Morgunblaðið - 30.11.2013, Side 62
62 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013
✝ Kristján Hann-esson fæddist í
Víðigerði í Eyja-
firði 16. apríl 1928.
Hann lést í Reykja-
vík 20. nóvember
2013.
Foreldrar hans
voru Hannes Krist-
jánsson, bóndi í
Víðigerði, f. 28.
apríl 1887, d. 7.
ágúst 1970, og
Laufey Jóhannesdóttir hús-
freyja, f. 8. apríl 1893, d. 26.
ágúst 1985. Systkini: Hólm-
fríður, f. 12. apríl 1918, d. 4.
desember 1994, Kristín, f. 20.
júní 1921, d. 30. september
1995 og Haraldur, f. 11. ágúst
1926.
Hinn 19. desember 1964
kvæntist Kristján Olgu Ágústs-
dóttur, f. 29. júlí 1935, hús-
freyju í Kaupangi og forn-
bókasala á Akureyri. Börn
þeirra eru: 1) Valgerður, f. 19.
ágúst 1965, gift Karli Guð-
mundssyni, f. 7. desember
1960. Dóttir þeirra er Olga
Kristín, f. 22. júlí 2008. Börn
Karls af fyrra hjónabandi eru
Jónas Þór, f. 18. nóvember
1990, Stefanía Ann og Ólína
Ann, f. 3. október 1995. Sonur
Valgerðar og Helga Eðvarðs-
sonar, f. 26. apríl 1963, d. 12.
gagnfræðapróf var hann for-
maður ungmennafélagsins
Framtíðar í Hrafnagilshreppi.
Hann vann við uppbyggingu á
gripahúsum, fjósi, hlöðu, vot-
heysturni og verkstæðishúsi í
Víðigerði til 26 ára aldurs, er
hann fór til Bandaríkjanna og
var þar í rúmt ár við nám og
störf í viðgerðum Massey-
Ferguson og JohnDeere drátt-
arvéla. Kristján var eitt ár við
búskap í Víðigerði, eftir heim-
koma frá USA. Eftir það starf-
aði hann í eitt ár sem ökumað-
ur á vörubifreið fyrir KEA á
Akureyri við flutninga milli
Akureyrar og Reykjavíkur.
Næstu níu ár starfaði hann hjá
Dráttarvélum hf. í Reykjavík
við verslunarstörf og vélarvið-
gerðir. Yfir sumartímann fór
hann með viðgerðarbíl um allt
land og gerði einkum við
Ferguson- og Massey Fergu-
son-vélar. Hann fór á þessum
árum árlega á námskeið hjá
Massey Ferguson í Englandi.
Frá 1966 var hann bóndi í
Kaupangi í Öngulsstaðahreppi,
fyrst með sauðfé og kýr, síðar
með kartöflur, mjólkurfram-
leiðsku og nautagriparækt.
Hann sat í sóknarnefnd Kaup-
angssóknar frá árinu 1975-
2001. Kristján var stofnrækt-
andi kartöfluútsæðis og sat í
stjórn Félags kartöflubænda
um árabil. Hann sat í 12 ár í
hreppsnefnd Önguls-
staðahrepps.
Útför Kristjáns fer fram frá
Kaupangskirkju í dag, 30. nóv-
ember, kl. 13.30.
mars 1999, er Eð-
varð Þór, f. 9. apríl
1987, kvæntur
Alena Helgason, f.
7. apríl 1988. Fyrri
maki Valgerðar
var Ársæll Krist-
ófer Ársælsson.
Þau skildu. Synir
þeirra eru Ársæll
Kristófer, f. 6. des-
ember 1992, og
Kristján, f. 5. maí
1994. 2) Sigríður, f. 23. sept-
ember 1967, gift Lúðvík Elías-
syni, f. 8. mars 1969, synir
þeirra eru Elías f. 19. janúar
1998, Kristján f. 6. janúar 2000,
og Hannes, f. 10. nóvember
2001. 3) Helga, f. 24. júní 1969,
sonur hennar er Kristján Helgi,
f. 2. nóvember 2008, barnsfaðir
Sigurður Guðmundsson, f. 21.
júlí 1969. 4) Hannes, f. 12. nóv-
ember 1973, kvæntur Elvu Ás-
geirsdóttur, f. 20. febrúar 1978,
dætur þeirra eru Ásdís, f. 21.
febrúar 2008, og Björk, f. 10.
september 2009. 5) Ágúst, f. 7.
apríl 1977, í sambúð með Sól-
veigu Sveinsdóttur, f. 10. ágúst
1984. 6) Laufey, f. 19. júlí 1979.
