Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 61
MINNINGAR 61 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 Þar munu eftir undirsamlegar gullnar töflur í grasi finnast, þær eru í árdaga áttar höfðu. (Úr Völuspá). Halldór Jón, Einar Garðar og Gísli Jón. Það er ekki áhlaupaverk að stjórna fjölda fólks á stórum vinnustað. Slíkt útheimtir dugn- að, þekkingu á viðfangsefninu, út- sjónarsemi og sambland af elju og lagni. Allt þetta hafði Guð- mundur Páll Einarsson, föður- bróðir minn, til að bera. Fyrir vik- ið reyndist hann einkar farsæll yfirmaður sem yfirverkstjóri hjá einu stærsta fiskvinnslufyrirtæki landsins á þeim tíma, Íshúsfélagi Bolungarvíkur. Hann var vinsæll með afbrigðum; jafnt hjá sam- starfsfólki sínu og öllum þeim sem áttu við hann samskipti. Í vinnunni var eilífur erill. Starfsfólkið taldi á annað hundr- að manna. Vinnan hófst árla morguns, stundum var unnið fram á kvöld og um helgar. Og alltaf var yfirverkstjórinn til stað- ar. Hann skipulagði daginn, skip- aði til verka og brást við öllu því sem getur komið upp á fjölmenn- um vinnustað. Stundum barst mikill afli að landi, stundum voru brælur og tregfiskirí. Verkefnin voru því oft risavaxin og alltaf fjölþætt. En undir þessu öllu stóð Guðmundur Páll, glaðbeittur, röskur og útsjónarsamur. Ég vann hjá honum æði mörg sumrin og þekki þetta því vel af eigin raun. Satt best að segja hef ég aldrei vitað mann sem gat með stjórnað fólki með svona áreynslulausum hætti. „Herra minn,“ sagði hann við okkur strákana. „Komið hérna með mér, þið eruð svo duglegir.“ Og maður lyftist allur upp við upp- hefðina; og það þó jafnvel biði manns helst að þrífa undan beina- kassanum eða eitthvað álíka spennandi. Frændi minn stjórnaði ekki með látum eða asa. Hann var ein- faldlega góð fyrirmynd, og vílaði ekki fyrir sér að takast á hendur hvaða verk sem var, ef þörfin kallaði. Hann gerði auðvitað kröf- ur til síns fólks, en mestar kröfur gerði hann til sjálfs sín. Það var í nógu að snúast og í endurminn- ingunni man ég frænda minn helst á hlaupum, til þess að koma sem mestu í verk. Samstarfsfólk- inu þótti vænt um hann, lagði sig fram og naut þess að vinna hjá honum. Og sína sögu segir það að margir unnu með honum og undir stjórn hans í áratugi. En þó að vinnudagurinn væri langur og oft strembinn slappaði Guðmundur Páll sjaldnast af þeg- ar heim kom. Hann stjórnaði virku og kraftmiklu skátafélagi í frístundum sínum, ræktaði garð- inn sinn í bókstaflegri merkingu og var góður og ljúfur fjölskyldu- faðir. Hann valdist til trúnaðar- starfa í fyrirtækjum sem sjávar- útvegsfyrirtækin fyrir vestan stofnuðu með sér, til dæmis við sölu á skreið. Þar eins og annars staðar var honum borin sagan vel, enda gjörkunnugur þeim málum. Samgangur fjölskyldu minnar við Guðmund Pál og Kristínu – Gumma og Stínu – var náinn. Þeir faðir minn voru góðir og sam- rýmdir bræður og nánir sam- verkamenn um áratugi. Börn þeirra Gumma og Stínu voru á svipuðum aldri og við systkinin og miklir vinir okkar. Nú er þessi heiðursmaður og góði frændi allur. Stínu, börnun- um, tengdabörnunum og niðjun- um öllum sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur. Það er sjónarsviptir þegar svo vænn maður er genginn. Blessuð