Morgunblaðið - 30.11.2013, Síða 59

Morgunblaðið - 30.11.2013, Síða 59
MINNINGAR 59 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 ✝ Mikael Þór-arinsson fæddist í Siglu- firði 4. september 1920. Hann lést á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar 18. nóv- ember 2013. Foreldrar hans voru þau Þór- arinn Ágúst Stef- ánsson smiður, f. á Möðruvöllum í Héðinsfirði 12. ágúst 1880, d. 15. júní 1933 í Siglufirði og Sigríður Jónsdóttir húsmóðir, f. að Staðarhóli í Siglufirði, 25. desember 1885, d. 16. maí 1975 í Siglufirði. Mikael var sjöundi í röð tíu systkina sinna sem komust flest á legg, systkini Mikaels voru Jón Friðrik Marinó Þórarinsson, f. 2. maí 1905, d. 20. mars 1979. Erlendur Guðlaugur Þór- Magnús Steindórsson f. á Mel- um í Víkursveit 28. október 1902, d. á Ísafirði 14. febrúar 1965 og Guðrún Þórðardóttir, fædd á Hrúti í Ásahrepp 4. nóvember 1905, d. á Ísafirði 28. maí 1972. Mikael og Þórný var fimm barna auðið. 1) Jens Gunnar Mikaelsson, f. 8. júní 1949, maki Sigrún Friðriksdóttir, f. 11. júlí 1947 og eiga þau fjögur börn. 2) Hallfríður Emilía Mikaels- dóttir, f. 4. október 1950, maki Lars Olav Grande, f. 20. nóvember 1950 og eiga þau tvö börn. 3) Þórdís Mikaels- dóttir, f. 4. júní 1953, maki Sigurgeir Hrólfur Jónsson, f. 31. maí 1955 og eiga þau tvö börn. 4) Regína Erla Mikaels- dóttir, f. 27. apríl 1955, maki Einar Moritz Karlsson, f. 12. janúar 1958 og eiga þau fjög- ur börn. 5) Ragnar Mikaels- son, f. 6. nóvember 1957, maki Marit Solbakken, f. 13. júlí 1966, eiga þau tvö börn. Útför Mikaels fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 30. nóvember 2013, og hefst at- höfnin kl. 14. arinsson, f. 1907, d. 1910. Sigríður Þórarinsdóttir f. 1909, d. 1910. Er- lendur Guð- laugur Þór- arinsson, f. 21. júlí 1911, d. 16. nóvember 1999. Stefán Valgarð Þórarinsson, f. 10. júlí 1914, d. 26. júní 1985. Sigurgeir Þórarinsson, f. 29. júní 1917, d. 17. mars 1994. Júlíus Þórarinsson, f. 18. ágúst 1923. Hólmsteinn Þór- arinsson, f. 1. desember 1926 og Einar Þórarinsson, f. 9. júní 1929. Mikael kvæntist Katrínu Þórný Jensdóttur þann 8. apr- íl 1950, hún er fædd á Ísafirði 8. desember 1928. Foreldrar hennar voru þau Jens Karl Það er svo margt sem á heima hérna en ég hef víst ekki endalaust pláss. Ég þarf auðvit- að ekkert að benda á það að afi var hvers manns hugljúfi, hann elskuðu allir. Hann er einn af þessum al- vöru Siglfirðingum. Borgin átti aldrei hug hans og ég hugsa að hægt sé að telja á fingrum ann- arrar handar hversu oft hann kom í borgina. Afa þekktu allir Siglfirðingar enda bjó hann á miðjum aðalfót- boltavelli bæjarins í minni æsku. Hann bjó lengi vel á miðri eyr- inni og garðinn lánaði hann til knattspyrnuiðkunar okkar krakkanna. Oft voru haldin þar mót. Þetta var fyrsti grasvöllur bæjarins, ásamt Blöndalstúninu, enda ólumst við upp við að æfa á mölinni. Malarvöllurinn var líka mik- ilvægur partur af lífinu, þangað sótti hann alla leiki. Ég man varla eftir afa nema horfandi á íþróttir. Það var oft gott að hafa afa í miðbænum. Það var ekki svo óalgengt að við Eva skutumst til afa og fengum hjá honum tíkall fyrir bland í poka á Billanum. Ætli ég skuldi honum ekki nokkra upphæð ef þetta yrði uppreiknað. Það var líka gott að vita af afa niðri í Ramma en þegar enginn var heima þá gat maður skotist til hans í vinnuna sem var alls ekki svo óalgengt. Ég er viss um að honum þótti hvíldin góð enda vorum við aldr- ei send í burtu. Hann var aldrei upptekinn þó hann hefði nóg að gera. Svo er það harmónikkan og orgelið. Afi mátti varla sjá slíka gripi án þess að taka lagið, sér- staklega í kringum jólin. Við eyddum mörgum jólum saman, það var bara hefð. Ég get sagt þér það núna en mikið var ég feginn þegar þú hættir að borða og ég komst í pakkana. En við eldumst víst öll. Þegar ég varð sextán og fór í burtu í skóla var mér skipt út. Í heim- inn kom hún Helga Guðrún. Það var ótrúlegt að fylgjast með þeim, þau smullu strax og urðu algjörir perluvinir. Það var alltaf fastur liður í heimsókninni