Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Sala á nýjum bílum hefur dregist saman núna á síðari hluta ársins og bílaumboðin hafa flest haldið aftur af sér í hækkunum. Benedikt Eyjólfs- son, eigandi Bílabúðar Benna, segir þó enga undirliggjandi þörf vera hjá þeim á verðhækkun nýrra bíla, enda gengið verið nokkuð stöðugt að und- anförnu. Chevrolet hafi hjálpað fyr- irtækinu við að bjóða samkeppnis- hæft verð. „Við höfum verið með mjög gott verð, eins og á Chevrolet Spark á tæpar 1,8 milljónir, sem er mest seldi bíllinn okkar á árinu. Ágæt sala hefur verið í millistærð á bílum en hægst á jeppunum,“ segir Benedikt en bætir við að álögur ríkisins á bílum og dekkjum séu alltof miklar. Ríkið þurfi að lækka tolla á þessum varningi. Hæg endurnýjun flotans „Annars kvörtum við ekki yfir árinu þó að salan hafi almennt verið minni en menn bjuggust við,“ segir Benedikt en Bílabúð Benna seldi 600. bílinn á árinu í þessari viku. Allt árið í fyrra seldi fyrirtækið 467 nýja bíla þannig að aukningin nú þegar er orð- in 28%. Páll Þorsteinsson, upplýsingafull- trúi Toyota á Íslandi, segir gengi gjaldmiðla hafa veruleg áhrif á verð bíla. Toyota greiði sinn innflutning með evrum en síðasta verðbreyting hjá umboðinu var 5% verðlækkun í apríl sl. Páll segir að síðan þá hafi evr- an hækkað þó nokkuð og í raun sé ástæða til að hækka verð nú. „Við höfum samt ákveðið að hækka ekki og vonum að fleiri vinni með þeim hætti í þeirri von að halda megi aftur af verðbólgunni,“ segir Páll sem telur ómögulegt að spá um áhrif að- gerða ríkisstjórnarinnar á bílasölu. Hann segir endurnýjun bílaflota landsmanna alltof hæga. Meðalaldur- inn sé kominn í 12,5 ár en hann megi ekki vera hærri en 7-8 ár. „Gamall bílafloti þýðir mun meiri eldsneytiseyðsla því stór munur er á eyðslu nýrra bíla og þeirra sem eru eldri. Þar með yrði mengun minni og ekki þyrfti að eyða eins miklum gjald- eyri til eldsneytiskaupa. 40% samdráttur í nóvember Egill Jóhannsson, forstjóri Brim- borgar, bendir á að gengið hafi verið þokkalega stöðugt undanfarnar vikur miðað við oft áður. „Evran hefur þó aðeins veikst síðan í lok sumars og við höfum að mestu tekið það á okkur. Ef gengið helst áfram stöðugt þá erum við ekkert að fara að hækka verð á bílum. Evran má þó ekki veikjast mikið til viðbótar án þess að við þurfum að hækka eitt- hvað. Síðan eru alltaf einhverjar hækkanir erlendis, eins og þegar skipti verða á árgerðum. Við megum ekki gleyma því að það er líka verð- bólga í útlöndum,“ segir Egill, sem vonast til að bílasala dragist ekki meira saman en orðið er. Nóvember hafi verið mjög slæmur og það megi helst skrifa á óvissuna í efnahagslífi þjóðarinnar. Svo virðist sem allir hafi ákveðið að fresta sínum fjárfestingum þar til stjórnvöld hafa kynnt sínar til- lögur í skuldamálum. „Mér sýnist stefna í 40% samdrátt í nóvember á bílamarkaðnum hér heima, miðað við sama mánuð í fyrra. Heildarmarkað- urinn í september fór niður um 19% og um 9% í október. Það er því ekki úr háum söðli að detta,“ segir Egill. Morgunblaðið/Ómar Halda aftur af hækkunum  Innflutningur á nýjum bílum hefur víðast dregist saman í ár  Bílaumboðin með undirliggjandi þörf fyrir verðhækkun  Óvissa um áhrif skuldaleiðréttingar Verði sú lækkun á áburðarverði sem SS hefur tilkynnt almenn á mark- aðnum munu sparast 200-300 þúsund krónur í áburðarkaupum meðalkúabús. Er þetta fyrsta verð- lækkun á áburði í mörg herrans ár. „Ég fagna því mjög að áburðarverð skuli vera að lækka. Áburður er stór útgjaldaliður hjá bændum og þetta er því virkilega jákvætt,“ segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bænda- samtaka Íslands. 