Morgunblaðið - 30.11.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Malín Brand
malin@mbl.is
Það var árið örlagaríka2008 sem nokkrir vinirstofnuðu fyrirtækið oghljóðútgáfuna Heyr heyr
ehf. Þeir framleiddu barnaefni á
geisladiskum og gekk það vonum
framar. „Okkur fannst svo rosa-
lega gaman að búa til barnaefni að
við höldum því bara áfram,“ segir
Sindri Bergmann Þórarinsson. Nú
hafa félagarnir fengið tvo leikara
og teiknara til liðs við sig og eru
byrjaðir að framleiða gæða-
barnaefni á fullri keyrslu. Efnið
verður frá og með morgundeg-
inum aðgengilegt á vefsíðunni
Barnaefni.is.
Rammíslenskt efni
Mest af því barnaefni sem
börn á Íslandi hafa aðgang að er
talsett erlent efni. Það er því ljóst
að framboð íslensks efnis getur
varla verið mikið en hópurinn
hyggst gera bragarbót á því þó
svo að þörfin sé í rauninni ekki
drifkrafturinn. „Ástæðan er samt
ekki endilega þörfin heldur er
þetta bara svo rosalega gaman.
Við erum að skapa heima og búa
til tónlist. Á meðan aðrir geta not-
ið þess með okkur þá er það
skemmtilegast,“ segir Sindri sem
sjálfur er hljóðmaður og deild-
arstjóri skapandi tæknideildar hjá
Kvikmyndaskóla Íslands.
Hópurinn samanstendur af
Sindra, Andra Franklín Þórarins-
syni viðskiptafræðingi, grafíska
hönnuðinum Jóhanni Leó Lindu-
Birgissyni, Ingvari Alfreðssyni
tónlistarmanni og síðast en ekki
Barnaefni sem gleð-
ur börn og foreldra
Fimm hress ungmenni tóku sig til og bjuggu til barnaefni. Ástæðan er einfaldlega
sú að þeim þykir það svo óskaplega skemmtilegt! Á morgun fer vefurinn
www.barnaefni.is í loftið og hópurinn leggur mikið í að efnið sem framleitt er sé á
góðu máli og gefandi. Það er leikið, skrifað og teiknað og miðað út frá því að for-
eldrar geti leyft börnunum að skoða efnið svo gott sem áhyggjulausir.
Fjölhæf Hópurinn samanstendur af hæfileikaríku fólki úr ýmsum áttum.
Hér er söng- og leikkonan Jana María Guðmundsdóttir á góðri stundu.
Heimar Ýmsir heimar hafa verið skapaðir og verður hægt að skyggnast inn
í þá á síðunni barnaefni.is. Jóhann Leó á heiðurinn af myndunum.
Í dag klukkan 13 verður opnuð sér-
stök jólasýning á Minjasafninu á Ak-
ureyri. Þar verða mest áberandi 82
hrekkjóttir íslenskir jólasveinar, fjöldi
gamalla jólatrjáa, jólaskraut, spenn-
andi jólasveinaveröld og rannsókn-
arstofa jólasveina.
Þessir 69 jólasveinar til viðbótar
þeim 13 sem flestum eru kunnugir
eru myndgerðir af listakonunni Ingi-
björgu H. Ágústsdóttur.
Þórarinn Blöndal listamaður og
leikmyndahönnuður hefur skapað
smáveröld jólasveinanna og þangað
verður áhugavert að skyggnast inn.
Bæjarbúar hafa plantað í sýn-
inguna skógi jólatrjáa sem eru frá ár-
unum 1920 til okkar tíma. Ýmiss kon-
ar skraut sem jólatrjánum fylgdi
verður til sýnis og ekki óvitlaust að
anda að sér angan liðinna jóla.
Jólasýning Minjasafnsins á Ak-
ureyri verður sett upp árlega fram-
vegis og er hún ein af afmælisgjöfum
ríkisins til Akureyrarbæjar.
Sýningin verður aldrei eins frá ári
til árs en alltaf kunnugleg, segir í til-
kynningu frá safninu.
Minjasafnið er opið daglega frá 30.
nóvember – 6. janúar kl 13-17.
Vefsíðan www.minjasafnid.is/
Flotsokka Einn af jólasveinunum 69.
82 hrekkjóttir
jólasveinar
Myndir eftir listmálarannHafstein Austmann verðatil sýnis og sölu í Smiðj-
unni listhúsi í Ármúla 36 núna um
helgina og næstu daga. Sýningin
hefst í dag, laugardaginn 30. nóv-
ember.