norður að kíkja til ömmu og afa. Það var gaman að fylgjast með þér í kringum litlu börnin og þrátt fyrir að vera orðinn talsvert lúinn varst þú alltaf til í að sitja með þau. Að kíkja til þín síðustu ár var sérstakt. Mér fannst oft eins og ég væri að sjá þig í síðasta skipti og hafði oft orð á því við Hjör- dísi. Oft varst þú orðinn ferlega lúinn en þú bjóst að því að hafa alla tíð verið hraustur. Það var gamli hraustleikinn sem hélt þér gangandi svona lengi þrátt fyrir að margt annað væri farið að gefa sig, þú misstir þó aldrei húmorinn. Í síðasta skiptið sem við hitt- umst þá vissi ég það. Við kíktum til þín og við fundum að það var kveðjustundin, ég fann það svo sterkt að ég snéri aftur við þeg- ar ég var að ganga frá stofunni þinni og kvaddi þig aftur, ég sá að þú varst tilbúinn. En jæja afi, ég fæ víst ekki allt blaðið og geymi restina fyrir okkur. Ég reyni að minna börn- in á afa Mikka mús, já, æ fyr- irgefðu, þetta festist bara hjá þeim. Afi minn, þetta er bara kveðja okkar fjölskyldunnar til þín. Hafðu það sem allra best þar sem þú ert. Ég veit að þar er nóg af fólki sem bíður spennt eftir að hitta þig. Við skulum leyfa þeim að eiga tímann þang- að til við kíkjum yfir til þín. Jón Gunnar Sigurgeirsson. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst. Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá. Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær. Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt. Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman. Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er svo sár. En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt. En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú. Því þar getur hann vakað yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda. Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth.) Ástkæri afi okkar er farinn á vit feðra sinna eftir langa og fal- lega ævi á þessari jörð. Það er með kökk í hálsi og tár á hvarmi sem við skrifum nokkur fátæk- leg orð um hann afa okkar. Afi okkar var að jafnaði hæg- látur maður og dagfarsprúður. Hann var ekki sú manngerð sem göslaðist í gegnum lífið með há- vaða og látum þó að mikið væri um hlátrasköll og prakkarastrik. Já, hann afi var mikill stríðn- ispúki og það var eitt af því sem við elskuðum við hann. Hann var einnig mikill tónlistarmaður og var vanur að spila falleg lög á harmonikkuna fyrir okkur, sem og píanóið og munnhörpuna. Sú minning er grafin í hjarta okkar. Fallegri sál og jafn barngóðan mann var vart hægt að finna þar sem hann vildi allt fyrir náung- ann gera. Minningin í æsku um að fá sér blund í fanginu á afa eftir ærslafullan dag í leik er eitthvað sem mun ylja okkur um hjartarætur þar til við munum sjá hann á ný í öðru lífi. Við héldum í okkar barnslegu trú að hann yrði hér alltaf með sög- urnar sínar og alla þá visku sem hann bjó yfir. Elsku afi, það er skrítið að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur. Takk fyrir allar frá- bæru stundirnar sem við áttum saman. Það var enginn eins og þú, með grallaraglottið fræga. Þú varst einstakur maður, hæg- látur, góðhjartaður, vingjarnleg- ur, traustur og engum líkur. Við söknum þín og missir okkar er mikill en minningin um góðan mann mun lifa með okkur um ókomin ár. Þín barnabörn, Auður Kapitola, Ragna Dís, Eva Karlotta, Mikael Þór og fjölskyldur. Þá er einn aldinn félagi í við- bót fallinn frá. Einn af þessum hörðu og ósérhlífnu sem skildu ekki fólk sem vék sér undan verkum. Sem krakki komst ég snemma í návígi við Mikael Þór- arinsson. Hans stóra fjölskylda og reyndar ætt hans öll voru mikið skíðafólk, bæði iðkendur og áhorfendur. Fjölskyldan mætti á flest skíðamót á Siglu- firði og stóð á hliðarlínunni og hvatti sitt fólk. Löngu síðar lágu leiðir okkar saman í frystihúsi Þormóðs Ramma hf. þar sem Mikki vann við frystitækin til margra ára. Það voru ekki allir sem að fögn- uðu þegar lítt reyndur stjórn- andi kom og ætlaði að segja gömlum jöxlum til við störf þeirra. Frá fyrsta degi fann ég við- mót