Kristján vann við landbún-
aðarstörf í Víðigerði, sótti nám
við Gagnfræðaskóla Akureyrar
í þrjá vetur og lauk þaðan
prófi með ágætiseinkunn. Eftir
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Minning um góðan dreng, föð-
ur og afa lifir.
Þegar ég var lítil stelpa í sveit-
inni varstu mín fyrirmynd og
hetja. Þegar ég óx úr grasi varstu
minn trúnaðarvinur og studdir
mig með ráðum og dáð.
Minningarnar eru margar og
góðar. Mín fyrsta minning er ein-
mitt að ég er að ösla á eftir þér
niður í fjárhúsin og skammast í
þér. Því stígvél númer 24 héldu
ekki í við stígvél númer 44 og fyr-
ir vikið sökk ég á kaf í snjóinn. Þá
greipstu mig og settir mig á há-
hest. Þegar komið var í fjárhúsin
fékk ég það virðulega starf að
passa að ekki flæddi vatn upp úr
stokkunum, samviskusamlega
fylgdist ég með vatnsflauminum
fylla stokkinn og kallaði síðan á
þig til að skrúfa fyrir. Smám
saman urðu verkefnin stærri og
flóknari, en þú lést mann alltaf fá
á tilfinninguna að maður væri að
gera gagn.
Þú dóst aldrei ráðalaus og er
mér það minnisstætt þegar að
Vala stóra systir hengdi upp
Abba-plakat sem hún hafði feng-
ið úr Bravo-blaði og ég var eitt-
hvað stúrin yfir þessu. Þú gerðir
þér lítið fyrir og sóttir þetta fína
plakat af Massey Ferguson inn
til þín. Massey Ferguson var
áhugamálið þitt númer eitt, tvö
og þrjú, og þú kenndir manni að
hlusta á vélina og greina þannig
ganginn í henni. Í mörg ár var ég
alsæl með rauða traktorinn uppi
á vegg hjá mér.
Ræktun var ástríða hjá þér og
þú vannst ötull að því að rækta
upp tún og varst meðal þeirra
fyrstu sem hófu kartöflurækt í
sveitinni. Ég smakkaði með þér á
heyinu til að meta fóðurgildi þess
en þegar kom að því að smakka
moldina, til að meta hvort tíma-
bært væri að setja niður, neitaði
ég.
Frá fyrstu hendi vorum við
miklir félagar í bústörfunum og
seinna sá ég um allt búið ef þú
þurftir að bregða þér af bæ. Ég
var ekki gömul fyrst þegar þú
treystir mér fyrir búinu og fórst í
þriggja daga frí. Það fyrsta sem
þú tókst þér síðan að þú byrjaðir
að búa. Allt gekk ljómandi vel.
Þannig liðu sumrin við leik og
störf í Kaupangi. Eftir að ég gifti
mig og stofnaði fjölskyldu kom
ég allaf norður og heyjaði túnið
fyrir neðan bæinn. Þú lagðir á
þig vinnu við að halda gamla hey-
hleðsluvagninum gangandi til að
synir mínir fengju að upplifa það
að sitja og hossast í heyinu.
Þín verður sárt saknað, bless-
uð sé minning þín.
Sigríður
í Kaupangi.
Kæri pabbi, þá er kallið komið.
Pabbi var bóndi í Kaupangi í
Eyjafirði lengst af. Vegna þess
hve Kaupangur er stór jörð
þurfti áræðni og útsjónarsemi til
að allt gengi upp við búskapinn,
sem pabbi hafði. Pabbi var sann-
gjarn og til marks um það má
nefna að hann baðst undan því að
vera formaður sóknarnefndar
Kaupangskirkju á þeim forsend-
um að það væri ekki við hæfi, því
hann ætti meiri hagsmuna að
gæta en aðrir. Hann sat þó í
sóknarnefnd til margra ára,
ásamt því að sitja í hreppsnefnd.