Um er að ræða vatnslitamyndir
eftir Hafstein frá ýmsum tímum sem
hafa verið á sýningum á Norð-
urlöndum. Þá verða einnig til sýnis
og sölu nokkur olíumálverk eftir
Hafstein, sem er með þekktustu
myndlistarmönnum landsins.
Fjölbreytt flóra
Listamaðurinn Hafsteinn Aust-
mann er tæplega áttræður að aldri
og hefur málað fjölda mynda á ferli
sínum og fá gestir að njóta margs á
þessari sýningu. ,,Þetta eru verk frá
ýmsum tímum, allt frá 1960-2010 og
spanna því hálfa öld, og því fjöl-
breytt flóra. Mér hefur alltaf fundist
sérstaklega gaman að mála með
vatnslitum,“ segir Hafsteinn.
Eftir nám í Myndlistarskólanum í
Reykjavík og Handíða- og mynd-
listaskólanum á fyrri hluta sjötta
áratugarins innritaðist Hafsteinn í
Academi de la Grande-Chaumiér í
París, þar sem hann stundaði fram-
haldsnám í einn vetur. Hann sýndi
með hinum virta sýningarhópi Reali-
tiés Nouvelles í París vorið 1955.
Hafsteinn hafði kynnst hinni geo-
metrísku afstraktlist í París og til-
einkaði sér þá liststefnu.
Trúr afstraktlistinni alla tíð
Hafsteinn hefur undanfarna ára-
tugi unnið jöfnum höndum með
vatns, ollíu- og akríllitum. Hann hef-
ur frá sínum fyrstu kynnum af af-
straktlistinni haldið tryggð við hana
og litameðferðin er hans sterka ein-
kenni.
,,Hafsteinn Austmann er einn af
bestu listmálurum sinnar kynslóðar.
Verk eftir hann vekja ávallt mikla
athygli og þykja mjög eftirsótt,“
segir Bjarni Sigurðsson, eigandi
Smiðjunnar listhúss.
Hafsteinn hefur haldið rúmlega 30
einkasýningar og tekið þátt í miklum
fjölda samsýninga víða um heim.
Sömuleiðis er verk Hafsteins að
finna í öllum helstu listasöfnum
Norðurlanda.
Enn fremur hafa verk hans hlotið
ýmsar viðurkenningar, meðal ann-
ars alþjóðlegu Windsor & Newton-
verðlaunin fyrir vatnslitamyndir.
Hafsteinn hefur einnig hlotið tvenn
verðlaun fyrir útilistaverk og gert
keramikmynd fyrir Borgarspít-
alann.
Verk eftir Hafstein Austmann allt frá árinu 1960 til sýnis og sölu
Verk Hafsteins Austmanns sýnd
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamaður Hafsteinn Austmann hefur alla tíð sýnt afstraktlistinni trúnað.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Hiti, hamingja og ótrúleg litadýrð bíður
okkar í þessari rólegu og notalegu
ferð til Balí. Við leggjum áherslu á
að næra líkama og sál og byrjum því
alla daga með göngutúr og jóga
við sólarupprás. Við munum fara í
næturgöngu upp á hið heilaga fjall
Gunung Agung, sem er algjörlega
Á síðustu árum hefur hið sögufræga
land Burma opnast æ meira fyrir
umheiminum. Nú býðst ferð um
þetta sérstæða og fagra land, þar
sem menningarminjar, fornar
byggingar og fögur náttúra eru
hvarvetna. Mannlífið er afar litríkt og
mögnuð upplifun. Einn af hápunktum
ferðarinnar er þegar við göngum upp
að hofinu Pura Luhur Lempuyang þar
sem við sköpum okkar eigin athöfn.
Í þessari töfraveröld elstu búddatrúar
í heiminum trúir fólk á hið fallega
þakklæti „gefðu og þér verður gefið“.
Burma - hið gullna land
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir4.-15.mars
Kynningarfundur verður haldinn 5. desember kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Balí - hugur, líkami og sál
Fararstjóri: Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir2.-14.mars
Kynningarfundur verður haldinn 4. desember kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Sp
ör
eh
f.
margslungið, fjölmargt í lifnaðarháttum
og ýmsum efnislegum þáttum er
vestrænum augum framandi. Ferðlög
í hjólavögnum, gullhof, vatnaþorp
umkringt gróðurvöxnum fjallatoppum,
lengsta tekkbrú í heimi, ávaxtarækt í
fljótandi görðum, svo eitthvað sé nefnt.