sé minning míns góða frænda. Einar Kristinn Guðfinnsson. „Vinir mínir fara fjöld“ kvað Bólu-Hjálmar forðum. Hér á það vel við því Guðmundur Páll var sannur vinur, gegnheill, traustur og jákvæður. Kynni okkar eru löng og vinaböndin því sterk við frænda minn sem ég hitti síðast hressan og kátan á demantsbrúð- kaupsafmæli hans og Kristínar konu hans. Sama má reyndar segja um lífsförunaut hans því hún hefur alla þá eðliskosti til að bera sem leggja grunn að traustu og farsælu hjónabandi. Á sokkabandsárum mínum fékk ég oft að sitja í bíl Guðmund- ar Páls í einhverri þeirra þúsunda ferða sem hann fór um Óshlíð. Við tengdumst órjúfandi böndum þegar hann var kjörinn formaður útflutningsfélags okkar Félags vestfirskra skreiðarframleiðenda sem seinna varð Ísfang. Í því hlutverki var hann á þriðja ára- tug. Samtöl okkar, fundir, ráð- stefnur og ferðir um landið og er- lendis eru fleiri en ég hef tölu á en öll innlegg Guðmundar í sameig- inleg mál einkenndust af já- kvæðni hans, bjartsýni og einlæg- um áhuga á því sem honum var trúað fyrir. Glettni hans og gam- ansemi lituðu að auki samveru- stundir með honum. Hvergi kom- um við í sjávarpláss þar sem Guðmundur þekkti ekki menn sem tóku okkur höfðinglega. Stóra hlutverk Guðmundar Páls var að stjórna einu af stærstu fiskiðjuverum landsins, Íshúsfélagi Bolungarvíkur, þar sem störfuðu vel á annað hundrað manns. Þar voru framleidd verð- mæti sem breyttu Bolungarvík úr litlu þorpi í myndarlegan bæ. Oft þurfti að leggja nótt við dag því alltaf var lífið björgulegt í Bol- ungarvík þar sem veiðarnar brugðust ei árið um kring. Ötul stjórn hans um árafjöld verður seint fullþökkuð. Þó að starfið og fjölskyldan hafi tekið drýgstan tíma Guð- mundar lét hann félagsmál mikið til sín taka. Hann var virkur fé- lagi Oddfellow-stúkunnar á Ísa- firði, stofnfélagi Lionsklúbbs Bol- ungarvíkur og þátttakandi í starfi hans af lífi og sál. Þá gleymist ekki skátaforinginn Guðmundur Páll sem leiddi skátastarf í Bol- ungarvík í skátafélaginu Gagn- herjum í heil sextán ár. Skáta- hugsjónin yfirgaf hann aldrei og var hluti þeirra mannkosta sem fylgdu honum alla tíð. Hann hvatti ungt fólk til dáða með áhuga sínum og eldmóði. Vinátta sem helgast af gagn- kvæmum hug glatast aldrei. Gamli skátinn Einar Guðfinnsson átti þátt í þeirri vináttu sem þró- aðist með okkur Guðmundi Páli og mat hana mikils. Ég hygg að segja megi það sama um Guð- mund Pál og föður hans. Hann átti hug og hjörtu allra Bolvík- inga og fjölda vina um land allt. Þessi vinafjöldi kveður hann nú með söknuði og þökk í huga. Við Salbjörg sendum þér Kristín mín, öllum börnum ykkar, barnabörnum og venslafólki inni- legar samúðarkveðjur. Góður og gegnheill drengur hefur kvatt okkur en minning hans mun lifa. Hann lifði í anda þeirrar áskor- unnar sem skátahöfðinginn Ba- den Powell kvaddi okkur með – að yfirgefa heiminn betri en þeg- ar hann fæddist í hann. Kæri vinur og frændi. Þær vörður sem þú hlóðst og sá gróð- ur sem þú sáðir verða okkur minning kær. Megir þú svífa á vængjum morgunroðans meira að starfa Guðs um geim. Ólafur Bjarni Halldórsson. Guðmundur Páll Einarsson, var einn af stofnfélögum Lions- klúbbs Bolungarvíkur 1959 og fé- lagi í honum æ síðan meðan heilsa