Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 46
46 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is „Það er ekki hægt að gleyma þessu. Það er eins og einhver sé að stinga mig með hníf þegar ég rifja þetta upp,“ segir fimmtán ára piltur, Taha, sem sá sjö lík nálægt heimili sínu í Sýrlandi áður en hann flúði þaðan vegna stríðsins í landinu. Taha er á meðal 80 barna sem rann- sóknarmenn á vegum Flóttamanna- fulltrúa Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) ræddu við í flótta- mannabúðum í Jórdaníu og Líbanon. Í 60 síðna skýrslu, sem flótta- mannastofnunin birti í gær, kemur m.a. fram að börn eru um helmingur allra sýrlensku flóttamannanna í grannríkjum Sýrlands. Flótta- mannastofnunin hefur skráð alls um 2,2 milljónir Sýrlendinga, sem hafa flúið heimaland sitt, en grannríkin áætla að flóttamennirnir séu enn fleiri, eða um þrjár milljónir. Áætlað er því að um 1,1 til 1,5 milljónir barna séu á meðal flóttafólksins. Í nýju skýrslunni er varpað ljósi á ömurlegar aðstæður barnanna sem mörg hver eru í sundruðum fjöl- skyldum. Fram kemur að meira en 70.000 fjölskyldnanna í flótta- mannabúðunum eru án föður og fleiri en 3.700 barnanna hafa misst eða orðið viðskila við báða foreldra sína. Flest barnanna fá enga mennt- un og mörg þeirra eru helsta fyrir- vinna fjölskyldu sinnar. „Ef við bregðumst ekki fljótt við þessu verður heil kynslóð saklausra barna varanlegt fórnarlamb þess- arar hörmulegu styrjaldar,“ hefur fréttaveitan AFP eftir António Gu- terres, flóttamannafulltrúa Samein- uðu þjóðanna. „Heimsbyggðin þarf að grípa til aðgerða strax til að bjarga kynslóð einangraðra, angistarfullra og þjáðra barna frá hörmulegri ógæfu,“ hefur fréttavefur CNN-sjónvarpsins eftir Angelinu Jolie, sérlegum sendi- herra flóttamannastofnunarinnar. Af um 1,1 milljón barna, sem eru á skrám Sameinuðu þjóðanna, eru um 385.000 í Líbanon, 294.300 í Tyrk- landi og rúm 291.000 í Jórdaníu. Í Líbanon eru sýrlensku börnin fleiri en öll líbönsk börn í ríkisskólum landsins. Um 80% sýrlensku barnanna í Líbanon ganga ekki í skóla. Áætlað er að allt að 300.000 sýrlensk börn í grannríkjunum gangi ekki í skóla, að því er fram kemur á fréttavef breska ríkis- útvarpins. Fær 500 krónur fyrir tólf tíma vinnu Embættismenn flóttamannastofn- unarinnar hafa áhyggjur af því að mörg sýrlensk börn séu notuð í ólög- legri atvinnustarfsemi í grann- ríkjum Sýrlands, einkum í Jórdaníu og Líbanon. Þar sem tugir þúsunda flóttabarnanna eru án feðra sinna eru mörg þeirra helsta fyrirvinna fjölskyldunnar. Algengt er að börn séu ráðin í illa launuð störf í Líbanon og Jórdaníu þótt slík barnavinna sé bönnuð í löndunum. Þessi lúsarlaun eru oft einu tekjur fjölskyldnanna. Í skýrslu, sem Sameinuðu þjóð- irnar birtu í mars, er áætlað að tí- unda hvert sýrlenskt barn í grann- ríkjum Sýrlands hafi fengið vinnu og allt að 50% barnanna á sumum svæðum. Sum þeirra eru aðeins sjö ára að aldri. Samir, þrettán ára piltur, gekk í skóla í Sýrlandi áður en fjölskylda hans flúði til borgarinnar Irbid í Jórdaníu. Faðir hans beið bana þeg- ar sprengju var varpað á hús fjöl- skyldunnar í sýrlensku borginni Homs og móðir hans lamaðist. Móðirin ákvað að gifta fimmtán ára dóttur sína fimmtugum Sýrlendingi og taldi það nauðsynlegt til að hún gæti