Ræktun jarðar var hans hjart-
ans mál og varð honum vel
ágengt í uppræktun jarðlendis í
Kaupangi, þar sem var af nógu að
taka. Þá má ekki gleyma óbilandi
áhuga á starfsemi dráttarvéla og
varð honum vel ágengt í viðgerð
þeirra. Um árabil ferðaðist hann
um landið og sinnti viðgerðum
véla.
Dýrmætast þykir mér hve
pabbi var góður faðir og sinnti
því hlutverki vel, var alltaf til
staðar, sanngjarn, umburðar-
lyndur og rausnarlegur. Eitt sem
einkenndi pabba var að hann
treysti manni snemma fyrir ýms-
um mikilvægum verkum og talaði
við mann sem fullorðinn. Þá hafði
hann samráð um hluti og spurði
gjarna hvað manni þætti ráðleg-
ast að gera í tengslum við ýmis
verk. Þetta gaf manni ábyrgðar-
tilfinningu og sjálfstraust, sem
ég held að hafi nýst okkur systk-
inunum inn í lífið. Ég man vel þá
góðu daga þegar hann sat við
enda borðs á matmálstímum og
ræddi við okkur um verkefni
dagsins í bróðerni og jafnræði,
um hvernig ráðlegast væri að
takast á við aðkallandi verk.
Hann spurði mann álits og hlust-
aði á öll rök, áður en ákvörðun
var tekin í samráði við okkur.
Hann kenndi okkur það besta af
því sem hann kunni.
Þótt pabbi væri mjög bundinn
við búskap lengst af, þá hafði
hann mikla ævintýraþrá á sínum
yngri árum. Hann var í hópi
þeirra fyrstu hér á landi til að
fara sem skiptinemi til Banda-
ríkjanna árið 1954. Pabba var
mikið í mun að ferðasögunni væri
haldið til haga, svo ég skráði
hana.
Hann hóf ferðina á flugi til
Gander í Nýfundnalandi. Fór síð-
an til New York og þá Chicago og
þaðan til Montana-ríkis, til Bill-
ings sem þá var aðeins stærra en
Reykjavík. Hélt síðan áfram til
Los Angles. Á bakaleið fór hann
gegnum Santa Fe í Nýju Mexíkó
og aftur til Billings í Montana.
Þegar dvölinni í Montana var að
ljúka fór hann til Kanada að hitta
frændfólk sitt, Guðrúnu Ander-
sen föðurystur sína og börn
hennar Kristján og Margréti.
Þar fór hann fyrst til Winnipeg
og svo áfram í Manitoba-fylki,
þar sem hann heimsótti Glen-
boro.
Pabbi bjó alla tíð að þessari
dvöl í Ameríku og var mjög hrif-
inn af amerískri hugsun. Hann
lagði mikla áherslu á menntun og
kom gjarna með sérvalda amer-
íska frasa, til að skerpa á ensku-
kunnáttu okkar og létta okkur
lund. Þá kom fyrir að hann lum-
aði á hraðaspurningu, svona til að
kanna almenna þekkingu og
skapa gott andrúmsloft.
Á seinni árum var alltaf gott
að spjalla við pabba. Hann var
duglegur að lesa blöðin og ljúfur
og uppörvandi. Þá er ég mjög
þakklát fyrir að Kristján sonur
minn fékk að kynnast afa sínum.
Blessuð sé minning þín, pabbi.
Helga.
Elsku pabbi, ég á margar góð-
ar minningar um þig. Ein sú
fyrsta er þegar þú raulaðir fyrir
munni þér og barst mig á hoho-
baki (háhesti) niður stigann í
Kaupangi eftir sjónvarpsáhorf og
fyrir háttinn. Mér fannst það
gaman.
Ég er ánægð með að hafa
fengið að alast upp í sveit. Þar er
svo mikil víðátta, margt hægt að
gera og svo þroskandi að þurfa
að taka þátt í sveitastörfum. Ég
man eftir mörgu sem þú baðst
mig um að gera s.s. sækja kýrn-
ar, raka dreif, passa Triolietið og
sinna fleiri heyskaparstörfum,
gefa kálfunum og kúnum, taka
upp kartöflur og flokka kartöflur.
