Morgunblaðið - 30.11.2013, Page 51
UMRÆÐAN 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
Í Morgunblaðinu
12. nóvember sl. komu
fram ákaflega und-
arleg sjónarmið Jóns
Agnars Ólasonar um
ólöglegt tálbeitueft-
irlit Hafnarfjarð-
arbæjar, sem beinist
að söluaðilum tóbaks í
Hafnarfirði. Mér þyk-
ir rétt að fram komi
sjónarmið kæranda
(undirritaðs) í þessu máli eftirfar-
andi:
„Það að gefa í skyn að kaupmenn
séu í sífellu að selja unglingum,
undir 18 ára aldri, tóbak er lág-
kúrulegur málflutningur hjá Árna
Guðmundssyni, fyrrverandi æsku-
lýðs og tómstundafulltrúa Hafn-
arfjarðarkaupstaðar. Það er ætlast
til að kaupmenn fari að lögum og
ég fullyrði að meirihluti þeirra ger-
ir sitt besta í þeim efnum. Hið
sama á að gilda um embættismenn
bæjarins fyrrverandi og núverandi.
Í tilfelli Hafnarfjarðar er það lög-
bundið hlutverk Heilbrigðiseftirlits
Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis
að framfylgja tóbaksvarnarlögum,
ekki forvarnarfulltrúa á vegum
ÍTH. Hlutverk forvarnarfulltrúa
hlýtur að felast í forvörnum,
fræðslu og kynningu eins og starfs-
heitið gefur til kynna, fremur en að
stunda nornaveiðar.
Tálbeitunotkun er lögregluaðgerð
og ekki verður séð skv. áliti merkra
lögmanna að hún þjóni nokkrum til-
gangi öðrum en ofsóknum og
hræðsluáróðri utan þess kostnaðar
sem hún hefur fyrir bæjarfélagið.
Formlegt samþykki foreldra eða
forráðamanna er algerlega mark-
laust. Vel er skiljanlegt að það svíði
undan áliti merkra lögmanna um
lögmæti þessara kannana (tálbeitu-
eftirlits).
Fullyrðing Árna um að lögmæti
umræddra kannana hafi farið fram
er vafasöm og fróðlegt væri að vita
hvar eða hverjir hefðu lagt blessun
sína yfir meint lögbrot. Fullyrðing
um að ÆTH nú ÍTH hafi aldrei
lagt upp með kannanirnar eða til
þeirra stofnað, sem grunns að
ákæru í dómsmáli með tilheyrandi
umstangi, heldur ekki vatni. Vísað
er í eftirlitsskýrslu Heilbrigðiseft-
irlits Hafnarfjarðar og Kópavogs-
svæðis dags. 28/1 2004 en þar segir
orðrétt: „Ef um ítrekað brot er að
ræða getur það leitt til afturköll-
unar tóbakssöluleyfis. Einnig getur
það haft í för með sér aukna tíðni
eftirlits.“ Einnig vegna sama atviks
erindi frá heilbrigðiseftirlitinu, í
framhaldi af erindi forvarn-
arnefndar Hafnarfjarðar, dags. 9.
júní 2004 segir: „Tekið er fram að
brot samkvæmt 8. gr. laganna varð-
ar leyfissviptingu með undangeng-
inni áminningu.“
Ef svona rík þörf er á eftirliti
með kaupmönnum sem selja tóbak í
Hafnarfirði gildir þá ekki það sama
um þá aðila sem selja samskonar
vöru í öðrum sveitar- eða bæjar-
félögum? Er ekki full ástæða til að
virða jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar. Hið sama má segja um aðra
leyfisskylda vöruflokka, t.d. öl og
áfengi. Hvernig stendur forvarnar-
fulltrúi Hafnarfjarðar sig í þeim
efnum?
Ég segi fyrir mitt leyti að ég
hafna hugmyndafræði Machiavellis
þar sem rauði þráðurinn er „til-
gangurinn helgar meðalið“. Ég tel
meira virði að lögin fái að ráða
fremur en valdið bert“.
(grein í Fjarðarpóst-
inum 16. maí 2013).
Á málfundi í Háskól-
anum í Reykjavík, sem
haldinn var í mars sl.
svöruðu frummæl-
endur fyrirspurn frá
undirrituðum um lög-
mæti tálbeitunotkun á
þennan veg: „Brynjar
Níelsson hæstaréttar-
lögmaður benti á að
það myndi líklega ekki
halda vatni að svipta
hann tóbakssöluleyfinu. Karólína
Finnbjörnsdóttir, sem skrifaði
meistararitgerð sína við HR, um
tálbeitur, tók undir málflutning
Brynjars og bæði sammæltust þau
um að Hafnarfjarðarbær beitti
þarna tálbeitum á ólögmætan hátt.