notið verndar eiginmanns. Samir vinnur sex daga vikunnar við þjónustustörf í biljarðsal. Fyrir tólf klukkustunda vakt fær hann um fjóra dollara, jafnvirði tæpra 500 króna, að því er fram kemur á vef breska dagblaðsins The Guardian. „Ég afgreiði kaffi og te og hreinsa borðin milli klukkan sex á kvöldin til fimm á morgnana. Ég fæ ekki neitt hlé en ef það er rólegt get ég sest niður,“ hefur blaðið eftir honum. Mörg barnanna hafa sýnt merki um að þau hafi orðið fyrir alvarlegu áfalli, sem geti valdið þeim varan- legu sálrænu tjóni, vegna hryllings- ins sem þau hafa upplifað í stríðinu, að sögn Volkers Türk, sem stjórnar alþjóðlegu hjálparstarfi flótta- mannastofnunarinnar. „Fólk veður blóð upp að hnjám í Sýrlandi,“ sagði sautján ára piltur sem lýsti stríðshörmungunum. Eitt af hverjum þremur sýrlensku barnanna hefur sætt einhvers konar ofbeldi, t.a.m. orðið fyrir barsmíðum eða lent í skotárás. Þrjú af hverjum fjórum barnanna hafa misst a.m.k. einn náinn vin eða ættingja í átök- unum. Mörg sýrlensk börn í sárri neyð  Mörg barnanna eru helsta fyrirvinna fjölskyldu sinnar í búðum flóttafólks frá Sýrlandi  Flest barnanna ganga ekki í skóla  Mörg fá lúsarlaun fyrir ólöglega barnavinnu EPA Vilja berjast Sýrlensk börn leika sér að plastbyssum í flóttamannabúðum í þorpi nálægt borginni Sídon í Líbanon. Margir piltanna í flóttamannabúðunum eru reiðir og segjast vilja fara aftur til Sýrlands í því skyni að berjast. Milljónir barna á flótta » Auk allt að þriggja milljóna flóttamanna í grannríkjunum hafa um 6,5 milljónir Sýrlend- inga þurft að flýja heimkynni sín vegna stríðsins og dvelja enn í Sýrlandi. Þar af er um helmingurinn börn. » Talið er að meira en 120.000 manns hafi beðið bana í stríð- inu í Sýrlandi frá mars 2011, þar af minnst 11.000 börn, að sögn samtaka sem safna upp- lýsingum um mannfallið. EPA Á flótta Sýrlenskt barn þvær sér í flóttamannabúðum í Líbanon. Vaxandi óánægju og stríðsþreytu er farið að gæta meðal uppreisnar- manna eftir meira en tveggja og hálfs árs átök í Sýrlandi, að sögn blaða- manna The New York Times sem hafa rætt við sýrlenska uppreisnarmenn. Óánægjuna má meðal annars rekja til aukinna áhrifa íslamista meðal uppreisnarmannanna, sumir kvarta yfir spillingu meðal þeirra sem stjórna uppreisninni og aðrir hafa einfaldlega fengið nóg af stríðinu. Blað- ið nefnir sem dæmi 33 ára mann, sem flúði frá Damaskus eftir að hafa verið pyntaður og misst vinnu í banka í höfuðborginni. Hann segist nú hafa snúið baki við uppreisnarmönnunum og sjá eftir því að hafa tekið þátt í uppreisninni. Þrítugur uppreisnarmaður í borginni Homs kveðst hafa lagt niður vopn, sem hann hafði keypt fyrir peninga sem eiginkona hans fékk þegar hún seldi skartgripi sína til að hann gæti tekið þátt í upp- reisninni. Margir aðrir uppreisnarmenn láta þó engan bilbug á sér finna. Vaxandi óánægja og þreyta ÓEINING MEÐAL SÝRLENSKRA UPPREISNARMANNA 100 km M IÐ JA R Ð A R H A F Raqah Palmyra Daraa DAMASKUS Homs ÍS R A E L Svæði á valdi stjórnarinnar Svæði uppreisnarmanna Yfirráðasvæði Kúrda Átakasvæði Landamærastöð á valdi uppreisnarliðs Strjálbýl eyðimerkursvæði Hama Aleppo Hasakah Deir Ezzor SÝRLAND Qamishli Idlib Baniyas TYRKLAND ÍRAK JÓRDANÍA LÍ BA N O N Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.