Þú varst alltaf þakklátur fyrir
hjálpina og hrósaðir mér fyrir
ýmislegt.
Mikið varstu alltaf duglegur
að vinna myrkranna á milli og
ósérhlífinn. Á sumrin áttirðu það
jafnvel til að vakna um fimmleyt-
ið á morgnana og varst jafnvel að
til miðnættis ef mikið lá á í hey-
skap. Þú hafðir mjög mikla þekk-
ingu á vélum og góða kunnáttu í
viðgerð á þeim. Áttir margar
dráttarvélar af gerðinni Massey
Ferguson og varst sérfræðingur í
að gera við þær. Það var aðdáun-
arvert.
Þú varst góður maður, veittir
mér mikla öryggiskennd, ég bar
virðingu fyrir þér og þótti vænt
um þig. Ég man eftir hlýlegum
setningum þínum eins og: „Lauf-
ey mín veðrið er svo vont núna,
vertu bara inni hjá kisa“. Þú
lagðir mikla áherslu á að brýna
fyrir okkur systkinunum ýmis at-
riði varðandi öryggi, t.d. að passa
okkur á drifsköftum dráttarvéla,
og sýndir þannig hve annt þér
var um okkur.
Ég minnist þess hve glöð við
Gústi bróður urðum þegar þú
keyptir einstaka sinnum handa
okkur nammi, sem ávallt var blár
ópal og Síríuslengja, í Höepfner á
heimleið í appelsínugula Wago-
neernum þínum.
Þegar ótömdu hestarnir okkar
sluppu út á þjóðveg upphófst yf-
irleitt mikill eltingarleikur. Þá
keyrðir þú á ofsahraða á Wago-
neernum á milli staða, þar sem
hver og einn átti að stökkva eld-
snöggt út úr bílnum með prik
hendi og standa þar vörð til þess
að áætlun þín gengi upp, sem hún
yfirleitt gerði.
Á unglingsárum mínum horfð-
um við á ýmsa lögreglu- og saka-
málaþætti saman s.s. Derrick,
Matlock og Taggart. Það var
notalegt.
Þú varst mjög ánægður og
stoltur af sólpallinum sem þú lést
byggja í sumar og ég er líka
ánægð með hann.
Þegar ég sótti ykkur mömmu
á Reykjavíkurflugvöll fyrir rúm-
lega mánuði, áður en þið fóruð til
Kanaríeyja, kallaðir þú mig það
sem þú kallaðir mig stundum al-
veg frá því ég man eftir mér:
„litla eppan mín“.
Laufey.
Vinur minn var að gefa mér
mynd. Á myndinni eru ég og þú
að vinna saman í Kaupangi í sum-
ar. Það var ánægjulegur tími. Ég
finn það að eftir því sem á leið
tengdist ég þér æ betur. Þú
kenndir okkur margt gott, pabbi,
og ensku frasarnir þínir munu
lifa lengi með fjölskyldunni.
Þú lést verkin tala, kenndir
okkur svo skýrt muninn á réttu
og röngu, og mikilvægi þess að
tileinka sér þakklátan hugsunar-
hátt.
Fyrir það er ég þakklátur. Og
nú ert þú farinn, „unfortunately“.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að
segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Hannes Kristjánsson.
Kæri pabbi, takk fyrir sam-
veruna og alla bláu ópalana sem
þú gafst mér þegar að ég var lítil.
Þú varst vinnusamur faðir og
dreifst okkur systkinin áfram
með þér í sveitastörfunum.
Mér eru ógleymanleg öll
haustin í kartöflugarðinum í
Kaupangi og stundir við kartöflu-
flokkunarvélina. Þá kenndir þú
okkur ensk orð, „immediately“,
er mér minnisstæðast.
Já, í kartöflugarðinum heima
var gott að vera. Fyrstu árin mín
fór ég með fötu og tíndi litlar
kartöflur í fötu með kerlingunum
sem komu frá Akureyri og tóku
upp kartöflur með höndunum,
svo fékkstu kartöfluupptökuvél
þegar ég var sjö ára og aðra síð-
ar.
