Morgunblaðið - 30.11.2013, Page 4

Morgunblaðið - 30.11.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Tengiliðahópur sem Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra umhverfis- og auðlindamála, skipaði um aðgerðir í Kolgrafafirði, samanstendur af fulltrúum tólf stofnana auk ábúenda á býlinu Eiði í Kolgrafafirði. Að sögn Huga Ólafssonar, skrif- stofustjóra hjá umhverfisráðuneyt- inu, fór umhverfis- og auðlindaráðu- neytið með ákvörðunarvald í aðgerðum. „Ráðherrar taka ákvarð- anir um aðgerðir, en settur var hóp- ur ráðuneytisstjóra til að fara yfir tillögur, að þessum dýru aðgerð- um,“ segir Hugi. Fulltrúar í tengiliðahópnum voru í fyrstu frá umhverfis- og auðlinda- ráðuneytinu, atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneyti, Hafrannsókna- stofnun, Vegagerðinni, Náttúrustofu Vesturlands, Mat- vælastofnun, Grundarfjarðarbæ, Heilbrigðiseftirliti Vesturlands og Fiskistofu. Síðar komu Landhelg- isgæslan, almannavarnadeild Rík- islögreglustjóra og Nýsköp- unarmiðstöð að málinu. Farið eftir lögum Að sögn Huga eru verkefnin tengd ástandinu í Kolgrafafirði framkvæmd af einstökum aðilum sem bera ábyrgð á þeim samkvæmt lögum eða sérstökum ákvörðunum: Umhverfisstofnun ber þannig ábyrgð á viðbragðsáætlun varðandi hreinsun eftir síldardauða, Hafrann- sóknastofnun sér um vöktun á síld- arstofninum, atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytið setur reglur um veiðar og Fiskistofa framfylgir þeim, Hafró og Landhelgisgæslan sáu svo um tilraunir til að fæla síld- ina úr firðinum og notuðust við hvellhettur en aðgerðirnar eru sam- hæfðar af almannavarnadeild rík- islögreglustjóra. Hlutverk Mat- vælastofnunar var að vera til taks ef mikið af síld dræpist og finna út úr því hvort hægt væri að nýta hana með einhverjum hætti. Fulltrúi Ný- sköpunarmiðstöðvar fylgdist með. Átti ekki von á svona mörgum Í fyrradag voru allir sem vinna að lausn vandans boðaðir á fund á bæn- um Eiði. Að sögn Guðrúnar Lilju Arnórsdóttur, bónda á Eiði, voru um 30 manns á fundi tengiliðahópsins í fyrradag. Hún segist hafa átt von á mun minni hópi. „Það er til siðs í sveitinni að það er alltaf eitthvað til með kaffinu [....] en við vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið þegar við sáum svona marga koma,“ segir Guðrún. Bakkelsið hafi þó ekki klár- ast. „Ég á alltaf nóg,“ segir Guðrún og hlær við. „Ég var eldsnögg og henti í nokkrar jólakökur í viðbót. Ég átti að vísu ekki rúsínur, þannig að ég varð að notast við súkku- laðirúsínur. Ég hugsa að ég noti þær hér eftir. Það er ótrúlega gott að nota súkkulaðirúsínur í jólaköku,“ segir Guðrún. Þurfti að grípa til súkku- laðirúsína á aðgerðafundi Morgunblaðið/Árni Sæberg Smalað Hvellhettur fæla vissulega síldina, en ekki alltaf í rétta átt.  12 stofnanir hafa komið að aðgerðum í Kolgrafafirði Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Við viljum breyta tungutakinu í kringum einelti. Hætta að tala um börn sem lögð eru í einelti sem þol- endur heldur sem virka gerendur í eigin lífi og sigurvegara,“ segir Kristín Lilliendal, aðjunkt við menntavísindasvið við Háskóla Ís- lands. Hún er í sjö manna hópi sem hef- ur ýtt úr vör verkefninu Ást gegn hatri. „Er þörf fyrir nýja hugsun í eineltismálum?“ nefnist erindi sem hópurinn samdi og flutt var af Önnu Huldu Einarsdóttur grunnskóla- kennara og Björgu Jónsdóttur á ráð- stefnu um íslenskar æskulýðsrann- sóknir 2013 í gær. Erindið fjallaði um verkefnið Ást gegn hatri. Kveikjan að verkefninu er saga feðginanna Hermanns Jónssonar og Selmu Bjarkar Hermannsdóttur. Selma fæddist með skarð í vör og skrifaði eftirminnilega grein sem birtist víða í fjölmiðlum. Þar lýsir hún upplifun sinni af langvarandi einelti sem hún varð fyrir vegna út- lits. Eftir greinarskrifin hefur hún ásamt föður sínum Hermanni farið í þrjá grunnskóla þar sem hún hefur sagt nemendum frá reynslu sinni og faðir hennar rætt við foreldra. Kristín, Anna Hulda og Björg til- heyra hópi sjö kvenna sem hittast reglulega og ræða um skólamál en allar hafa þær víðtæka reynslu af öllum skólastigum og fjölbreytta menntun á sviði skólamála. „Þegar við