Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2013, Side 33
3.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Fylltar
svínalundir
FYRIR 6-8 MANNS
2 kg svínalundir
150 g döðlur
1 lítið gult epli
1 lítið rautt epli
1 steinseljubúnt
salt
pipar
hvítlaukskrydd
season all
smjör
Skerið lundirnar í hæfilega langa bita.
Oftast dugar að skera þær í tvo jafn-
stóra helminga. Takið trésleif og ýtið
skaftinu á henni inn í lundina langsum
þannig að hún myndi holu í lundina en
farið þó ekki alveg í gegn með sleifina,
stoppað áður en farið er í gegn því hún
rofnar auðveldlega. Gerið þetta við allar
lundirnar. Skerið döðlurnar í litla bita.
Flysjið eplin og kjarnhreinsið og skerið í
smáa bita og blandið þeim ásamt stein-
seljunum saman við döðlurnar. Takið þá
eina lund og troðið maukinu ofan í gatið
sem þið gerðuð með sleifinni. Gott er
að ýta á eftir maukinu með sleifinni svo
það fari betur inn. Fyllið lundirnar og
lokið gatinu með tannstöngli. Kryddið
kjötið vel með salti, pipar, hvítlauk og
season all. Brúnið kjötið á pönnu þannig
að það steikist á öllum hliðum. Setjið
lundirnar í eldfast mót og bakið við 180
gráður í 15-20 mínútur. Gott er að taka
þykkustu sneiðina og skera í hana til að
athuga hvort kjötið sé tilbúið áður en
það er borið fram.
Gott að bera fram með salati og nota
í það tómata, klettasalat, lambhagasalat,
gula papriku, kíví, rauðlauk, gúrku, feta-
ost og ristaðar furuhnetur.
Morgunblaðið/Golli
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, Sveinn
Ólafur Gunnarsson, Bergur Þór
Ingólfsson, Víðir Guðmundsson,
Eva Vala Guðjónsdóttir, Sólveig
Guðmundsdóttir og Jóhanna
Þorkelsdóttir.
FYRIR FJÓRA
(Uppskrift sem hópurinn ákvað að prófa af eldhussogur.is)
400 g lax
1 vel þroskað mangó
1 avókadó
3-4 límónur, safinn
1 dl sojasósa
1/4-1/2 rauður chilipipar, kjarnhreinsaður og fínt skorinn
2 msk. kóríander, fínt skorinn
2 msk. vorlaukur, fínt skorinn
2 tsk. sykur
ristuð sesamfræ
Ponzusósa
Blandið saman límónusafanum og sojasósunni. Vorlaukur, chilipip-
ar og kóríander er sett út í blönduna. Sósan geymd í ísskáp.
LAXINN
Lax, mangó og avókadó skorið í þunnar sneiðar og raðað fallega á
disk. Sojasósunni og ristuðum sesamfræjum dreift yfir. Skreytt með
nokkrum þunnum chilisneiðum og kóríanderblöðum ef vill.
Sashimi með avókadó
vanilluís
2 dl hnetusmjör með hnetubitum í
1 dl hlynsíróp
200 g suðusúkkulaði
marssúkkulaði
smá rjómasletta
Bræðið hnetusmjörið, hlynsýrópið og suðusúkkulaðið saman í
potti við vægan hita. Hellið svo þunnu lagi í eldfast mót eða lítið
kökuform og setjið inn í frysti. Þegar það er orðið hart er það tekið
út og brotið niður í litla bita sem settir eru út á ísinn. Bræðið mars-
súkkulaði með smá rjóma og hellið yfir ísinn og hnetusmjörs-
konfektið.
Vanilluís með hnetusmjörs-
súkkulaði og marssósu