Pabbi, þú varst mín stoð og
stytta í lífinu.
Kær kveðja þín
Valgerður.
Elsku besti pabbi minn, ég
kveð þig með hlýjum hug. Við
áttum margar góðar stundir
saman og eru þær mér dýrmæt-
ar.
Í uppeldinu kenndirðu mér
margt sem ég mun ætíð búa að,
þú kenndir mér stafrófið áður en
ég byrjaði í skólanum, hvernig
hugsa skal um mótora, vélar og
tæki og hvattir okkur systkinin
ætíð til frekari menntunar, hvatt-
ir okkur að læra að standa á eigin
fótum og taka ábyrgð á gjörðum
okkar, einnig að setja okkur inn í
sjónarhorn og skoðanir annarra,
vera sterk og ákveðin þegar þess
þarf. Þú varst seinþreyttur til
vandræða.
Friðsamur varstu og fróður um margt,
framar öllum feðrum þú varst.
Áfram mun lifa þín minning með mér,
af öðrum mönnum þú barst.
(ÁK.)
Ljóð og ensk tunga voru þér
töm og áhuga á kvikmyndum
deilum við feðgar.
Ósérhlífinn varstu og kveink-
aðir þér ekki heldur beist á jaxl-
inn og hélst áfram og kláraðir
verk þau sem fyrir hendi lágu.
Þér þótti afskapleg vænt um dýr
og börn og þau áttu sinn sess hjá
þér. Það eru litlir hlutir sem sitja
einnig í minningunni og eru bara
okkar og ég mun t.d. aldrei
gleyma hvernig þú sönglaðir fyr-
ir okkur systkinin þegar þú barst
okkur niður stigann í Kaupangi
um kvöld til að fara inn í rúm að
sofa.
Alla tíð þurftirðu að vinna mik-
ið og unnir því hlutskipti vel, um
leið komst þú börnunum þínum 6
til manns og stóðst þína plikt.
Síðustu árin lifðirðu lífinu eins og
þú vildir heima á sveitabænum
allt til hinstu stundar og var það
gott því elliheimili og sjúkra-
stofnanir hræddistu eins og pest-
ina, enda ekki staðir fyrir jafn ak-
tíva og duglega menn og þig.
Ég flaug með þig suður þegar
þú fórst þína hinstu ferð, þú varst
spenntur að komast í sólina á
Kanarí með konunni þinni og
naust þess að vera til. Mér fannst
því viðeigandi að við flygjum aft-
ur saman og ég fylgdi þér heim í
Eyjafjörðinn sem var órjúfanleg-
ur partur af þér.
Þú varst góður maður, góðu
stundirnar okkar ég geymi hjá
mér.
Ég sakna þín.
Þinn sonur,
Ágúst Kristjánsson.
Það fer ekki hjá því, þegar við
fréttum brottför vinar okkar að
okkur setti hljóð. Við finnum til
þess að við erum fátækari en við
höfum verið, því góður vinur er
gulli betri. En við verðum að vera
róleg og halda áfram að ganga
götuna sem við öll göngum þar til
yfir lýkur.
Mig langar með fáeinum orð-
um að minnast vinar míns, Kidda
í Víðigerði. Þótt aldursmunur
væri svolítill á okkur þá áttum við
það sameiginlegt að muna bæði
gamla og nýja tíma. Vor og sum-
ar áttum við Kiddi skemmtilegar
stundir saman í sveitinni, en það
var í knattspyrnu. Báðir höfðum
við gaman af fótboltanum og ekki
síður að etja kappi við góða fé-
laga og vini sem við eignuðumst
þar.
Eitt sinn langaði okkur Kidda
ásamt fleirum að lyfta okkur upp
og fara til Akureyrar að kvöldi
17. júní og eiga góða stund með
Akureyringum. En á þessum
tíma voru engir bílar til á bæj-
unum til mannflutninga en sím-
inn var nýkominn á bæina, því
ekki að nota þetta undratæki og
panta leigubíl? Og það var gert.
Þeir sem vissu um þessa uppá-
komu voru beðnir að vera hljóðir
því þetta þótti í meira lagi vit-
laust.