heyrðum sögu Selmu Bjarkar ákváðum við að leggja okk- ar af mörkum. Úr varð þetta verk- efni með þeirri nálgun að breyta ósigrum í sigra. Með öflugum val- deflandi stuðningi, hvatningu og eft- irfylgni er börnum hjálpað að takast á við einelti með samskiptatækni sem undirstrikar styrk þeirra sjálfra en veikleika þeirra sem leggja í ein- elti,“ segir Kristín. Áherslurnar í verkefninu eru jafn- framt að líta á gerendur sem þolend- ur. „Börn sem leggja aðra í einelti þurfi á hjálp að halda. Það þarf að hjálpa þeim að komast út úr þessu heguðunarmynstri með reisn,“ segir Kristín. Einelti er fyrst og fremst viðhorf. Vinna þarf með viðhorfin inni á heimilum barna þar sem frum- ábyrgð á uppeldi þeirra liggur. Skól- inn getur verið mikilvægur stuðn- ingur við foreldra í þessu samhengi. „Það er kjarninn í þessu, að fá for- eldra til að tala við börnin sín,“ segir Kristín og bendir á að samfélagið allt þurfi að vera vakandi gagnvart einelti. Hópurinn bendir jafnframt á mik- ilvægi þess að báðir foreldrar séu virkir í umræðunni og aðgerðum gegn einelti og vilja hvetja feður til að láta enn frekar til sín taka í þess- um málum. Við viljum sjá meira af þeim,“ segir Kristín og segir verk- efnið Ást gegn hatri eina leið af mörgum sem hægt er að fara í aðgerðum gegn einelti. Verða virkir gerendur í eigin lífi  Ást gegn hatri er verkefni gegn einelti  Saga Selmu Bjarkar Hermannsdóttur var kveikjan  Vilja breyta tungutaki í kringum einelti  Vilja virkja fleiri feður til að berjast gegn einelti Einelti „Börn sem leggja aðra í einelti þurfi á hjálp að halda. Það þarf að koma þeim út úr þessu hegðunarmynstri,“ segir Kristín Lilliendal, aðjúnkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Foreldrar gegni lykilhlutverki. Ást gegn hatri » Vilja breyta tungutakinu í umræðu um einelti þar sem lit- ið er á þolendur sem gerendur í eigin lífi. » Kveikjan að verkefninu var saga Selmu af einelti sem hún varð fyrir vegna útlits. » Feður láti eineltismál meira til sín taka. » Mikilvægt að vinna með við- horf barnanna inni á heim- ilunum. Morgunblaðið/Styrmir Kári Alþýðusamband Íslands (ASÍ) áformar að skora á fyrirtæki og op- inbera aðila að undirrita yfirlýsingu um þátttöku í átaki um verðstöðug- leika til að fyrirbyggja háa verð- bólgu. Þetta kemur fram í leiðara Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, í nýjasta tölublaði fréttablaðs sam- bandsins. Það fæli það í sér að fyr- irtækin hétu því að hækka ekki vöru- verð eða verðskrár. Mikilvægt er að fyrirtæki og opin- berir aðilar sýni launafólki að þeir séu tilbúnir að halda aftur af verð- hækkunum á næstu mánuðum, skrif- ar Gylfi. Yfirlýsingar fyrirtækjanna yrðu birtar á vefsíðunni vertuaverdi- .is sem ASÍ heldur úti. „Við erum að undirbúa þetta að gefa fyrirtækjum möguleika á að koma að þessu. Við ætlum að reyna að mynda vettvang fyrir fyrirtækin og ég held að það skipti miklu máli í aðdraganda þess að ná saman í samningum að þau taki þátt í þessu,“ segir Gylfi í samtali við Morgunblaðið. Hann bendir á að vegna samkeppn- islaga eigi ASÍ auðveldara með að hafa frumkvæði að slíku verðstöð- ugleikaátaki en Samtök atvinnulífs- ins eða fyrirtækin sjálf. Ýmis sveitarfélög hafa þegar ákveðið að draga til baka hækkanir á verðskrám sínum, þar á meðal Reykjavíkurborg, og í gær tilkynnti stjórn Strætó að fyrirhugaðri far- gjaldahækkun yrði frestað. Gylfi gagnrýnir að forsætis- og fjármála- ráðherra hafi ekki gefið þessu nægan gaum, en það telji hann mikilvægt. Boðar átak um verðstöðugleika  Fyrirtækin haldi aftur af hækkunum Gylfi Arnbjörnsson Slæmt veður setti strik í reikn- inginn í aðgerðum í Kolgrafa- firði í gær að sögn Þorsteins Sigurðssonar hjá Hafrann- sóknastofnun. Nokkrar hvell- hettur voru sprengdar yfir dag- inn til að fæla síldina út úr firðinum. Undir lok dags hafði torfan klofnað í tvær og reyndu menn að fæla þá sem var nær brúnni út. Það tókst þó ekki bet- ur til en svo að hún hörfaði lengra inn í fjörðinn. Taka á ákvörðun um framhald aðgerða í firðinum á fundi snemma í dag. Ráku síldina í öfuga átt VEÐRIÐ TRUFLAÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.