Morgunblaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 30
KÖNNUN ATVINNULÍF OG LÍFSKJÖR
DAGA
HRINGFERÐ
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Mikil aukning í ferðaþjónustu, sam-
göngubætur og efling skólahalds er
forystufólki á landsbyggðinni efst í
huga þegar spurt er um það jákvæð-
asta sem gerst hefur í byggða- og at-
vinnumálum á undanförnum árum.
Áberandi er að mörgum á
höfuðborgarsvæðinu finnst fátt eða
ekki nógu mikið hafa gerst sem upp-
örvandi geti talist. Raddirnar af
landsbyggðinni eru jákvæðari en af
höfuðborgarsvæðinu.
Bjargvættur lítilla byggðarlaga
Víða úti á landi hefur vöxtur
ferðaþjónustunnar leitt til þess að
líf hefur færst í byggðarlög þar
sem doði og samdráttur var áður.
Vegna hinna erlendu ferðamanna
þarf að hafa opin bankaútibú,
póstafgreiðslur og verslanir sem
til stóð að loka eða draga saman
þjónustu. Þörf fyrir gistingu
hefur stóraukist og dæmi eru um
að í litlum plássum þar sem búa
innan við tvö hundruð manns séu
rekin fimm hótel eða fleiri.Eftir-
spurn er eftir hvers kyns leiðsögn
og aðstoð af ýmsu tagi í ferða-
þjónustunni. Tækifæri til nýsköp-
unar á þessu sviði eru margs konar
og bíða hugmyndaríks framtaks-
fólks.
Skólarnir
Á Vesturlandi nefna menn auk
ferðaþjónustunnar vöxt skólanna,
framhaldsskólans á Snæfellsnesi og
háskólanna á Bifröst og Hvanneyri.
Ungt fólk geti nú verið lengur í
heimabyggð. Háskólarnir skapi
störf fyrir langskólagengið fólk og
efli mannlífið í landshlutanum.
Samgöngur um svæðið hafa ger-
breyst með Vatnaleiðinni svoköll-
uðu og reglulegum ferðum almenn-
ingsvagna til
höfuðborgarsvæðisins.
Gangur í fiskeldi
Á Vestfjörðum er það vöxtur fisk-
eldis sem stendur upp úr auk ferða-
þjónustunnar. Mestur er uppgangur
þess í sunnanverðum landshlut-
anum. Margs konar nýsköpun er
einnig í gangi í öðrum greinum sjáv-
arútvegs. Samgöngur hafa einnig
breyst mjög til batnaðar á Vest-
fjörðum með Óshlíðargöngum, brúm
yfir Gilsfjörð, nýrri brú yfir Mjóa-
fjörð og veginum um Arnkötludal
(Þröskulda). Þá er Kalkþör-
ungaverksmiðjan nýja í Bíldudal
einnig nefnd. Strandsiglingar skipa-
félaganna, sem hafnar eru að nýju,
mælast einnig vel fyrir á Vest-
fjörðum.
Ný tækifæri vegna Alcoa
Á Norðurlandi er það auk ferða-
þjónustunnar efling skólastarfsem-
innar og bættar samgöngur sem
nefnt er sem dæmi um jákvæða þró-
un síðustu ára. Miklar vonir eru
bundnar við Vaðlaheiðargöngin fyr-
irhuguðu.
Á Austurlandi hefur starfsemi ál-
versins í Reyðarfirði leitt af sér
margvísleg ný atvinnutækifæri.
Ferðir starfsfólksins þar til vinnu
víða úr nágrenninu urðu kveikjan að
nýju almenningssamgöngukerfi á
svæðinu. Ferðaþjónustan hefur ger-
breytt lífsmöguleikum minna byggð-
arlaga á svæðinu. Þá er talsverð
gróska í sjávarútvegi og nefna
margir hana.
Ánægja með strætó
Á Suðurlandi nefna menn helst
blómstrandi ferðaþjónustu. Góður
gangur er þó einnig í útgerð og
fiskvinnslu á svæðinu. Reglulegar
ferðir strætós til og frá höfuð-
borgarsvæðinu þykja til mikilla
bóta.
Á Suðurnesjum er mönnum efst í
huga að verulega hefur dregið úr at-
vinnuleysinu sem legið hefur eins og
mara á svæðinu. Þá vekur vöxtur í
frumkvöðla- og nýsköpunarstarfi
vonir um bjartari tíð. Ásbrúarverk-
efnið þykir og hafa heppnast vel.
Umsvifin á Keflavíkurflugvelli
vegna aukins ferðamannastraums
hafa og jákvæð áhrif um öll Suð-
urnes.
Fátt jákvætt
Í Reykjavík og á höfuðborg-
arsvæðinu er efling ferða-
þjónustunnar einnig talin það já-
kvæðasta sem gerst hefur í
atvinnulífinu á undanförnum árum.
Athygli vekur að margir for-
ystumenn á svæðinu finna fátt já-
kvætt til að hafa orð á.
Ferðaþjónustan gerbreytir
stöðunni víða úti á landi
Bjargvættur lítilla byggðarlaga Efling skólastarfs mönnum ofarlega í huga
Morgunblaðið/Eggert
Lyftistöng Ferðamannastraumurinn til Íslands á undanförnum misserum hefur haft mjög örvandi áhrif á lífskjör og mannlíf á landsbyggðinni. Sums staðar í litlum byggðarlögum þar sem
samdráttur blasti við hafa þjónustuaðilar orðið að endurskoða áform sín. Póstafgreiðslur, bankaútibú og verslanir þar sem átti að loka eða takmarka þjónustu eru nú opnar.
3Hvað er það jákvæðasta
sem gerst hefur
í byggða- og
atvinnumálum á
undanförnum
misserum?
VIÐ ERUM
SÉRFRÆÐINGAR
Í GASI
Þú getur verið afslappaður og öruggur
við grillið með AGA gas. Öruggur um
að þú ert að nota gæðavöru og að
þú fáir góða þjónustu þegar þú þarft
áfyllingu á gashylkið, hvort sem þú
nýtir þér heimsendingarþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú
heimsækir söluaðila AGA.
Farðu á www.gas.is og finndu
nálægan sölustað eða sæktu
öryggisleiðbeiningar og fáðu
upplýsingar um AGA gas.
www.GAS.is