En tækniöldin færðist nær
með sínum tækjum og tólum. Því
fer svo að Kristján ræðst til
Dráttarvéla hf., systurfélags SÍS
árið 1954. Fyrstu störf Kristjáns
hjá Dráttarvélum voru að heim-
sækja verksmiðjur Ferguson á
Englandi. Kristján átti eftir að
verða tíður gestur á því stóra
heimili næstu árin, því alltaf var
eitthvað nýtt að koma fram hvað
tæknina varðaði sem fylgjast
þurfti með. Hann lét líka verða af
því að skreppa til Bandaríkjanna
og starfaði þar í eitt ár á véla-
verkstæði. Kristján var því vel í
stakk búinn, þegar hann kom
heim í sitt starf hjá Dráttarvélum
að ferðast um landið og kenna
bændum að umgangast vélarnar
og gera við þær. Sjálfur var hann
á vel búnum verkstæðisbíl með
allt sem til þurfti. Bændur dáðu
þennan unga og duglega mann
sem var svo fljótur að koma vél-
unum í lag en sjálfur var Kiddi
harðduglegur og lagði oft nótt við
dag í þessum ferðalögum sínum.
Kiddi hafði samt alltaf hug til
heimahaganna og kona hans,
Olga Ágústsdóttir, átti smárætur
til Akureyrar frá sínum unglings-
árum. Því var það að þau stóðust
ekki freistinguna þegar jörðin
Kaupangur var boðin til ábúðar.
Kaupangur hafði margt upp á að
bjóða og óvíða er miðnætursólin
jafn tilkomumikil og í Kaupangs-
sveitinni, það hafa líka ljósmynd-
arar notfært sér í gegnum árin.
Það var gaman að heimsækja
frumbýlingana í Kaupangi fyrstu
búskaparárin og alla tíð. Það er
jafnan svo í sveitunum þegar vor-
ið kemur eins og hendi sé veifað,
þá kallar allt á í einu sem gera
þarf. En þar sem áhuginn er fyrir
lífsstarfinu og gleðin í fyrirrúmi
við að gera hlutina, þá er eins og
allir erfiðleikar hverfi út í veður
og vind. Ég man að Olga sagði
mér brosandi með tvö lömb í
hendi, að hún væri alfarið tekin
við sauðburðinum með hjálp er-
lendrar starfsstúlku sem hjá
þeim var, því Kristján hefði nóg á
sinni könnu. En lítið hefðu þær
getað sofið að undanförnu.
Kiddi minn, ég kveð þig með
minni hinstu kveðju. Óska þínum
nánustu velfarnaðar á lífsins
braut.
Páll Lárusson Rist.
Traustir skulu hornsteinar
hárra sala;
í kili skal kjörviður;
bóndi er bústólpi,
bú er landstólpi,
því skal hann virður vel.
(Jónas Hallgímsson.)
Meira er þrjátíu ár eru nú liðin
síðan við fjölskyldan fluttum í
næsta nágrenni við Kaupang í
Kaupangssveit.
Við kynntumst fljótt heimilis-
fólkinu í Kaupangi. Börnin okkar
áttu samleið í skóla sem gerði
kynni milli heimilanna nánari.
Seinna störfuðum við saman í
sóknarnefnd fyrir kirkju okkar
og sókn. En hvort sem Kristján,
bóndi og staðarhaldari, var með í
sóknarnefnd eður ei var alltaf
jafn gott að koma til hans og frú
Olgu þegar kirkjan okkar átti í
hlut. Þau voru ætíð boðin og búin,
færðu kirkju okkar glæsilega
gjöf sem lýst hefur til okkar í
mörg ár, afnot að landi og fleira
mætti upp telja.
Þegar við fjölskyldan leituðum
til Kristjáns bónda hvort sem var
vegna hagagöngu fyrir hesta
okkar eða annarra erinda var
gott að hitta fyrir þann góða
dreng sem hann hafði að geyma.
Við skyndilegt fráfall Krist-
jáns er efst í huga okkar sökn-
uður og þakklæti.
Fjölskyldunni í Kaupangi
sendum við samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Valdimar Briem.)
Guðfinna og Óli Þór.
Kristján
Hannesson