leyfði. Hann var ávallt mjög virk- ur í störfum klúbbsins og lét fundi sjaldnast fram hjá sér fara. Ekki minnist ég þess að hafa hitt Guðmund Pál öðruvísi en sér- lega jákvæðan og léttan í lund, jafnt á fundum klúbbsins sem í annan tíma. Með breyttum tíðar- anda á síðari árum hefur orðið meira los og erfiðara að fá menn til að skuldbinda sig í þágu félags- mála. Þess meira virði er það að hafa félaga eins og Guðmund Pál innan sinna raða; félaga, sem ávallt mátti reiða sig á og með einlægan áhuga á velferð klúbbs- ins og skilning á þýðingu slíks fé- lagsskapar í litlu samfélagi – hinn sanna Lionsanda eins og það er stundum nefnt. Stóð t.d. húsnæði Íshússfélags Bolungarvík, sem Guðmundur Páll hafði yfir að segja, klúbbnum ávallt til boða meðan enn var heimilt að róa til fiskjar í fjáröflunarskyni fyrir klúbbinn fyrir daga kvótakerfis- ins. Á 40 ára afmæli klúbbsins var Guðmundur Páll gerður að Melv- in Jones félaga, sem er æðsta við- urkenning Lionshreyfingarinnar, fyrir sitt góða framlag. Nú þegar leiðir skilur er Guð- mundi Páli þakkað gott starf í þágu Lionsklúbbs Bolungarvíkur og góð og ánægjuleg kynni. Færi ég hans nánustu innilegar sam- úðarkveðjur. Jónas Guðmundsson, formaður Lionsklúbbs Bolungarvíkur. Elsku Sigga okkar er látin. Ég kynntist henni árið 1992 þegar ég og maðurinn minn fórum að vera saman, en Sigga var mjög góð vinkona tengdamóður minnar heitinnar, Helgu Jónsdóttur. Sigga var alltaf hress og kát og ég var alltaf brosandi í kringum hana. Enda ekki annað hægt þar sem Helga tengdamóðir mín var alltaf brosandi og saman voru þær yndislegar og margt rætt við eldhúsborðið í Goðabyggðinni. Sigga var alltaf til staðar ef við þurftum á henni að halda. Það sem okkur mun ávallt þykja mjög vænt um er þegar Sigga var hjá Helgu á brúðkaupsdaginn okkar Inga, en þá var tengdamóðir mín orðin mjög veik og gat ekki komið með okkur í kirkjuna. En eftir at- höfnina í Akureyrarkirkju brun- uðum við heim í Goðabyggðina og kysstum Siggu og tengdamömmu og að sjálfsögðu fengu þær mat- arsendingu úr veislunni, svona til Sigríður Margrét Hreiðarsdóttir ✝ Sigríður Mar-grét Hreið- arsdóttir fæddist að Laugarbrekku í Hrafnagilshreppi, Eyjafirði, 2. októ- ber 1944. Hún lést 23. nóvember 2013. Útför Sigríðar fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 28. nóvember 2013. að taka eitthvað þátt í deginum. Sigga mín, ég hef þakkað þér mörgum sinnum fyrir og vil þakka þér enn og aftur fyr- ir að veita tengda- mömmu félagsskap á þessu yndislega brúðkaupsdegi okk- ar Inga, 20. júlí 2002. Það var ómet- anlegt að þú skyldir vera hjá tengdamömmu þennan dag. Það var alveg yndislegt og við metum það mikils og vitum að það var mjög gaman hjá ykkur þennan dag. Eins og alla daga. Já, nú er eflaust mikið hlegið í himnaríki þar sem þið vinkonurn- ar hafið sameinast á ný. Eflaust eruð þið að fá ykkur kaffi og kringlur og spjalla um barna- börnin og hlæja mikið. Það var þitt einkenni, þú varst alltaf í góðu skapi að mér virtist, og allt- af stutt í hláturinn. Virkilega góð kona, hjartahlý, vingjarnleg og yndisleg kona í alla staði. Hafðu þökk fyrir allt, elsku Sigga okkar. Fjölskyldu Siggu vottum við okkar dýpstu samúð. Það er alltaf sárt að missa ástvin og við