Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 36
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á því herrans ári 1913 bjuggu 13.354 í Reykjavík eða 15,4% þjóðarinnar sem þá var 86.115 manns. Út af fyrir sig segja þessar aldargömlu tölur lít- ið nema því aðeins að þær séu settar í samanburð við aðrar breytur sem aftur gefa tækifæri til að draga af þeim ályktanir og reyna að lesa í þróunina. Og hvað hefur gerst á þeim 100 árum sem liðin eru síðan borgarbúar voru rétt liðlega þrettán þúsund. Jú. Nú eru þeir 119.764 eða 36,5% þjóðar en Íslendingar eru í dag alls 321.857. Og skeggið er skylt hökunni, eins og máltækið segir. Ef höf- uðborgarsvæðið allt er tekið með, þar sem búa 206.675 manns, þá læt- ur nærri að þar búi 2/3 Íslendinga. Af þeim veruleika talnanna er sprottið það hugtak sem stundum hefur verið kallað ójafnvægi í byggð landsins. Þau orð geta vissulega eiga rétt á sér, en í tölunum felst þá líka að Reykjavík er sannarlega höf- uðstaður landsins. Um 1.800 börn á ári hverju Eins og fram kemur annars staðar hér á síðunni eru aðeins þrír Reykvíkingar enn lifandi sem fæddir voru árið 1913. Og víst er að enginn stöðvar tímans þunga nið. Fólks- fjölgun almennt er annars eins og snjóbolti, í dag er algengt að á ári hverju fæðist 1.600 til 1.800 Reykja- víkurbörn. Hrunið leiddi af sér barnasprengingu og metið var slegið árið 2009; börn í borginni fædd það ár eru alls 1.809. En inn í hvaða aðstæður fæðast þessi börn? Fjölskylduform í dag eru flóknari og fjölbreyttari en áður og hugtakið kjarnafjölskylda hefur ef til vill ekki sömu merkingu og áð- ur. Fjölskyldur í Reykjavík eru alls 27.332. Mamma, pabbi, börn og bíll eru ekki sami staðalpakkinn í dag og var fyrir einhverjum áratugum. En að því slepptu: fjölskyldur í þessu hefðbundna mynstri í Reykjavík eru alls 7.514, það er foreldrar sem búa saman og eiga börn eru alls 10.864. Einstæðir foreldrar í Reykjavík eru alls 5.392; þar af eru konur sem búa einar með börnum sínum 4.974. Íbúðir um allan bæ Í Reykjavík er stundum talað um bæjarblokkir. Sú var tíðin að byggðar voru heilu blokkirnar með litlum íbúðum sem ætlaðar voru skjólstæðingum félagslega kerfisins. Nú hefur verið horfið frá þeirri stefnu og keyptar íbúðir víða um bæinn. Félagsbústaðir ehf., fyr- irtæki í eigu borgarinnar, eiga 2.211 slíkar og dreifist fjöldinn nokkuð jafnt milli borgarhluta, þó þær séu kannski heldur fleiri í úthverfunum en annars staðar. Það er samt ekki algilt. Eftir hrunið hefur víða verið hart á dalnum og margir hafa þurft að komast í var. Allt frá fyrstu tíð hafa sveitarfélögin haft ríkar fé- lagslegar skyldur og þeim ber að að- stoða fólk til að komast af. Og þeim hefur fjölgað. Þegar góðærið var í algleymi, árið 2007, fékk 2.421 fjöl- skylda framfærslustyrk frá borg- inni. Síðan þá hefur þeim fjölgað jafnt og þétt og 4.040 fengu þennan stuðning á síðasta ári. Einstæðar mæður og einhleypir, konur sem karlar, eru meginþorri þessa fólks. Og rétt í lokin er það menn- ingin. Borgarbókasafnið sóttu alls 636.970 manns í fyrra. Á Listasafn Reykjavíkur komu 171.138 og 23.334 manns sigldu út í Viðey; perluna á sundunum bláu eins og sumir kom- ast að orði. Fjölbreytt fjölskylduform í borginni  Fleiri fá aðstoð  Íbúum fjölgar jafnt og þétt  Barnasprengja eftir hrun 634 útlendingar búa í Neðra-Breiðholti eða 16,2% íbúa hverfisins 1.507 karlar í Reykjavík voru atvinnulausir í október sl. 50.155 íbúðir voru í Reykjavík árið 2011 og lítið hefur verið byggt síðan 1.069 kjarnafjölskyldur eru í Laugarneshverfinu 173 kíló af sopri féllu til frá hverjum Reykvíkingi í fyrra en 231 kg árið 2007 275 einstæðir foreldrar eru í Grafarholti og Úlfarsárdal 52 var að jafnaði fjöldi strætisvagnaferða hvers Reykvíkings í fyrra. 