Fyrir það fyrsta bentu þau á að
reglur um tálbeitur ættu aðeins við
um lögreglumenn. Unglingar í
Hafnarfirði falli sannarlega ekki
undir þá skilgreiningu og sé þar
með ekki byggt á þeim upplýs-
ingum sem tálbeiturnar afla. Þá er
vísað í reglur lögreglunnar um
notkun tálbeita en þar segir: Rann-
sóknarúrræðum samkvæmt reglum
þessum verður ekki beitt ef það
kallar fram refsiverða háttsemi sem
ella hefði ekki verið framin. Þetta
ákvæði má túlka þannig að þar sem
verslunarmaðurinn býður ekki ung-
lingunum tóbak að fyrra bragði
heldur kalla þau fram hina refsi-
verðu háttsemi er aðgerðin ólög-
mæt.“ (úrdráttur úr frétt mbl.is
þann 26.3.2013)
Að lokum: Sú staðhæfing að sölu-
aðilar séu látnir vita um yfirvofandi
eftirlit með skömmum fyrirvara er
einfaldlega röng. Hvert er síðan
hlutverk foreldra, uppalenda og for-
varnarfulltrúa, snýst það fyrst og
fremst um að finna sökudólga eða
blóraböggla? Er það rétt uppeldis-
aðferð að etja börnum í að brjóta
lög? Fyrir hverja eru lögin? Innan-
ríkisráðuneytið beindi þeim til-
mælum til Hafnarfjarðarbæjar að
farið yrði að lögum.
Eftir Sigurð
Lárusson
Sigurður Lárusson
» Sú staðhæfing
að söluaðilar séu
látnir vita um yfir-
vofandi eftirlit með
skömmum fyrirvara
er einfaldlega röng.
Höfundur er kaupmaður.
Af tálbeitum og tóbakssölum
- með morgunkaffinu
2 AF HVERJUM 5
HAFASAFNAÐFYRIR
FERÐALAGI
STEFNIR - SAMVAL
STEFNIR – SAMVAL
VERÐÞRÓUN
100
1
9
9
6
1
9
9
7
1
9
9
8
1
9
9
9
2
0
0
0
2
0
0
1
2
0
0
2
2
0
0
3
2
0
0
4
2
0
0
5
2
0
0
6
2
0
0
7
2
0
0
9
2
0
1
0
2
0
1
1
2
0
1
2
2
0
1
3
2
0
0
8
200
300
400
500
600
700
800
ÁRLEG
NAFNÁVÖXTUN
Blandaður fjárfestingarsjóður sem nýtir þau fjárfestingartækifæri
sem rekstraraðili telur best á markaði hverju sinni.
Virk eignastýring í skuldabréfum, hlutabréfum og sérhæfðum
fjárfestingum í einum sjóði.
Góður kostur í langtímasparnaði, laus með þriggja daga fyrirvara.
Hægt að spara í sjóðnum frá 5.000 kr. á mánuði.
Frá stofnun 01.11.1996 - 31.10.2013
Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjár-
málafyrirtæki sem rekur innlenda og
alþjóðlega verðbréfasjóði, fjárfestingar-
sjóði og fagfjárfestasjóði fyrir einstak-
linga og fagfjárfesta. Verðbréfaþjón-
usta Arion banka er söluaðili sjóða
Stefnis. Ávöxtunartölur eru fengnar hjá
Stefni hf. Árangur í fortíð er ekki örugg
vísbending eða trygging fyrir árangri
í framtíð.
Vakin er athygli á að fjárfesting í hlut-
deildarskírteinum sjóða er áhættusöm
og getur fjárfesting rýrnað eða tapast
að öllu leyti. Nánari upplýsingar um
sjóðinn, þ.á.m. nánari upplýsingar um
áhættu við fjárfestingu í hlutdeildar-
skírteinum hans og fjárfestingarstefnu
má finna í útboðslýsingu, og í útdrætti
úr útboðslýsingu sjóðsins sem nálgast
má á arionbanki.is/sjodir.
ÞÚ GETUR KEYPT Í SJÓÐNUM:
Í síma
444 7000
Í netbanka
Arion banka
Í næsta útibúi
Arion banka
1 ár 31.10.2012-31.10.2013
2 ár 31.10.2011-31.10.2013
3 ár 31.10.2010-31.10.2013
4 ár 31.10.2009-31.10.2013
5 ár 31.10.2008-31.10.2013
Samkvæmt sparnaðarkönnun Capacent og Arion banka
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
3
-2
3
1
6
16,5%
5%
10%
15%
20%
3
á
r
12,3%
5
á
r
15,1%
4
á
r
2
á
r
18,8%
21,9%
1
á
r