8-12% verðlækkun Sláturfélag Suðurlands er fyrsti áburðarsalinn sem birtir verðskrá sína í vetur en félagið flytur inn Yara- áburð. Köfnunarefnisáburður lækkar um 12% og algengar þrígildar áburð- artegundir lækka um 8-11% en aðrar minna. Verðskráin gildir til áramóta en er með fyrirvara um breytingar á gengi. Áburður er stór kostnaðarliður í búrekstri. Hjá kúabændum hleypur hann á milljónum króna. Hjá bónda sem kaupir 25-30 tonn af áburði á ári lækkar reikningurinn um 200-300 þúsund krónur. helgi@mbl.is Meðalbúið sparar 200- 300 þúsund  SS lækkar verð á tilbúnum áburði Heyin verða ódýr- ari á næsta sumri. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Arion banki hefur eignast Hótel Ís- land sem var dótturfélag Hótels Sögu. Er það hluti af samningum um skuldir Hótels Sögu sem er í eigu Bændasamtaka Íslands. Skuldir Hótels Sögu hækkuðu mjög í efnahagshruninu 2008. Lengi hefur verið unnið að samningum um afskrift hluta skuldanna. „Það hefur tekið of langan tíma að greiða úr þessu,“ segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, en samningar eru nú í höfn. Hótel Saga tók við rekstri Hótels Íslands eftir að Búnaðarbankinn eignaðist það hótel og keypti síðan félagið. Hótel Ísland fer nú aftur til bankans með skuldum. Sindri segir ekki hægt að segja til um það á þess- ari stundu hvað bankinn felli niður miklar skuldir enda fari það eftir því hvernig unnið verður úr eignunum sem skipta um hendur. Auk Hótels Íslands kaupir Arion banki það 80 fermetra pláss á jarðhæð Bænda- hallarinnar sem bankinn notar fyrir útibú sitt. Sindri segir að Hótel Saga sé vel rekstrarhæft félag eftir þessa end- urskipulagningu. Það sé síðan næsta búnaðarþings að ákveða hvort hót- elið verði selt eða Bændasamtökin reki það áfram. Laust skrifstofupláss Bændasamtökin hafa verið að þjappa starfsemi sinni saman í skrif- stofuhúsnæðinu á 3. hæð Bændahall- arinnar. Þar verður laust pláss sem ætlunin er að leigja út. Bændahöllin reis fyrir liðlega fimmtíu árum. Þegar forverar Bændasamtaka Íslands ákváðu að byggja nýjar skrifstofur var það gert af myndarskap, á góðum stað í Reykjavík, og um leið byggt hótel fyrir bændur sem heimsækja höfuð- borgina. Mikill skortur var þá á gisti- rými í borginni. Hótel Saga (nú Rad- isson Blu) varð fínasta hótel borgarinnar og þar hafa þjóðhöfð- ingjar gist og margir af þekktustu gestum landsins. Arion banki eignast Hótel Ísland á ný  Næsta búnaðarþing ákveður hvort Hótel Saga verður seld Morgunblaðið/Eggert Bændahöllin Hótel Saga hefur verið eitt af fínustu hótelum Reykjavíkur í gegnum tíðina og þar var lengi vinsæll skemmtistaður. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreina- sambandsins, segir bílaumboðin hafa haldið aftur af sér í hækkunum á nýjum bílum. Undirliggjandi þörf á hækkunum sé til staðar en við núverandi markaðs- aðstæður sé ekki hægt að hækka verð. „Markaðurinn er þannig að hann tekur ekki við því verði sem er í dag. Þess vegna er enginn að fara út í hækkanir, menn eru bara að þreyja þorrann,“ segir Özur, sem telur aðspurður ómögulegt að spá í áhrif fyrirhug- aðra aðgerða stjórnvalda í skuldamálum heimilanna. „Það eina sem við vitum er að við erum komin með elsta bílaflota í Evrópu. Það eru mörg stór ef í þessum bransa hjá okkur og vantar einhverjar skýrar línur. Væntingar til þessa árs hafa algjörlega brugðist, við áttum von á hægum bata en það hefur því miður ekki gerst,“ segir Özur. Með elsta bílaflota í Evrópu FRAMKVÆMDASTJÓRI BÍLGREINASAMBANDSINS Özur Lárusson tofrandi jolagjafir Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com .. ‘ ALMOND GJAFAKASSI Jólatilboð: 6.990 kr. Andvirði: 9.680 kr. Handkrem 30 ml - 1.250 kr. | Líkamskrem 100 ml - 5.100 kr.* Sturtuolía 250 ml - 2.730 kr. | Skrúbbsápa 50 g - 600 kr. *E kk is el t íl au sa sö lu . Aleksandar Knezevic, hjálp- arstarfsmaður Rauða krossins á Íslandi, heldur til neyðarstarfa á Filippseyjum í dag og verður þriðji fulltrúinn sem RKÍ sendir á hamfarasvæðið. Þetta er fyrsta verkefni Knezevic fyrir RKÍ og verður hann við störf í sjö vikur. Þrír fulltrúar frá RKÍ á Filippseyjum Aleksandar Knezevic
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.