Morgunblaðið - 30.11.2013, Side 37

Morgunblaðið - 30.11.2013, Side 37
37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Bókasöfnin og starfsemi þeirra hefur breyst mikið frá því ég hóf störf hér fyrir 38 árum,“ segir Tryggvi Ólafsson bókasafnsfræðingur. Hann starfar á Borgarbókasafninu í Gróf- arhúsinu í Tryggvagötu. Margir þekkja manninn af störfum sínum, enda eru söfnin fjölsótt og á margan hátt lykilstofnanir í sam- félaginu. „Þegar ég byrjaði – þá í litlu útibúi safns- ins við Hofsvallagötu – fólst starfið aðallega í að finna til bækur, raða í hillur og afgreiða fólk sem fór út með bækurnar eftir að stimpl- að hafði verið á miða aftast í þeim og tilsvar- andi færsla sett í spjaldskrá safnsins. Núna afgreiðir fólk sig sjálft með strikamerktar bækurnar. Starf bókasafnsfræðinga í dag felst í ríkari mæli í að hjálpa fólk við heim- ilda- og gagnaleit, t.d. í gegnum ýmsar gagnalindir og upplýsingabanka sem bóka- söfn landsins hafa aðgang að,“ segir Tryggvi. Hefur áhuga á ferðabókum Höfuðstöðvar Borgarbókasafnsins eru í Grófarhúsinu við Tryggvagötu og er starf- semin á þremur hæðum þess. Á jarðhæð er al- menn afgreiðsla, fagurbókmenntir og barna- bækur á 2. hæð og fróðleikur hverskonar, ævisögur og hagnýtisrit eru á þeirri 5. Tryggvi sinnir verkum í öllum deildum en hefur þó helst verið á efstu hæðinni. „Þar eru að minnsta kosti þær bækur um þau efni sem ég hef mestan áhuga á, til dæmis rit um fjar- læg lönd og framandi slóðir. Hef sjálfur lagst í ferðalög nú á síðari árum og haft ánægju af – og þannig tengjast áhugamál og störf,“ seg- ir Tryggvi. Innan við múrvegginn átti ég löngum mitt sæti, segir Jón Helgason handritafræð- ingur í ljóði sínu, Í Árnasafni. Jú, víst er ímynd bókasafna – að minnsta kosti í ein- hverra huga sú að þau séu hinn rykfallni staður þar sem lestrarhestar og latínugránar sitja löngum stundum og séu í sinni eigin ver- öld. Almennt talað er raunin hins vegar allt önnur, segir Tryggvi. Finnum hvernig landið liggur „Bókasafn er lifandi staður. Hingað kemur fjöldi fólks á hverjum degi, börn sem fullorðnir, og hér finnum við ágætlega í gegnum útlán bóka hvernig landið liggur og hver stemningin í þjóðfélaginu er á hverjum tíma. Á haustin eru bækur um til dæmis handavinnu og ýmsa dægradvöl mjög vinsæl- ar og margir vilja líka fá jólabækurnar með fyrra fallinu og koma þá hingað,“ segir Tryggvi. „Alltaf er áhugi fyrir Arnaldi, Yrsu og öðrum spennusagnahöfundum. Þá sækir fólk alltaf í það safaríka sem gjarnan tengist því sem er í fréttum. Þannig er líklegt að mikið verði spurt um uppgjörsbækur þeirra Öss- urar Skarphéðinssonar og Steingríms J. Sig- fússonar. Reynslan er þó sú að bækur stjórn- málamanna eru nokkuð skammlífar hvað vinsældir áhrærir og spenningur vegna þeirra fjarar fljótt út.“ Tryggvi Ólafsson hefur starfað á Borgarbókasafninu í 38 ár Leitað í lindum og bönkum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bókavörður „Hér finnum við ágætlega í gegnum útlán bóka hvernig landið liggur og hver stemningin í þjóðfélaginu er á hverjum tíma,“ segir Tryggvi Ólafsson . Vatnsrennibrautagarður og tívolí  Krakkar í 11 og 12 ára bekk í Ártúnsskóla sitja fyrir svörum um Reykjavík, uppáhaldsfagið og framtíðardrauma  Þau eru dugleg að stunda íþróttir og finnst vanta skemmtigarða í höfuðborginni Gabríel Máni Ómarsson 11 ára Hvað finnst þér skemmtilegast við Reykjavík? Mér finnst skemmtilegast … það er svo mikið mannlíf hérna. Og það er hægt að fara í keilu. Myndir þú vilja breyta einhverju eða finnst þér eitthvað vanta? Já, mér finnst að flugvöllurinn eigi ekki að vera í Keflavík heldur hérna … til útlanda sko. Og mér finnst að það eigi líka að vera vatnsrennibrautagarður og tívolí og eitt- hvað svoleiðis. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að reyna að verða ann- aðhvort atvinnumaður í fótbolta eða hand- bolta. Eða verða einhvers konar verkfræð- ingur eða hagfræðingur. Kolbrún Dís Snorradóttir 11 ára Hvað finnst þér skemmtilegast við Reykjavík eða að gera í Reykjavík? Fara á tónleika í Hörpunni. Hvaða tónleika hefurðu farið á þar? Ég hef farið á Verslóvælið og svo hef ég farið á Töfraflautuna og alls konar. Er eitthvað sem þér finnst vanta í Reykjavík? Vatnsrenni- brautagarð og tívolí. Er eitthvað sem þú mynd- ir vilja breyta? Ég veit það ekki. Hvert er uppá- haldsfagið þitt í skólanum? Myndmennt og íþróttir. Ertu í einhverjum tómstundum? Ég er í fimleikum. Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Hárgreiðslukona. Elísabet Eva Kolbeinsdóttir 12 ára Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í Reykja- vík? Mér finnst gaman að fara á handbolta- leiki og æfa og alls konar. Er eitthvað sem þú vildir breyta eða þér finnst vanta? Vatns- rennibrautagarð og tívolí og H&M. Hvert er uppáhaldsfagið þitt í skólanum? Íþróttir og heimilisfræði. Ert þú í einhverjum tóm- stundum? Ég æfi fótbolta og spila á píanó. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég er ekki búin að ákveða það. Guðjón Örn Árnason 12 ára Hvað finnst þér skemmtilegast við að búa í Reykjavík, hvað er skemmtilegast að gera í Reykjavík? Ég veit það ekki. Ég fer á æf- ingar. Hvað ertu að æfa? Körfubolta. Er eitthvað sem þér finnst vanta? Vatns- rennibrautagarð og tívolí. Hvert er uppá- haldsfagið þitt? Heimilisfræði. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í skólanum? Við fórum einu sinni í hvalaskoðun, það var mjög skemmtilegt. Sáuð þið einhverja hvali? Já, hrefnu. Hvað gerir þú þegar þú ert ekki í skólanum? Fer á æfingar eða leik mér úti eða horfi á sjónvarpið. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Annaðhvort kokkur eða smiður. Hrefna Svavarsdóttir 12 ára Hvað finnst þér skemmtilegast við að búa í Reykjavík? Það er gaman að geta valið um hvaða sundlaugar maður vill fara í og fara á kaffihús og niður í bæ. Er eitthvað sem þú myndir vilja breyta eða finnst vanta? Kannski stærri dýragarð með fleiri dýrum. Hvert er uppáhaldsfagið þitt? Myndmennt, stærðfræði og íþróttir. Er eitthvað skemmtilegt sem þú manst eftir að hafa gert með skólanum? Við fórum á kaffihús síðustu jól. Ertu að æfa eitt- hvað? Píanó. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Ekki hugmynd. Stella Bjarkadóttir 12 ára Hvað finnst þér skemmtilegt við Reykjavík, skemmtilegt að gera? Íslenski hestur- inn … mér finnst gaman að geta farið á hest- bak. Geturðu það í Reykjavík? Já, í Víðidal. Finnst þér að það þurfi að breyta einhverju eða bæta? Mér finnst að það megi gera skemmti- legri söfn og meira sem börnin geta bara farið ein, ekki í fylgd með fullorðnum. Hvert er uppáhaldsfagið þitt? Stærðfræði og heim- ilisfræði. Hefurðu gert eitthvað skemmtilegt með skólanum sem þú manst eftir? Reykir. Hvað gerðuð þið þar? Fórum í fjöruna og fór- um í Bjarnarborg og fórum á byggðasafn og alls konar. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Mig langar að verða hestabóndi og hestaræktandi. Jón Hákon Garðarsson 11 ára Hvað finnst þér skemmtilegt að gera í Reykjavík eða skemmtilegast við að búa í Reykjavík? Mér finnst gaman að fara á æf- ingar. Hvað finnst þér vanta, hverju myndir þú vilja breyta? Ég væri alveg til í að það væri tívolí og eitthvað skemmtilegt. Hvert er uppáhaldsfagið þitt? Íþróttir. Ertu að æfa eitthvað? Já, fótbolta og skíði og parkour. Með hvaða félagi? Fylki. Hvað er skemmti- legast að gera með skólanum? Við förum í vettvangsferðir. Fórum áðan á tónleika. Hvaða tónleika? Með Skálmöld. Svona þungarokkstónleika. Ég bjóst ekki við því. Hvernig var? Það var bara fínt. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Atvinnu- maður í einhverri íþrótt. Haukur Ingi Steindórsson 11 ára Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í Reykja- vík? Mér finnst gaman að æfa íþróttir, fara á æfingar. Hjá hvaða félagi ertu að æfa? Fylki. Hvað ertu að æfa? Handbolta, fótbolta og parkour. Hvert er uppáhaldsfagið þitt? Mynd- mennt. Er eitthvað sérstaklega skemmtilegt sem þið hafið gert í skólanum sem þú manst eftir? Já, fara á tónleikana. [Með Skálmöld] Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Mig langar að verða atvinnumaður í handbolta eða fótbolta. Skannaðu kóðann til að horfa á viðtöl við krakkana í Ártúnsskóla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.