biðjum Guð um að gefa ykkur styrk í gegnum erfiða tíma. Guð blessi ykkur og varðveiti. Kær kveðja, Þorgerður og Ingi. virðing reynsla & þjónusta allan sólarhringinn www.kvedja.is 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR INGÓLFSSONAR, Háeyrarvöllum 34, Eyrarbakka. Alúðarþakkir færum við þeim sem önnuðust hann, veittu hjálparhönd og umhyggju í veikindum hans. Ingunn Hinriksdóttir, Sævar Sigurðsson, Sigríður Guðlaug Björnsdóttir, Jón Birgir Kristjánsson, Halldór Björnsson, Hafdís Edda Sigfúsdóttir og afabörnin. ✝ Þökkum þeim sem sýndu okkur samúð og styrktu góð málefni vegna andláts ÖNNU RÖGNU LEIFSDÓTTUR frá Þingeyri við Dýrafjörð, síðast til heimilis að Gautlandi 15. Þökkum sérstaklega starfsfólki í Múlabæ fyrir góða umönnun svo og öðrum sem aðstoðuðu hana heima fyrir og annars staðar. Álfheiður Erla Sigurðardóttir, Guðbrandur G. Björnsson, Sigurður F. Guðbrandsson, Katja Dinse, Ásta G. Guðbrandsdóttir, Gunnlaugur Vésteinsson, Ragna B. Guðbrandsdóttir, Manuel Plasencia Gutierrez og barnabarnabörn. ✝ Okkar kæri, AÐALSTEINN VALDIMARSSON frá Hvallátrum í Breiðafirði, Kirkjuvöllum 9, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 3. desember kl. 13.00. Guðfinna Vigfúsdóttir, Ásta Valdís Roth Aðalsteinsdóttir, Andreas Rolf Roth, Snædís Gíslín Heiðarsdóttir, Ragnar Ó. Guðmundsson, Jens Valdimarsson, Ella Margret Roth, Ian Arthur Roth, fjölskylda og aðrir aðstandendur. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNESAR ÞORSTEINSSONAR, Hlíðarvegi 4, Ísafirði. Magnús Jóhannesson, Ragnheiður Hermannsdóttir, Þorsteinn Jóhannesson, Margrét K. Hreinsdóttir, Þórir Jóhannesson, Helga Gunnarsdóttir, Hanna Jóhannesdóttir, Andrés Kristjánsson, Laufey Jóhannesdóttir, Ari Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og kveðjur við fráfall elsku konunnar minnar, mömmu okkar og fósturmömmu, dóttur, systur og mágkonu, NÍNU BJARKAR SIGURÐARDÓTTUR, sem lést miðvikudaginn 30. október. Flosi Eiríksson, Eyrún, Kári, Eiríkur og Júlíus Flosabörn, Sigurður Ó. Kjartansson, Eyrún Gunnarsdóttir, Kjartan Ó. Sigurðsson, María Dröfn Steingrímsdóttir, Inga Sigurðardóttir, Ingólfur E. Kjartansson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, tengdasonur og afi, EINAR SIGURÐSSON matreiðslumeistari, Svöluási 1a, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 3. desember kl. 13.00. Fanney Ottósdóttir, Halldóra Einarsdóttir, Hólmar Egilsson, Einar Einarsson, Björg Össurardóttir, Helgi Einarsson, Helga Íris Ingólfsdóttir, Halldóra M. Sæmundsdóttir og barnabörn. ✝ Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og allan hlýhug við fráfall elskulegrar systur minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTBJARGAR BJARNADÓTTUR frá Víðistöðum, Hvassaleiti 18, Reykjavík, sem lést föstudaginn 18. október. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 2. hæð suður á Eir fyrir alla alúð og góða umönnun. S. Kristín Bjarnadóttir, Bjarni Guðmundsson, Magnús Guðmundsson, Helga Jónsdóttir, Guðmundur Ó. Bjarnason, Guðrún María Bjarnadóttir, Telma Kristín Bjarnadóttir, Jón Bjarni Magnússon, Erla Sigríður Hallgrímsdóttir, Árni Magnússon, Thelma Dögg Haraldsdóttir, Helga Júlíana Jónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.