Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 39
Huggulegheit Það væsir ekki um dýrin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, jafnvel þótt kalt sé í veðri.
um við ungum fálkum á fyrsta ári.
Sökum reynsluleysis þá lenda þeir
stundum í því að fá í sig grút úr
hræjum eða spýju úr fýl. Oftast
dugar bað með góðri sápu til að
losa um fituna, nokkura daga hvíld
og gott kjöt í matinn til að hægt sé
að sleppa fálkunum lausum. Ný-
lega voru þrír fálkar útskrifaðir og
sleppt. Tveir fálkar gista nú í Hús-
dýragarðinum. Dýrin eru stundum
til sýnis gestum ef og þegar
ástand og heilsa þeirra leyfir.
Þannig fá gestir að fræðast um
viðkomandi dýrategund og dýrið
fær líf sitt að launum. Stundum
getur það þó verið óheppilegt, t.d.
þegar mjög styggir ernir koma, þá
þola þeir illa athygli og því stund-
um best þeirra vegna að vera
inni,“ segir Tómas.
Stefnan að velja
kuldaaðlöguð dýr í garðinn
Spurður að því hvort hægt
væri að fjölga dýrategundum í
Húsdýragarðinum, t.d. hafa þar ís-
björn, segir Tómas metnað starfs-
manna garðsins frekar snúa að því
að hver tegund hafi það sem best,
frekar en að hafa sem mestan
fjölda tegunda.
„En stefna okkar er jafnframt
skýr að því leyti að ef ákvörðun
verður tekin um að fjölga dýrateg-
undum, þá skal unnið eftir þeirri
uppskrift að það skulu valin kulda-
aðlöguð dýr sem njóta sín vel í ís-
lensku loftslagi. Dæmi um slík dýr
eru sauðnaut, snæhéri, snæugla,
lundi, læmingi, gaupa, úlfur, jarfi,
elgur, tígrisdýr, ýmsar selateg-
undir sem lifa við eða í nágrenni
við Ísland s.s. útselur, blöðruselur,
kampselur, vöðuselur, hringanóri,
jafnvel rostungar. Á þessum lista
er líka hvítabjörn sem lifir á fyrr-
greindum selategundum og rost-
ungum. Ráðamenn Reykjavík-
urborgar voru svo forsjálir að sjá
Húsdýragarðinum sem betur fer
fyrir stækkunarmöguleika til suð-
urs í framtíðinni. Þannig að rýmið
er til staðar og allt er þetta spurn-
ing um vilja á endanum,“ segir
Tómas.
Laugardalur Sá möguleiki er fyrir hendi að stækka garðinn enn frekar.
Í Húsdýragarðinum eru...
...auk fjölda skriðdýra, froskdýra, skordýra, fiska og sjávardýra.
60.000
býflugur
17
hænur
13
skrautdúfur
11
kindur
9
geitur
9
svín
7
hláturdúfur
6
nautgripir
6
degóar
5
hreindýr
5
kanínur
4
hestar
3
kettir
2
páfagaukar
2
refir
2
minkar
4
selir
39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013