Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
– Ertu forsöngvarinn í hópn-
um?
„Það halda það að minnsta
kosti margir,“ segir Edda og hlær.
„En það heyrist vel í mér. Ég var
svo heppin að fá góða rödd. Móðir
mín hafði yndislega sópranrödd og
bróðir minn, Engilbert, söng með
Hljómum í ansi mörg ár.“
Vínsala á Hrafnistu
Á síðasta ári var mikið rætt
um vínsölu á dvalarheimilum.
Breytingar stóðu yfir á matsal
Hrafnistu í Reykjavík en til stóð
að breyta salnum í kaffihús fyrir
íbúa og gesti þeirra. Hrafnista
sótti um leyfi til vínsölu og var
það harðlega gagnrýnt, meðal
annars af formanni Lands-
sambands eldri borgara og for-
manni SÁÁ. Hrafnista fékk þó
leyfið að lokum og var kaffihúsið,
sem nefnist Skálafell, formlega
opnað í septembermánuði á síð-
asta ári.
Edda segist ekki hafa skilið
þá umræðu að íbúarnir gætu ekki
farið með vín. „Við erum sjálf-
stætt, gamalt fólk og eigum fjöl-
skyldur. Við getum látið kaupa
handa okkur allt það vín sem við
viljum, haft það hjá okkur og
drukkið það eins og við kærum
okkur um.
Svo það breytti engu þegar
við allt í einu gátum keypt það á
staðnum. Það héldu allir að við
yrðum svo sólgin í að kaupa
áfengið á barnum en eftir tvo
mánuði kom í ljós að sala á bjór
og léttvíni hafði numið um tveimur
prósentum af heildarsölunni,“ seg-
ir hún. „Mér dettur ekki í hug að
fullyrða það að enginn fái sér vín,
því það væri eitthvað skrítið, en
ég get sagt að hér sést ekki vín á
nokkurri manneskju.“
Hún bendir einnig á að eftir
að kaffihúsið opnaði hafi Hrafnista
orðið fjölskylduvænni staður en
áður. Nú sé, svo eitt dæmi sé tek-
ið, leikhorn til staðar fyrir börnin
þar sem þau geta hlaupið um og
leikið sér. Það sé mikið notað. „Ég
held ég geti fullyrt að íbúar hafa
fengið fleiri heimsóknir síðan
kaffihúsið var opnað. Nú er allt
svo frjálslegt og þægilegt,“ segir
Edda.
Morgunblaðið/Golli
Kaffihús Í september á síðasta ári var nýtt og stórglæsilegt kaffihús opnað.Morgunblaðið/Golli Vatnsveita Reykjavíkur tók til starfa 1909 en neysluvatn Reykvíkinga
kemur frá fjórum vatnstökusvæðum í Heiðmörk. „Það eru Gvend-
arbrunnarnir og Jaðarsvæði svokallað sem er þarna rétt við Rauðhól-
ana. Svo er það svæði sem er kallað Myllulækur og er eiginlega beint
austur af Elliðavatninu og ofar er Vatnsendakriki, sem er nýjasta
svæðið og þar eru dýpstu holurnar. Þar erum við að taka mesta vatn-
ið,“ útskýrir Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu
Reykjavíkur.
Vatnsnotkun höfuðborgarbúa nam 22,7 milljónum tonna árið 2012,
sem gera 62 milljónir lítra á dag. „Fyrir svona áratug var farið í mjög
markvissa lekaleit og þá dró verulega úr notkun,“ segir Eiríkur. „En
síðan hefur íbúum fjölgað og atvinnustarfsemi aukist, sem hefur auk-
ið vatnsnotkunina,“ segir hann en engin hætta sé á vatnsskorti.
Til að viðhalda gæðum vatnsins hafa verið settar strangar reglur
um vatnsverndarsvæðin, sem eru af þrennum toga. Sjálf brunnsvæðin
eru afgirt og þar er umferð mjög takmörkuð og óheimil nema með
leyfi OR. Á svokölluðum grannsvæðum, sem liggja næst vatnsból-
unum, eru öll umsvif önnur en þau sem tengjast veitustarfseminni
mjög takmörkuð en á fjarsvæðunum, t.d. í Bláfjöllum, þurfa aðilar
sem hyggja á hvers konar starfsemi að leggja ítarlegar áætlanir fyrir
viðkomandi heilbrigðiseftirlit. holmfridur@mbl.is
Vatnsból Reykvíkinga
Notuðu 22 milljónir
tonna af vatni 2012
Ljósmynd/www.mats.is
Vatn Strangar reglur gilda um umgengni á vatnsverndarsvæðunum.
Hnetusteik með sveppasósu,
bökuðu epli, rauðlaukssultu
og blönduðu rótargrænmeti.
1.790 kr.
Spínatbaka með sætum kartöflum,
fetaosti og grilluðu grænmeti.
1.690 kr.
Grænmetislasagne með
ruccolapestó, hvítlaukssósu,
og fersku salati.
1.690 kr.
Rauðrófusalat með geitaosti,
valhhetum, ruccola, perum,
spínati og hindberjavinaigrette.
1.590 kr.
Súpersalat með kjúklingi,
byggi, qinoa og möndlum.
Sætar kartöflur og ferskt grænmeti.
1.790 kr.
Kjúklingaréttur dagsins.
1.890 kr. minni / 2.290 kr. stærri
Súpa dagsins með brauði
og hummus.
1.150 kr.
Salat og súpa með brauði
og hummus.
1.590 kr.
Dásamlegur aðventumatse
ðill!
Opið til kl. 21 alla virka dag
a.
Sendum einnig
í fyrirtæki
Suðurlands
braut 12 l
Sími: 557-5
880 l kru
ska@kruska
.is l krusk
a.is
....... .......
.......
.......
.......
.......