv-
ember rennur út á hádegi föstu-
daginn 1. nóvember. Vinnings-
hafi krossgátunnar 27. október
er Cecil Haraldsson, Múlavegi 7,
Seyðisfirði. Hann hlýtur í verðlaun bókina Höndin
eftir Henning Mankell, Hólmfríður K. Gunn-
arsdóttir íslenskaði. Mál og menning gefur út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang