Morgunblaðið - 30.11.2013, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Jólatréð á
Hálsatorgi er
gjöf frá Norr-
köping í Svíþjóð
og mun sendi-
herra Svíþjóðar,
Bosse Hedberg,
afhenda það
formlega um kl.
15. Margrét
Björnsdóttir,
forseti bæj-
arstjórnar, tek-
ur við því fyrir
hönd Kópavogs-
bæjar. Dag-
skráin á Hálsatorgi hefst þó
klukkutíma fyrr eða kl. 14.00.
Aðventuhátíð Kópavogsbæjar verð-
ur haldin í dag, laugardaginn 30.
nóvember, þar sem jólaljósin á
vinabæjartrénu á Hálsatorgi verða
tendruð. Rauðhetta og úlfurinn frá
Leikhópnum Lottu ætla að stjórna
henni með söng og dansi á torginu
en hátíðin teygir anga sína yfir í
menningarhúsin á Borgarholtinu.
Eyþór Ingi Eurovision-söngvari
tekur lagið, jólasveinar koma við,
jólahús prýða torgið full af góðgæti
og gjafavörum, Karlakór Kópavogs
syngur í Gerðarsafni, jólakötturinn
verður á Bókasafni Kópavogs og
sölusýning á hönnun og handverki
verður í safnaðarheimili Kópavogs-
kirkju.
Aðventuhátíð Kópavogsbæjar haldin í dag
Jólaljósin tendruð í
Kópavogi í fyrra.
Ljósin á Hamborgartrénu verða tendruð kl. 17.00 í dag,
laugardaginn 30. nóvember, en tréð er á Miðbakka
Reykjavíkurhafnar. Þetta er í 49. skiptið sem góðir vinir
Íslands í Hamborg senda jólatré til Reykjavíkurhafnar
en fyrsta tréð kom árið 1965.
Við athöfnina flytja fulltrúar frá Hamborg stutt ávörp
um leið og þeir afhenda gjöfina og Hjálmar Sveinsson,
stjórnarformaður Faxaflóahafna sf., þakkar fyrir.
Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Thomas Meister,
ávarpar gesti. Að athöfn lokinni er gestum boðið í heitt
súkkulaði og bakkelsi í Hafnarhúsinu. Lúðrasveit Hafn-
arfjarðar leikur þýsk jólalög undir stjórn Finnboga Óskarssonar.
„Þessi fallegi siður, að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar, er tileink-
aður íslenskum togarasjómönnum sem sigldu til Hamborgar með fisk strax
eftir seinni heimsstyrjöldina. Þess er sérstaklega minnst að sjómennirnir
gáfu svöngu og ráðlausu fólki á hafnarsvæðinu fiskisúpu á meðan verið var
að landa úr togaranum,“ segir í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum.
Ljósin tendruð á Hamborgartrénu
Hamborgartréð.
Aðventuhátíð jólasveinanna í
Dimmuborgum verður laugardag-
inn 30. nóvember kl. 16-20.
„Jólasveinarnir í Dimmuborgum
verða í fullu fjöri að undirbúa sig
fyrir jólin. Það verður mikil gleði
þar sem að jólasveinarnir taka á
móti gestum, spjalla, syngja og
segja sögur,“ segir í tilkynningu.
Markaðstjald verður á bílastæð-
inu í Dimmuborgum þar sem seldar
verða hinar ýmsu vörur sem henta
vel í jólapakkann. Gestir geta svo
keypt sér heitt kakó, kjötsúpu og
fleira girnilegt. Boðið verður upp á
leynitónleika Inspired by Iceland
klukkan 18.
Grýlusjóður verður á sínum stað
þar sem gestir eldri en 18 ára
greiða 1.000 krónur.
Það verður sannkölluð aðventu-
stemning í Dimmuborgum um
helgina.
Aðventuhátíð í
Dimmuborgum
Hin árlega Aðventuhátíð Kven-
félagsins Einingar í Holtum verður
haldin sunnudaginn 1. desember í
Laugalandi í Holtum.
Sveita- og handverksmarkaður
verður hátíðinni. Hringur, kór eldri
borgara syngur og nemendur
Laugalandsskóla verða með tónlist-
aratriði. Bókakynningar verða og
spunasystur sýna ullarvinnslu. Þá
verður kaffisala og tombóla til
styrktar barnasjóði Einingar. Jóla-
sveinar koma í heimsókn og kveikt
verður á jólatrénu um kl. 15.30. Há-
tíðin stendur frá kl. 13 til 16. Allir
eru velkomnir.
Aðventuhátíð á
Laugalandi Holtum
Hinn árlegi jólabasar í Kattholti, Stangarhyl
2, Reykjavík, verður haldinn í dag, laug-
ardaginn 30. nóvember kl. 11-16. Margt
góðra muna verður á boðstólum s.s. jólakort,
jólamerkimiðar, handunnið jólaskraut, kerti
og fleira sem tengist jólum. Einnig dagatal
ársins 2014, ásamt leikföngum bókum,
myndum, skartgripum og mörgu fleira. Þá
verða smákökur og fleira gómsætt bakkelsi
til sölu. „Síðast en ekki síst verða sýndar
yndislegar kisur, sem allar eiga það sameig-
inlegt að þrá að eignast ný og góð heimili,“ segir í tilkynningu frá Katt-
holti. Allur ágóði fer til styrktar óskilakisunum í Kattholti. „Tilvalið er að
byrja aðventuna með því að heimsækja Kattholt og allir eru hjartanlega
velkomnir,“ segir í tilkynningu frá basarnefndinni.
Kisur þrá að eignast ný og góð heimili
Óskilakisa sem bíður eftir heimili.
Hinn árlegi jólabasar KFUK verður
haldinn laugardaginn 30. nóvember
kl. 14-17 í húsi KFUM og KFUK á
Holtavegi 28.
„Til sölu verður fallegt og vand-
að handverk ásamt ljúffengum
heimabökuðum jólakökum, nýbak-
aðar vöfflur og kakó. Hægt að gera
góð kaup á frábærum og einstökum
jólagjöfum og styrkja um leið starf
KFUM og KFUK,“ segir í tilkynn-
ingu. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
Jólabasar KFUK
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður
Vindasöm vetrarbyrjun með til-
heyrandi úrkomu, ýmist í föstu eða
fljótandi formi, hefur reynt á þolrif
Grundfirðinga allt fram til þessa.
Það var því vel til fallið að einn af
fyrstu viðburðum á Rökkurdögum
sem haldnir voru í nóvemberbyrj-
un hét „ Ég elska þig stormur“.
Þar var um að ræða mjög fróðleg-
an fyrirlestur um vinda og veð-
urfar og áhrif landslags og gróðurs
á þá. Fyrirlestrinum sem Guðrún
Nína Petersen veðurfræðingur
hélt var vel tekið af heimamönnum
sem fjölmenntu á viðburð þennan.
Rökkurdagar sem haldnir hafa
verið árlega nú um nokkurra ára
skeið þóttu takast mjög vel í þetta
sinn og voru allir viðburðir vel
sóttir og efni þeirra við allra hæfi.
En þeir voru svo margir að of
langt mál yrði upp að telja. Rétt er
þó að lokum að geta fyrirlesturs
og sýningar um franska sjómenn
við Íslandsstrendur sem María
Óskarsdóttir sá um en á þeim við-
burði voru einmitt staddir fulltrúar
vinabæjar Grundarfjarðar frá Pa-
impoil í Frakklandi en rökk-
urdagar voru nokkuð frönsku-
skotnir að þessu sinni í tilefni af
komu þeirra. Saga skútusiglinga
og veiða Frakka hér við land og
m.a. í Grundarfirði fyrr á öldum er
allrar athygli verð.
Kvikmyndahátíðin Northern
Wave tók síðan við um leið og
Rökkurdögum linnti, þar er líka
um að ræða viðburð sem fest hefur
sig í sessi í menningarlífi Grund-
firðinga. Á bak við þann viðburð
stendur kvikmyndagerðarmað-
urinn og Grundfirðingurinn Dögg
Mósesdóttir. Um er að ræða al-
þjóðlega stuttmynda- og tónlistar-
myndbandakeppni. Keppnin hefur
vakið athygli víða um heim og
þeim sem senda myndir í keppn-
ina fjölgar með hverju ári. Meðan
á hátíðinni stendur er bryddað
upp á viðburðum eins og fiskrétta-
keppni þar sem heimamenn
spreyta sig í eldamennskunni og
bjóða gestum og gangandi upp á
smakk og á öldurhúsi bæjarins er
boðið upp á drynjandi tónlistar-
viðburði og dans.
Síldin lætur ekki að sér hæða
frekar en fyrri daginn og fyllir
Kolgrafafjörðinn sem aldrei fyrr.
Hér ná menn nú vart andanum yf-
ir uppátækjum sunnanmanna sem
teknir eru til við að reyna að
sprengja síldina út úr firðinum
með neðansjávarkínverjum og með
góðum árangri að eigin sögn. En
hvað þeir ætla síðan að gera ef
það tekst að reka síldina undir
brúna er mönnum hér enn hulin
ráðgáta.
Morgunblaðið/ Gunnar Kristjánsson
Síldveiðar Stóru skipin athafna sig á Urthvalafirði framan við Kolgrafafjörð. Þau litlu eru innan brúar.
Vindasöm vetrarbyrjun
hefur reynt á þolrifin
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
24 dagar til jóla
Kringlan / Sími 533 4533
Mikið úrval af
töskum og
fallegum
fylgihlutum