Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Qupperneq 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2013 D iego Costa, framherji Atlético Madrid, er einn heitasti framherji Evrópu og jafnvel heimsins þessa dagana. Hann varla getur reimað á sig takkaskóna án þess að skora. Costa fæddist í Brasilíu en fékk spænskt ríkisfang í júlí og þar sem hann hef- ur ekki spilað alvörulandsleik með Brasilíu getur hann valið á milli þess að spila með sínu fæðingarlandi eða Spáni. „Ég er búinn að taka ákvörðun. Ég er búinn að segja þeim sem ég þarf að segja en ég get ekkert sagt opinberlega alveg strax,“ sagði þessi magnaði fram- herji. Varnarmenn hlakka lítið til að mæta Costa því hann beitir ekki alveg þekktum aðferðum að koma mönnum úr jafnvægi. Fræg er viðureign hans við Sergio Ramos úr Real Madrid á síðustu leiktíð. Ramos byrjaði að rífa kjaft en Costa er alinn upp í fátækrahverfum Sao Paulo og kallar ekki allt ömmu sína. Til að svara Ram- os beitti hann ekki munninum heldur nefinu. Snýtti hann sér duglega í hanskana og dúndraði slummunni svo í Ramos. Dómarinn tók ekkert eftir atvikinu en Ramos bætti í svívirðingar sínar enda ósáttur. Þá tók Costa aftur til óspilltra málanna og snýtti sér bara aft- ur í hanskann, nú þegar Atlético átti aukaspyrnu, og lét vaða í Ramos. Þá varð fjandinn laus. Leikmenn Real hópuðust að dómaranum og vildu fá rautt spjald á Costa, sem kippti sér lítið upp við lætin í þessum ríku drengjum frá Real. Svona bara spilar hann. Lærði að spila fótbolta með engum bolta „Ég ólst upp við olnbogaskot og annað sem þykir ljótt að sjá í fótboltanum sem eðlilegan hlut. Ég fór ekki í neina akademíu eða neitt slíkt. Skólinn minn var gat- an,“ sagði Costa við blaðiði El Pais á Spáni og rifjaði upp fortíðina og sína löngu leið á toppinn. Hann er fæddur í Lagarto, litlu fátækrahverfi í Sao Paulo í Brasilíu, þar sem var ekki leikið á grasi eða með net í mörkum og varla með neinn bolta. Bara blóð, svita og tár. „Fjölskylda mín var ekki fátæk eða svöng en við áttum erfitt. Ég lærði að spila fótbolta á götunni með engan fótbolta. Oftast þurftum við að búa til boltann, skipta í lið og spila.“ Þegar Wayne Rooney var að skrifa undir sinn fyrsta atvinnumannssamning hjá Everton og Radae- mel Falcao að spila á HM U17 ára liða var Diego Costa að smygla fölsuðum varningi til Paragvæ til að hafa smápening til að geta boðið stelpu á stefnumót. Hann lifði sem flakkari en æfði sig á hverjum degi. Með Rayo Vallecano skoraði Costa níu mörk í 16 leikjum.Costa skoraði sigurmarkið gegn Real Madrid í borgarslagnum um Madríd. Snýtingin fræga þar sem Costa henti hori á Ser- gio Ramos, varnarmann Real Madrid. Götu- listamaður Útsendarar Sport- ing Braga frá Portúgal sáu hann í leik sem hann átti ekkert að spila. Hann var í leikbanni en sætti sig ekki við bannið og mætti í leikinn. Spilaði frábærlega og Braga-menn buðu honum samning á staðnum. „Ég réð bara ekki við mig. Ég ber enga virð- ingu fyrir andstæðingum mínum, ekki neina. Ef ég hefði fengið fót- boltauppeldi hefði það kannski hjálpað mér en ég meina; svona er ég.“ Ekki gekk Costa vel í byrjun og hann var mikið lánaður til annarra klúbba. Þar fékk hann 63 gul spjöld og fjögur rauð, takk fyrir. En hann er að læra smátt og smátt að nýta götusnilldina sér í hag og er orðinn hálfgerður götu- listamaður miðað við markið hans í Meistaradeild- inni í vikunni. Breyttist við rauða spjaldið frá Kidda Jak. í Tékklandi Með mikið skap að vopni gat skapið líka verið hans versti óvinur. Diego Simeone, þjálfari Atlético, sem var nú ekkert lamb að leika sér við sjálfur, gerði sér grein fyrir því og reyndi að beisla orkuna sem var í Costa með misjöfnum árangri. Costa hins vegar brást liðsfélögum sínum 6. desember á síðasta ári í Evrópu- deildarleik gegn Viktoria Plzen þar sem hann var rekinn af velli fyrir að skalla leikmann Viktoria. Kristinn Jakobsson dæmdi þann leik og sá atvikið ekki nógu vel, spjallaði við Gunnar Jarl Jónsson, sem gegndi hlutverki sprota- dómara, sem sá at- vikið betur, og sagði Kristni hvað hefði gerst. Krist- inn gerði það eina rétta í stöðunni; reif upp rauða kortið. Þá fékk ekki aðeins Simeone DIEGO COSTA ER EKKERT LAMB AÐ LEIKA SÉR VIÐ. HANN ER HÁLFGERÐUR DUNCAN FERGUSON, NEMA MEÐ TÆKNI. HANN ER EKKERT Á TWITTER AÐ TALA VIÐ AÐDÁENDUR ÞVÍ HONUM ER SAMA UM ALLT OG ALLA. HANN ÓLST UPP VIÐ MIKLA FÁTÆKT EN GETUR NÚNA VALIÐ Á MILLI ÞESS AÐ SPILA MEÐ SPÁNI OG BRASILÍU. Snýtarinn af götunni Hvort velur hann Spán eða Brasilíu? Fótboltafíklar bíða spenntir eftir ákvörðun hans. AFP Skjáskot/youtube „Það var gaman að kljást við Falcao. Hann spilaði af heil- indum og leitaði aldrei að snertingu – annað en Costa.“ Sergio Ramos um Diego Costa Boltinn BENEDIKT BÓAS benedikt@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.