Morgunblaðið - 30.11.2013, Síða 47
FRÉTTIR 47Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Stjórnarandstæðingar í Taílandi réð-
ust í gær inn á lóð höfuðstöðva hers-
ins í Bangkok og sátu um byggingar
flokks Yingluck Shinawatra forsætis-
ráðherra til að krefjast þess að hún
segði af sér.
Stjórnarandstæðingarnir saka
Yingluck um að vera strengjabrúða
bróður síns, auðkýfingsins Thaksins
Shinawatra, sem her Taílands steypti
af stóli forsætisráðherra árið 2006.
Stjórnarandstæðingarnir vilja að
ríkisstjórnin víki fyrir „þjóðarráði“
sem verði skipað án kosninga.
„Mótmælendurnir og leiðtogar
þeirra vilja fyrst og fremst valda
glundroða og eyðileggingu, líklega í
von um að herinn þurfi að grípa í
taumana og taka völdin af ríkisstjórn-
inni,“ hefur fréttaveitan AFP eftir
Andrew Walker, áströlskum sérfræð-
ingi í stjórnmálum Taílands.
Stjórnarandstæðingarnir réðust
inn um hlið við höfuðstöðvar hersins,
stóðu á grasflöt við bygginguna í
nokkrar klukkustundir og hvöttu
herinn til að styðja þá í baráttunni
fyrir því að ríkisstjórnin viki. „Við
viljum fá að vita hvort herinn styður
fólkið, en ekki einræðisherrann,“
sagði einn leiðtoga mótmælendanna.
Yfirmaður hersins hvatti stjórnar-
andstæðingana til að virða leikreglur
lýðræðisins. Yingluck forsætisráð-
herra hefur sagt að ekki komi til
greina að beita mótmælendur her-
valdi. bogi@mbl.is
AFP
Ólga í Bangkok Taílenskir stjórnarandstæðingar standa andspænis lögreglumönnum sem sendir voru til að verja
höfuðstöðvar flokks Yingluck Shinawatra, forsætisráðherra Taílands, í Bangkok í gær.
Vilja að
herinn
steypi
stjórninni
Mikill árangur hefur náðst í bar-
áttunni við HIV-smit meðal
barna, samkvæmt nýrri skýrslu
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna (UNICEF). Komið hefur ver-
ið í veg fyrir smit 850 þúsund
barna í móðurkviði á árunum
2005-2012.
UNICEF varar hins vegar við
því að ekki megi gleyma hættunni
sem er fyrir hendi og að ungt
fólk sé upplýst um HIV og alnæmi
og að fleiri ungmenni deyi nú úr
sjúkdómnum en áður.
Alls hefur þeim ungmennum á
aldrinum 10-19 ára fjölgað um
50% sem deyja úr alnæmi og
tengdum sjúkdómum. Alls var 2,1
milljón ungmenna á þessum aldri
HIV-smituð árið 2012.
ALNÆMI
Færri HIV-smit
í móðurkviði
Sárþjáður Svíi strauk úr fangelsi til
að geta komist til tannlæknis á dög-
unum og gaf sig síðan fram við lög-
reglu þegar hann var laus við tann-
pínuna. „Allt andlitið bólgnaði út.
Ég þoldi þetta ekki lengur,“ sagði
fanginn í samtali við dagblaðið Da-
gens Nyheter.
Maðurinn átti aðeins eftir að af-
plána tvo daga af mánaðarlöngum
fangelsisdómi þegar hann strauk úr
Östergård-fangelsinu í suðvestur-
hluta Svíþjóðar. Fangelsisvistin var
lengd vegna stroksins, en aðeins
um einn dag. Maðurinn sagði að
mestu skipti að hann væri laus við
tannpínuna. „Nú þarf ég bara að
borga tannlækninum.“
SVÍÞJÓÐ
Fangi strauk til að
fara til tannlæknis
LÚXUSFRÍ FYRIR ALLA!
Allt þetta kostar 0 kr
Hjá Nazar er enginn dulinn kostnaður
TYRKLAND SUMARIÐ 2014: BEINT FLUG FRÁ KEFLAVÍK
Ráðgjöf íslenskra sérfræðinga
Bókun í síma
Matur í flugi
Íslensk fararstjórn allt
ferðatímabilið
Akstur til og frá hóteli
Frítt fyrir ungbörn (og engin
verðhækkun á foreldrana)
Íslenskir barnaklúbbar
á Nazar Collection
ÍSLENSKIR BARNAKLÚBBAR
Sjóræningja-
klúbbur
Íslenskur
barnaklúbbur
með sjóræningja-
skemmtun
Swim
a’hoy!
Hér lærir
barnið að
synda í
sumarfríinu
Chillout
Klúbbur
Griðarstaður
unglinganna
með allskonar
afþreyingu
Dance
Stars
Núna geta bæði
þú og börnin
lært að dansa
í fríinu!
nazar.is · 519 2777
20.000kr.
afsláttur á mann,
ef þú bókar fyrir
30 nóv. 2013*
* Afslátturinn gildir ekki á ódýru barnaverðin okkar