hjá Mikka þar sem hann hefur sennilega hugsað hvort það ætti ekki að gefa þessum unga manni smátíma til að sanna sig. Eftir það fannst hon- um ávallt að hann ætti eitthvað smá í mér. Það varð grunnurinn að vináttu okkar. Starfsskilyrði við frystingu á fiski á fyrri árum þættu vart boðleg í dag. Þar blandaðist saman vatnselgur og kuldi sem oft skildi eftir svellbunka á gólf- um. Það þurfti því sterka ein- staklinga til að vinna við slík skilyrði. Þannig maður var Mikki. Hreystimenni og rammur að afli. Eftir að Mikki lét af störfum var hann duglegur að fara í gönguferðir og vera úti meðal fólks. Þegar við rákumst hvor á annan í heimsóknum mínum til Siglufjarðar þá tókum við oft smáspjall. Þrátt fyrir að Mikki hefði nánast tapað allri heyrn og ég ekki viss um hvað hann greip af því sem ég sagði þá sagði bros hans allt sem segja þurfti. Hann var ánægður og honum leið vel. Með jafnaðargeði fór hann í gegnum lífið. Ég kveð þennan aldna höfð- ingja með þakklæti fyrir að hafa fengið að vera honum samferða í gegnum þessi ár. Guð blessi minningu Mikka. Hvíldu í friði. Róbert Guðfinnsson. Mikael Þórarinsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR BRAGADÓTTIR, Ólafsgeisla 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum, Hringbraut, miðvikudaginn 27. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 9. desember kl. 13.00. Reynir Sigurðsson, Sigurður Reynisson, Bragi Reynisson, Kristín Smáradóttir, Ástþór Bragason, Bjarki Bragason. ✝ Elskuleg amma okkar og langamma, NANNA SOFFÍA PÁLSDÓTTIR frá Sauðárkróki, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, fimmtudaginn 21. nóvember. Útförin fór fram í kyrrþey. Drottinn blessi minningu hennar. Nanna Soffía Karlsdóttir, Unnur Margrét Karlsdóttir, barnabarnabörn og makar. ✝ Elskulegur sonur minn, bróðir, mágur og frændi, DANÍEL HAFSTEINSSON, er látinn. Margrét Jóna Þorsteinsdóttir, Unnur Inga Karlsdóttir, Davíð Bjarnason, María Jórunn Hafsteinsdóttir, Smári Geirsson, Aðalsteinn Hafsteinsson, Guðrún Sigvaldadóttir, Sigrún Hafsteinsdóttir, Hans Pétur Blomsterberg, Jón G. Hafsteinsson, Hildigunnur J. Sigurðardóttir, Haraldur Hafsteinsson, Sólveig Hafsteinsdóttir, Walter Unnarsson, Þórdís Hafsteinsdóttir og systkinabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍESER JÓNSSON, Sunnuhlíð, áður Hörpugötu 1, Skerjafirði, andaðist sunnudaginn 24. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 3. desember kl. 13.00. Reynir Elíesersson, Elísabet H. Einarsdóttir, Guðlaug S. Elíesersdóttir, Alain Knudsen, Jón E. Elíesersson, Guðríður Sæmundsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir, Magnús Kjartansson, Sigurjón V. Jónsson, Guðrún Á. Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA ERLA JÖRUNDSDÓTTIR, Arahólum 2, Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti fimmtudaginn 28 nóvember. útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 6. desember kl. 13.00. Elín Jónsdóttir, Ólafur Hallgrímsson, Anna Sigríður Jónsdóttir, Jón Ólafur Ólafsson, Jörundur Jónsson, Sigrún Erla Þorleifsdóttir, Þorbjörg Elínóra Jónsdóttir, Árni Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir mín, tengdamóðir og amma, FRÍÐA BJÖRG ÓLAFSDÓTTIR, Laugavegi 149, lést fimmtudaginn 15. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Björn Björnsson, Álfheiður Einarsdóttir og fjölskylda. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SÓLVEIG SÆMUNDSDÓTTIR, lést föstudaginn 15. nóvember á Hrafnistu í Reykjavík. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Erna M. Ólafsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Magnús Ólafsson, Stella Guðmundsdóttir, Jónas Birgir Birgisson og fjölskyldur. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morg- unblaðslógóið efst í hægra horn- inu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf grein- in að hafa borist á hádegi tveim- ur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist inn- an skilafrests. Undirskrift | Greinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.