Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRViðskipti  Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 Stuttar fréttir ... ● Eir hjúkrunarheimili hefur verið veitt heimild til að leita nauðasamninga. Í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu kemur fram að þeir sem telji sig eiga samn- ingskröfur á félagið skuli lýsa þeim inn- an fjögurra vikna. Málefni Eirar hafa mikið verið til um- fjöllunar síðasta ár, bæði vegna rekst- urs félagsins og möguleika á að íbúar muni tapa töluverðum fjármunum. Nánar á mbl.is Eir í nauðasamninga ● Verðbólga jókst á milli mánaða í nóvember og fór úr 0,7% í október- mánuði í 0,9% á evrusvæðinu, sam- kvæmt Eurostat, Hagstofu ESB. Þetta er 0,1 pró- sentustigi meiri verðbólga en reiknað hafði verið með, samkvæmt því sem Bloomberg- fréttaveitan greindi frá í gær. Spá Blo- omberg gerði ráð fyrir 0,8% verð- bólgu. Þeir liðir sem juku verðbólgu á evru- svæðinu eru sagðir hafa verið verð- hækkanir á matvöru, áfengi og tóbaki. Þetta er tíundi mánuðurinn í röð sem verðbólga mælist undir 2% verðbólgu- markmiðum evrópska seðlabankans. Verðbólga á evrusvæð- inu 0,9% í nóvember ● RA eignir ehf., dótturfélag VBS fjár- festingabanka, sem varð gjaldþrota um mitt ár 2011 skildi eftir sig rúmlega 555 milljóna gjaldþrot. Félagið hélt utan um eignir á Oddeyrartanga á Akureyri. Í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu kemur fram að aðeins hafi fengist 0,045% upp í almennar kröfur, eða 251 þúsund af 555.788.743 krónum. Kröfur í búið voru aðallega frá VBS fjárfestingabanka, en einnig voru aðrir minni aðilar. Á árunum fyrir hrun voru uppi hugmyndir um að breyta Oddeyr- artanga og koma þar upp íbúðabyggð. 555 milljóna gjaldþrot vegna Oddeyrartanga Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Hagnaður fasteignafélagsins Regins, sem skráð er í Kauphöll og á m.a. Smáralind, var töluvert meiri en greiningardeildir Arion og IFS reiknuðu með en nokkuð minni en greiningardeild Íslandsbanka bjóst við. Afkoman var betri en talið var vegna matsbreytinga á fjárfestingareignum, sem að sögn Arion skýrist að miklu leyti af lækkun fjármagns- kostnaðar í Regin atvinnuhúsnæði og auknum tekjum. Rekstrarhagnaður (EBITDA) félagsins var hins var í takt við væntingar greiningardeilda. Hagnaður Regins, sem var 557 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi, var 127-139% prósentum yfir spám greiningardeildanna. En greining Íslands- banka vænti 809 milljóna króna hagnaðar, sam- kvæmt gögnum sem Morgunblaðið hefur undir höndum, en hún bjóst við að fjárfestingareignir myndu hækka um 769 milljónir króna á fjórðungn- um, en raunin varð 409 milljónir. Arion reiknaði ekki með matsbreytingum á tímabilinu en IFS spáði að þær myndu nema 42 milljónum króna. Umfang Regins hefur vaxið nokkuð milli ára Umfang Regins hefur vaxið þónokkuð á milli ára. Leigutekjur félagsins hækkuðu um 33% milli ára og námu 1.066 milljónum króna í lok fjórðungsins. „Fjárfestingareignir í lok þriðja ársfjórðungs námu 36,9 milljörðum króna og hafa vaxið um 23% að verðmæti á rúmu ári – 20% ef litið er framhjá mats- breytingum,“ segir í nótu frá greiningardeild Arion banka sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Þar segir að áætlanir Regins hafi gengið nokkuð vel eftir. „Það er mjög mikilvægt sérstaklega þegar félag hefur færst jafn mikið í fang og Reginn með sínum ytri vexti,“ segir í nótunni. Að sögn greiningardeildarinnar má á næsta fjórðungi eiga von á áhrifum af hinu nýkeypta fast- eignafélagi Vist, sem á húsnæði t.d. í Ármúla, á Eg- ilsstöðum og Ísafirði, og kaupum á húsnæði sem oft er kennt við Reykjavíkurapótek í reikningum fé- lagsins. Í byrjun næsta árs verður fasteignafélagið Klasi, sem meðal annars leigir Árvakri og Voda- fone, væntanlega hluti af Regin. Ekki náðist í Helga S. Gunnarsson, forstjóra Regins, við vinnslu fréttarinnar. Hagnaður Regins vel yfir spám greiningardeilda Morgunblaðið/Ernir Smáralind Fasteignafélagið Reginn á Smáralind. Hagnaður Regins á fjórðungnum var 127-139% yfir spám greiningardeilda Arion og IFS.  