Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 14
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 201414
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja-
nesbæ heldur sterkri stöðu sinni í
bæjarstjórn, samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið.
Flokkurinn fengi 44,6% atkvæða og
sex bæjarfulltrúa, en var með 52,8%
í kosningunum 2010 og fékk þá sjö
menn kjörna.
Samfylkingin, sem á nú þrjá full-
trúa í minnihluta bæjarstjórnar, tap-
ar enn meira fylgi samkvæmt könn-
uninni. Flokkurinn var með 28,4% í
kosningunum 2010 en fengi núna
16,4% og tvo menn. Framsóknar-
flokkurinn myndi sömuleiðis tapa
fylgi, fara úr 14% vorið 2010 í 11,8% í
könnuninni nú en halda sínum
bæjarfulltrúa.
Tveir nýir flokkar myndu ná inn
manni í Reykjanesbæ, eða Björt
framtíð og Píratar. Píratar myndu fá
11,3% og einn mann og Björt framtíð
10,3% og einnig einn fulltrúa. Vinstri
græn myndu fá svipað fylgi og í síð-
ustu kosningum, eða 4,6% og engan
mann. Annan flokk eða lista valdi að-
eins 1% en hafa ber í huga að um
þriðjungur þeirra sem svöruðu
spurningu um flokkana sagðist vera
óákveðinn í afstöðu sinni.
Lítill munur eftir kynjum
Skoðanakönnunin fór fram dag-
ana 7. til 28. nóvember síðastliðinn.
Félagsvísindastofnun spurði eftir-
farandi spurningar: „Ef bæjar-
stjórnarkosningar væru haldnar á
morgun, hvaða flokk eða lista mynd-
ir þú kjósa?“
Úrtakið var samanlagt 682 manns
og farnar voru tvær leiðir til að ná til
kjósenda. Annars vegar var hringt í
500 manna tilviljunarúrtak úr þjóð-
skrá meðal fólks á aldrinum 18 ára
og eldri. Hins vegar var send net-
könnun til 182 manna úrtaks úr
netpanel Félagsvísindastofnunar.
Alls fengust 346 svör frá svarendum
á aldrinum 18-90 ára og var svar-
hlutfallið 54%.
Skipt eftir kyni svarenda þá er
óvenju lítill munur innan hvers
flokks. Mestur er munurinn hjá
Samfylkingunni en 19% karla sögð-
ust styðja þann flokk og 12%
kvenna. Hjá Sjálfstæðisflokknum
eru hlutföllin nánast jöfn, eða 44%
karla og 45% kvenna í Reykjanesbæ
nefndu flokkinn.
Afstaða eftir aldri lítur helst
þannig út að stuðningur við Sjálf-
stæðisflokkinn eykst eftir því sem
svarendur eru eldri, eða 27% stuðn-
ingur í yngsta aldurshópnum upp í
53% í þeim elsta, 60 ára og eldri. Í
þeim aldurshópi voru aðeins 5% sem
nefndu Bjarta framtíð og 5% Pírat-
ana. Í hópi 18-29 ára nefndu 20% Pí-
ratana, 20% Samfylkinguna og 13%
Bjarta framtíð. Aldursdreifingin er
nokkuð jöfn meðal framsóknar-
manna og VG-liða.
48,4% nefndu atvinnumálin
Miðað við hvað svarendur kusu í
þingkosningunum síðasta vor þá er
sem fyrr í þessum könnunum að
koma í ljós mest tryggð við Sjálf-
stæðisflokkinn. Af þeim sem kusu
flokkinn í vor ætla 97% að kjósa
hann aftur næsta vor. Tryggðin er
einnig nokkuð mikil hjá Samfylking-
unni, eða upp á 93%. Hjá öðrum
flokkum er hún minni. Sambærileg
hlutföll eru 73% hjá Bjartri framtíð,
74% hjá Framsókn, 60% hjá VG og
53% hjá Pírötum. Fimmtungur
þeirra sem kusu VG í þingkosn-
ingum ætlar að kjósa Samfylk-
inguna í bæjarstjórnarkosningum í
Reykjanesbæ og 26% framsókn-
armanna ætla að kjósa Sjálfstæð-
isflokkinn.
Atvinnuleysi hefur verið mikið á
Suðurnesjum eftir að bandaríski
herinn fór 2006 af Vellinum og það
kemur vel fram í skoðanakönnun
Félagsvísindastofnunar. Einnig var
spurt hvað kjósendum þætti vera
mikilvægasta pólitíska verkefnið
sem sveitarfélagið stæði frammi fyr-
ir um þessar mundir.
Af þeim sem svöruðu töldu 48,4%
að atvinnumálin væru mikilvægasta
verkefnið. Næstflestir, eða 20,8%,
nefndu fjármál sveitarfélagsins.
Aðrir málaflokkar komu nokkuð aft-
ar, eða 9,1% á húsnæðismálin, 6,9%
nefndu velferðar- og félagsþjónustu
og 6,3% skóla- og tómstundamál.
Aðrir málaflokkar fengu mjög litla
athygli, sjá nánar hér til hliðar.
Fleiri konur en karlar nefndu at-
vinnumálin en mun fleiri karlar
töldu fjármálin mikilvægust. At-
vinnumálin voru efst í huga kjós-
enda í öllum aldurshópum og sama
hvort afstaðan er einnig skoðuð eftir
menntun, starfsstétt og stöðu á
vinnumarkaði, tekjum og afstöðu til
flokka í bæjarstjórn. Þó voru fleiri
meðal stuðningsmanna Samfylk-
ingar og VG sem nefndu fjármálin
frekar en atvinnumálin.
