Morgunblaðið - 30.11.2013, Síða 11
Skemmtilegt Hópurinn að baki síðunni er hress og hefur unun af því að búa til barnaefni. Enda er það skemmtilegt!
síst leikurunum tveimur, Jönu
Maríu Guðmundsdóttur og Viktori
Má Bjarnasyni.
Börn í fréttum
Inni á síðunni sem formlega
verður opnuð á morgun, er alls
kyns efni eins og Sndri útskýrir:
„Allt efni sem maður man eftir að
hafa lesið í Æskunni og ABC fær
sinn sess inni á síðunni undir
lesnu efni og fræðslu. Þarna verð-
ur líka mikið af glænýrri frum-
saminni tónlist. Svo erum við með
flokk sem heitir fréttir og þar ætl-
um við að vera með fréttir af
börnum, stundum fluttar af börn-
um. Við vitum nefnilega að öll
börn eru snillingar og við erum
svolítið að kafa ofan í það,“ segir
hann.
Auk þess er frumsamið efni á
síðunni, bæði myndbönd og mynd-
skreytt hljóðævintýri sem Jóhann
Leó hefur myndskreytt listilega.
Myndbönd fyrir krakka af You-
Tube verða einnig aðgengileg á
síðunni en þó með þeim hætti að
fleiri tengd myndbönd komi ekki
óumbeðið á skjáinn. Foreldrar
þekkja það mætavel að YouTube
er hættulegt leiksvæði fyrir börn.
Á vefnum www.barnaefni.is er ör-
yggi efst á baugi og eru einkunn-
arorð síðunnar „öryggi, skemmtun
og fræðsla“.
Áhugasamir geta, sem fyrr
segir, skoðað síðuna með börnum
sínum á morgun og séð hvað hóp-
urinn hefur fram að færa og von-
andi skemmt sér vel og fræðst um
leið.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Í kringum jólin er gott að grípa í
spil og jafnvel að gefa heilanum
krefjandi verk að glíma við.
Orðaleit er spil fyrir 2-4 leik-
menn þar sem kúnstin er í því
fólgin að finna falin orð fyrstur
leikmanna og þannig er leikið á
andstæðinginn.
Spilinu fylgir ýla og hringir til
merkinga. Framvinda leiksins er
í grófum dráttum þessi: Finndu
orð, gríptu ýluna, kreistu hana
og settu merkjahringi á orðið
sem þú fannst.
Hér er um að gera að vera
eins fljótur og hægt er því aðrir
leikmenn geta fundið fleiri orð
sem fara yfir orðið sem maður
var að merkja við og þar með
tekið merkjahringinn af borð-
inu.
Hér er aðalatriðið að vera
snöggur að hugsa og merkja og
sá leikmaður sem er með flesta
merkjahringi við leikslok fer
með sigur af hólmi.
Aldur 7+
Verð Frá 4.995 kr.
Sölustaðir: A4, Bónus, Elko, Ey-
mundsson, Hagkaup og Spilavin-
ir.
Kostir Fantafín hugarleikfimi.
Gallar Þegar leikar æsast getur
ýlan skotið þeim sem ekki eru
með í spilinu skelk í bringu.
Spil vikunnar Orðaleit
Kúnstin að finna falin orð
Árlegur jólamarkaður í Álfhól á Bjart-
eyjarsandi í Hvalfirði verður haldinn í
tólfta skiptið í dag. Eitt og annað
verður um að vera og fjölbreytt úrval
framleiðsluvara ú sveitinni til sölu.
Góðir gestir líta í heimsókn og má
þar nefna þau Svavar Halldórsson
matgæðing, Jóhönnu Bergmann Þor-
valdsdóttur geitabónda og ritstjór-
ann Ragnhildi Sigurðardóttur.
Það verður lifandi tónlist fyrir tón-
elska og mæta bæði flautuleikarar og
söngfuglar.
Einnig verða jólatónleikar söng-
deildarinnar á Akranesi og hefjast
þeir klukkan 16:30.
Endilega...
Morgunblaðið/Eyþór
Markaður Hangikjöt, handverk og
söngur við Álfhól í dag.
... farið á jólamarkað
Dansskólinn SalsaIceland mun efna
til sérstaks átaks í dag frá klukkan
11-16. Átakið felst í því að dansað
verður til styrktar Barnaspítala
Hringsins í dansstúdíói SalsaIcel-
and á Grensásvegi 12a.
Þetta er annað árið í röð sem
slíkur góðgerðardagur er haldinn
til styrktar Barnaspítalanum.
Boðið verður upp á margvíslega
danstíma yfir daginn, bæði fyrir
byrjendur og vana.
Ekki er þörf á að mæta með dans-
félaga.
FImmhundruð krónur kostar í
hvern tíma – eða frjáls framlög vilji
fólk gefa meira.
Um kvöldið verður haldið salsa-
ball og rennur aðgangseyrir
óskertur til Barnaspítalans og veg-
legir happdrættisvinningar verða í
boði WOW.
Öllum eru velkomið að líta við yf-
ir daginn eða um kvöldið, óháð því
hvort fólk vill dansa. Viljinn til að
styrkja gott málefni er aðalatriðið.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á vefsíðunni www.salsaicel-
and.is
Dansað
til góðs
Styrkir til náms
og rannsókna
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar styrkir náms-
menn og rannsóknarverkefni á sviði umhverfis- og
orkumála. Til úthlutunar 2014 eru 52 milljónir króna.
Styrkir til efnilegra nemenda í meistara- eða
doktorsnámi á sviði umhverfis- eða orkumála.
Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og
orkumála, veittir til að mæta kostnaði vegna vinnu
sérfræðinga, þátttöku meistara- og doktorsnema
og öðrum útgjöldum.
Umsækjendur um styrk til
rannsóknarverkefna þurfa
að leggja fram lýsingu á
verkefni sínu, og rökstuðning
fyrir því að verkefnið tengist
markmiðum sjóðsins.
Umsóknareyðublöð og
nánari upplýsingar eru
á www.landsvirkjun.is.
Umsóknum ásamt fylgi-
gögnummá skila rafrænt
á orkurannsoknasjodur@
landsvirkjun.is. Öllum
umsóknum verður svarað
og farið með þær sem
trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er
til 9. janúar 2014.