Matsbreytingar á eign- um skipta þar sköpum Færist nær markmiði » Eignasamsetning Regins eftir kaup á Klasa færist nær markmiðum Regins. » Hlutfall verslunarhúsnæðis í eignasafni fé- lagsins mun nema rúmum 40% og hefur lækkað um 14% á rúmu ári. Markmið er að hlutfallið sé 30-35%. » Stærsti núverandi leigutaki Klasa fasteigna er Vodafone með um 26% af leigutekjum. Í sameinuðu félagi munu leigutekjur Vodafone nema um 4-5% af leigutekjum Regins. » Ávöxtunarkrafan (e. yield) við kaup á Klasa er 7% brúttó. Ísland er meðal þeirra ríkja sem hafa samþykkt að veita upplýsingar um bankareikn- inga Breta en alls hafa bresk stjórnvöld gert slíka samninga við 37 ríki en þetta er liður í baráttunni við skattaundanskot. Á vef Telegraph er fjallað um samningana en í gær var tilkynnt um samkomulag við Lúxemborg, Liechtenstein, Kólumbíu, Grikk- land, Ísland og Möltu. Telegraph hefur eftir fjár- málaráðherra Bretlands, George Osborne, að ríkisstjórnin sé með þessu að auka gegnsæi og upplýs- ingaflæði líkt og er á stefnuskrá átta helstu iðnríkja heims. Upplýsa um bankareikn- inga Breta  Bretar hafa gert samning við 37 ríki George Osborne Fyrstu tíu mánuðina 2013 voru fluttar út vörur fyrir 508,9 millj- arða króna en inn fyrir 457,6 millj- arða króna fob (493,6 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöru- skiptum við útlönd sem nam 51,3 milljörðum króna, reiknað á fob- verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 64,1 milljarð á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfn- uðurinn var því 12,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður, segir í frétt á vef Hagstofu Ís- lands. Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 55,0 milljarða króna og inn fyrir 47,9 milljarða króna fob (51,8 milljarða króna cif). Vöru- skiptin í október, reiknuð á fob- verðmæti, voru því hagstæð um 7,1 milljarð króna. Í október 2012 voru vöruskiptin hagstæð um 15,1 millj- arð króna á gengi hvors árs. Fyrstu tíu mánuði ársins 2013 var verðmæti vöruútflutnings 24 milljarðar eða 4,5% lægra á gengi hvors árs en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,4% alls út- flutnings og var útflutningur þeirra 5,3% minni en á sama tíma árið áð- ur. Sjávarafurðir voru 44,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,0% lægra en á sama tíma árið áð- ur. Afgangurinn minnk- ar um 12,8 milljarða Afgangur Fyrstu tíu mánuðina 2013 voru fluttar út vörur frá Íslandi fyrir 508,9 milljarða króna en inn til landsins fyrir 457,6 milljarða króna. Morgunblaðið/ÞÖK Eitt þúsund Innova-hugbúnaðar- kerfi Marel hafa verið seld. Sala kerfanna hefur aukist jafnt og þétt frá árinu 2008 þegar Innova var kynnt til sögunnar og nú er svo komið að eitt eða fleiri kerfi eru seld og sett upp á hverjum virkum degi, samkvæmt því sem fram kem- ur í fréttatilkynningu frá Marel. „Innova er hugbúnaður Marel sem hjálpar matvælaframleiðendum að hámarka verðmæti og nýtingu hráefnisins í gegnum allt vinnslu- ferlið, allt frá því að tekið er á móti hráefninu og til vöruafhendingar. Innova-hugbúnaðurinn getur verið allt í senn, upplýsinga-, pöntunar-, stýri- og samhæfingarhugbúnaður sem gerir alla vinnslu skilvirkari auk þess sem rekjanleiki er tryggð- ur jafnt í stórum sem litlum fram- leiðslufyrirtækjum. Margir af helstu matvælafram- leiðendum hér á landi hafa sett upp Innova-kerfi í vinnslum sínum og hefur reynslan af þeim verið mjög góð,“ segir í tilkynningu. Þar kemur jafnframt fram að margir af stærstu matvælaframleið- endum í heimi í kjöti, fiski, kjúklingi og fullvinnslu nota Innova-hugbún- aðinn. Þá hafi Marel gert samkomu- lag um afhendingu á Innova-kerfi til að tryggja rekjanleika í gegnum öll sláturhús í Úrúgvæ. Í Bretlandi séu gæðaupplýsingar um dýr, sem hef- ur verið slátrað í Bretlandi skráðar í miðlægu Innova-kerfi. Fram kemur í tilkynningu að Innova er fimmta kynslóð kerfis- hugbúnaðar sem þróaður er af Mar- el. Marel hefur selt þúsund Innova-hugbúnaðarkerfi Innova Einhamar Seafood í Grinda- vík notar Innova-hugbúnað.  Salan aukist og eitt eða fleiri kerfi seld hvern virkan dag                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-. +,/-00 ++1-00 1+-231 +,-/.3 +4-+44 +.+-24 +-+030 +4. +01-13 ++,-34 +,3-+. ++1-,, 1+-4+0 +,-/,1 +4-1/+ +.1-+3 +-+0, +4.-33 +01-2 1+0-.1., ++,-40 +,3-0 ++.-.1 1+-44 +,-3/, +4-1,/ +.1-31 +-+21/ +4/-+ +0.-+3 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Útflutningur þjónustu á þriðja árs- fjórðungi 2013 var, samkvæmt bráða- birgðatölum, 141,3 milljarðar en inn- flutningur á þjónustu 95,2 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 46 milljarða á þriðja ársfjórðungi en var jákvæður um 35 milljarða á sama tíma 2012 á gengi hvors árs. Þetta kemur fram í frétt Hag- stofu Íslands. Samgöngur eru stærsti þjónustuliður í útflutningi og afgangur vegna þeirrar þjónustu var 32,8 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu 12,1 millj- arði. Afgangur á ferðaþjónustu var 25,3 milljarðar. Þjónustujöfnuður já- kvæður um 46 milljarða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.