Björt framtíð og Píratar komast að
Sjálfstæðisflokkurinn heldur meirihluta sínum í Reykjanesbæ samkvæmt könnun Félagsvísinda-
stofnunar Samfylkingin tapar manni en Framsókn heldur sínum Atvinnumálin langmikilvægust
Píra
tar
Fylgi stjórnmálaflokka í Reykjanesbæ
samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 6.-28. nóvember 2013
vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014
Bjö
rt f
ram
tíð
?
Ann
að
Svör alls: 346
Svarhlutfall: 54%
Nefndu einhvern flokk: 195
Veit ekki: 109
Skila auðu/ógildu: 18
Ætla ekki að kjósa: 9
Vilja ekki svara: 15
Fjöldi bæjarfulltrúa,
eftir síðustu kosningar.
Niðurstöður kosninga 2010 Fylgi skv. könnun 6.-28. nóv.
Fjöldi bæjarfulltrúa,
væri gengið til kosninga nú.
Sam
fylk
ing
Vin
stri
-græ
n
Fra
ms
ókn
arfl
.
Sjá
lfst
æð
isfl.
52,8%
28,4%
14,0%
4,9%
44,6%
16,4%
11,8% 11,3% 10,3%
4,6%
1,0%
7 3 16 2 1 1 1
Mikilvægustu verkefnin í sveitarfélaginu
Samkvæmt könnun 6.-28. nóvember 2013
Atvinnumál
Fjármál sveitarfélagsins
Húsnæðismál
Velferðar- eða félagsþjónusta
Skóla- og tómstundamál
Íbúalýðræði og gagnsæi í stjórnsýslu
Önnur mál
Samgöngu- og skipulagsmál
Umhverfismál
48,4%
20,8%
9,1%
6,9%
6,3%
3,8%
2,8%
1,3%
0,6%
Reykjanesbær
» Sjálfstæðisflokkurinn hefur
verið við völd í Reykjanesbæ
mörg undanfarin ár. Oddviti og
bæjarstjóri frá árinu 2002 hef-
ur verið Árni Sigfússon.
» Í kosningunum 2010 fékk
flokkurinn 52,8% atkvæða og
sjö fulltrúa í hreinum meiri-
hluta, líkt og árið 2006.
» Tveir flokkar eru í minni-
hluta bæjarstjórnar, Samfylk-
ingin með þrjá fulltrúa og
Framsóknarflokkur með einn.
» Forseti bæjarstjórnar er
Böðvar Jónsson og Gunnar
Þórarinnsson er formaður bæj-
arráðs.
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Allt bendir til þess að útflutnings-
tekjur ferðaþjónustu yfir árið í
heild verði meiri en bæði útflutn-
ingstekjur sjávarútvegs og áls.
Það mun þá verða í fyrsta skipti
sem ferðaþjónustan er leiðandi
þáttur í gjaldeyrisöflun í sam-
anburði við ál og sjávarútveg.
Fram kemur í Þjóðarhag, árs-
riti hagfræðideildar Landsbank-
ans, að útflutningstekjur ferða-
þjónustunnar hafi numið 240
milljörðum króna á síðasta ári.
Til samanburðar námu útflutn-
ingstekjur sjávarútvegs 269 millj-
örðum króna og álframleiðslufyr-
irtækja 225 milljörðum króna.
Ferðamönnum fjölgar ört
Hagfræðideildin bendir á að á
fyrstu níu mánuðum ársins hafi
19% fleiri erlendir gestir farið
um Leifsstöð en á sama tímabili í
fyrra. Ef gert sé ráð fyrir að
ferðaþjónusta vaxi með sama
hlutfalli út árið og að meðalút-
flutningur áls og sjávarútvegs
fyrstu níu mánuðina verði með
sama hætti þrjá seinustu mán-
uðina, þá muni ferðaþjónustan
verða stærsta útflutningsgreinin
á árinu 2013.
Útflutningstekjur ferðaþjón-
ustu hafa aukist mun meira und-
anfarin ár en útflutningstekjur
sjávarútvegs og áls. Frá árinu
2009 til 2012 hefur ferðaþjón-
ustan vaxið um 54% en á sama
tíma hefur útflutningur sjávaraf-
urða aukist um 29% og áls um
32%.
Hagfræðideildin gerir ráð fyrir
að vöxtur ferðamanna hingað til
lands verði um 19% á þessu ári,
15% á því næsta og 10% árið
2015. Spáir hún því að útflutn-
ingstekjurnar muni nema 392
milljörðum króna árið 2016. Það
yrði um 63% aukning frá árinu
2012.
Ferðaþjónustan stærsta út-
flutningsgreinin á þessu ári
Útflutningstekjurnar tæpir 400 milljarðar árið 2016
Útflutningstekjur stoðanna þriggja
Hlutfall af heildarútflutningi
Heimild: Hagstofa Íslands, Hagfræðideild Landsbankans.
100%
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
2009 2010 2011 2012 2013
Ferðaþjónusta Sjávarafurðir Ál og álafurðir
ALHLIÐA
GÓLFSÁPA
með ilmi, 1 l.
Verð 579 kr.
Skeifunni 11 | Sími 515 1100
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
23
27
www.rekstrarland.is
NÁTTÚRUSÁPA
á allt tréverk.
Verð frá 778 kr.
ALHLIÐA
HREINSIEFNI
með sítrónuilmi, fyrir
harða fleti, 750 ml.
Verð 619 kr.
Sápur
Rekstrarland býður fjölbreytt
og vandað úrval af sápum fyrir
allar tegundir þrifa.