1.172 sóttu um félagslegar leigu- íbúðir hjá borginni í fyrra 68.980 bílar óku að jafnaði um Kringlumýrarbrautina í fyrra 292 búa við Dalhús í Grafarvogi 2 eru skráðir til heimilis í Síðumúla 354 nemendur voru í Breiðagerðis- skóla á síðasta ári 134 börn sækja frístundaheimilið Glaðheima við Langholtsskóla 96.980 var heildarfjöldi skráðra bíla í Reykjavík í lok síðasta árs 4.288 er heildarfjöldi gjaldskyldra stæða Bílastæðasjóðs 3 Reykvíkingar verða 100 ára á árinu 2.076 Reykvíkingar eru fæddir 1986, árið sem borgin varð 200 ára 803 einbýlishús eru í Vesturbænum REYKJAVÍK DAGA HRINGFERÐ 36  Árlega sækja tæplega 40 þúsund manns Ár- bæjarsafn heim, flestir yfir sumartímann. „Útisöfn eru því marki brennd að það er meira fjör á sumrin, þá er þetta virkilega lifandi safn,“ segir Guðbrandur Benediktsson sagn- fræðingur. „Þá er leiðsögufólkið okkar klætt í tíðarandabúninga og við höfum verið að fikra okkur aðeins áfram í að vera með litla leik- þætti; að leiðsögufólkið sé með smá handrit til að styðjast við. Við höfum kallað þetta leik- ræna leiðsögn og í fyrra gat fólk t.d. slegist í för með landpóstinum sem fór hérna á milli húsa og hitti íbúa,“ segir hann. Á sumrin gefst gestum jafnframt tækifæri til að sjá hvernig bústörfum var sinnt á árum áður en yfir vetrartímann snýst starfsemin að stórum hluta um að taka á móti skólahópum og fræða þá um sveitasamfélagið á Íslandi áð- ur fyrr. Í jólavertíðinni heimsækja safnið allt að fimm leikskólahópar á dag, til að læra um jólaundirbúninginn og jólahefðirnar í gamla daga en þrjá sunnudaga í aðventu, 8., 15. og 22. desember í ár, er efnt til sérstakrar jóla- sýningar. „Þá er opið frá 13-17 og við erum í sum- artempói. Þá erum við með fólk í öllum hús- unum að sýsla eitthvað, t.d. steypa kerti úr tólg, skera laufabrauð og svo er verið að búa til jólagjafir; skera út. Þannig að það er verið að sýna uppruna jólahefðarinnar sem við þekkjum enn þann dag í dag,“ segir Guð- brandur. holmfridur@mbl.is Á Árbæjarsafni ríkja gamlar hefðir jafnt að sumri sem vetri Morgunblaðið/Styrmir Kári Fræðsla Börn kynnast gömlum háttum á safninu. Þar verður opið á sunnudögum á aðventunni.  Forsvarsmenn farfuglaheimilisins Lofts við Bankastræti í Reykjavík fengu á dögunum af- henta vottun norræna umhverfismerkisins Svansins. Starfsemin er samkvæmt vottuninni í fremstu röð hvað varðar jákvæð umhverfis- og heilsuáhrif. „Efnanotkun er í lágmarki, orku- og vatns- notkun,“ segir Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Í tilkynn- ingu er eftir henni haft að vel gangi að flokka úrgang á farfuglaheimilum og sömuleiðis að miðla upplýsingum um umhverfisbótastarf til gesta. Loft er í Bankastræti 7 með gistirými fyr- ir allt að 100 gesti í vel búnum tveggja til átta manna herbergjum með baði. Loft er á þremur efstu hæðunum í gamla Samvinnubankahúsinu. Á efstu hæð er bar og kaffihús. Svanurinn er kominn á Loft Svanur Elva Jónsdóttir frá Umhverfisstofnun, t.v., afhendir Sigríði Ólafsdóttur vottunarskjal.  Erlendir ríkisborgarar í Reykjavík eru alls 9.350. Þetta kemur fram í Árbók Reykjavíkur. Fólk þetta á uppruna sinn víða, en alls eru Pólverjarnir 3.077, Litháar eru 824, Filipps- eyingar 338 og frá Víetnam eru 1.999. Alls 667 manns sem eiga ríkisfang sitt á Norðurlöndunum búa í Reykjavík og þar af eru Danirnir ríflega helmingur. Efra-Breiðholtið er hálfgerð nýlenda fólks sem er af er- lendu bergi brotið. Þar eru til dæmis margir Pólverjar bú- settir, en alls eiga 2.134 manns eða 24,6% íbúa með rætur annars staðar en á Íslandi heimkynni sín í Bergum, Hólum og Fellum, svo vísað sé til götunafna í Breiðholtsbyggðum hinum efri. Hlutfall þetta er annars mjög misjafnt milli hverfa. Til dæmis eru íbúar í Fossvogi 4.131, en útlending- arnir eru ekki nema 175 – eða 4,2% þeirra sem hverfið byggja. sbs@mbl.is Breiðholtið er sem nýlenda Dans Fjölmenning í Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 Sundlaugarnar eru einn vinsælasti samkomustaður borgarinnar. Það segir að minnsta kosti heilmikla sögu að alls 784.470 manns fóru í Laugardalslaugina í fyrra eða tæp- lega 5% fleiri en árið á undan. Yfir lengri tíma er fjölgun enn meiri og ber þá að taka fram að á sl. ári var unnið að miklum endurbótum og lagfæringum í Laugardalnum sem hefði átt að draga úr áhuga ein- hverra á því að fara þar í sund. Það var hins vegar öðru nær. Í flestum öðrum sundlaugum borgarinnar er gestafjöldinn í fyrra vel 200 þúsund manns og í mörg- um tilvikum svipaður frá ári til árs. Gestirnir eru þó talsvert fleiri í Ár- bæjarlauginni en öðrum og sjálf- sagt hefur þar nokkur áhrif að í Ár- bænum er fín inniaðstaða og leiktæki og fyrir vikið er laugin vin- sæl fjölskyldulaug Sú sundlaug borgarinnar sem fæstir sækja er Klébergslaug á Kjalarnesi. Tvímælis kann að orka að telja hana beinlínis borgarlaug – enda í úthverfi. Gestir þar í fyrra voru 8.500. sbs@mbl.is Samkomustaður borgar HUNDRUÐ ÞÚSUNDA SÆKJA SUNDLAUGARNAR Vatn Sundið er sæla og holl tómstund.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.