Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2013
L
íf mitt tók miklum breytingum fyrir rúmu einu
og hálfu ári þegar ég horfðist í augu við þrá-
hyggju í hausnum á mér sem kallast fíkn. Ég
lærði að ég er með heilasjúkdóm sem heitir
alkóhólismi. Eigum við að byrja þetta svona?“
segir Rúnar Freyr Gíslason leikari aðspurður hvað hann
geti sagt blaðamanni um líf sitt síðustu árin. Bæði þennan
part og svo fleiri.
Rúnar Freyr er einn okkar þekktustu leikara á sviði og í
sjónvarpi en hefur undanfarið vakið athygli fyrir vaska
framgöngu í starfi sínu fyrir SÁÁ, Samtök áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann. Hann hefur þar af eigin
reynslu að miðla til sjúklinga sem sækja meðferð og stuðn-
ing til SÁÁ og nú ætlar hann einnig að leyfa lesendum
Morgunblaðsins að heyra af lífi, list og störfum og hvernig
það var fyrir hann að átta sig á eigin vanda og taka á hon-
um.
Rúnar Freyr er hæfileikatól. Það er ekki úr lausu lofti
gripið því allt frá því að hann fór að leika í mennta-
skólasýningum Verslunarskóla Íslands er hægt að glugga í
gamla leikdóma í dagblöðum þar sem skríbentar segja Rún-
ar Frey efni í framtíðarleikara. Í einum leikdómnum er
Gísli Marteinn félagi hans sagður fara með hlutverkið
„ágætlega“ í stykkinu „Láttu ekki deigan síga Guðmundur“
en Rúnar Freyr er „eftirminnilegur“. Óþarfi kannski að
stilla þeim félögum svona saman en það sleppur þó því
æskuvinirnir úr Breiðholtinu urðu þekktir hvor á sínu svið-
inu. Einhverjir voru þó sannfærðir um að Rúnar Freyr
myndi fara út í stjórnmál, meðal annars blaðamenn sem sáu
hann sigra í Morfís, Ræðukeppni framhaldsskólanna, tvö ár
í röð.
Þeir eru nokkrir vinirnir úr Hólahverfinu sem halda hóp-
inn enn í dag en þeir bjuggu í einum hnapp sem pjakkar, í
sömu blokkum jafnvel. Frá þeim hefur Rúnar Freyr alltaf
notið stuðnings, einnig á ferð sinni um dýpri dalina, sem og
sinni „ótrúlega umhyggjusömu fjölskyldu“ eins og hann
orðar það sjálfur.
„Æskuvinur minn, Pétur Marteinsson knattspyrnumaður,
bjó í sömu blokk og ég. Sigurður Kári, fyrrverandi þing-
maður, var einnig í sama húsi og Gísli Marteinn Bald-
ursson bjó í blokkinni á móti. Við, ásamt nokkrum fleirum,
hittumst vikulega og heyrumst oft þess á milli. Þetta er af-
ar sterkt net fyrir mig og þessir frábæru drengir hafa
reynst mér ótrúlega vel. Svo breytir miklu að vera heppinn
með fjölskyldu.“
Kært með mæðginum
Rúnar Freyr segist vera úr venjulegri millistéttarfjölskyldu
í Breiðholti. Hann segir að væri hann barn í dag yrði hann
greindur ofvirkur, en hann hafi þó verið fyrirmyndar-
námsmaður þar sem hann hélt alltaf fullri athygli yfir
námsbókunum. „Hegðaði mér vel en masaði of mikið,“ segir
hann.
„Við bjuggum fyrst í blokk, fluttum svo í raðhús og
pabbi, Gísli Sigurðsson, er og var vinnuþjarkur af gamla
skólanum – pípulagningameistari, sem byggði sitt hús sjálf-
ur og vann frá morgni til kvölds. Góður og pottþéttur mað-
ur sem hægt er að treysta. Mamma, Sigurrós Guðmunds-
dóttir, ól okkur aðallega upp en hún er æðisleg; ótrúlega
hlý og góð kona.“ Rúnar segir mikla kærleika með þeim.
„Hún er þó með bein í nefinu þannig að maður komst ekki
upp með neitt. Hún var fyrirmynd mín í öllu og ég tel mig
afar líkan henni. Hún á einmitt afmæli eftir nokkra daga.“
Sem er einmitt í dag, 16. nóvember, og Rúnar Freyr er
þarna nýbúinn að kaupa afmælisgjöfina þegar viðtalið er
tekið.
Rúnar Freyr fór í Versló og var ekki lengi að koma sér í
hreinlega allt sem að félagslífinu sneri. Hvort sem það hét
nemendamót, leiklist eða ræðumennska. Eftir útskrift tók
við tveggja ára nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
en í það nám innrituðust einnig félagar hans Gísli Marteinn
og Ólafur Teitur Guðnason. Hann hafði sérstaklega gaman
af heimspekilegum pælingum um stjórnmál. John Locke og
Ritgerð um ríkisvald hafði mikil áhrif á hann – að fólk ætti
það sem það gerði.
Úr
álögum
FYRIR UM TVEIMUR ÁRUM
FANN RÚNAR FREYR GÍSLASON LEIK-
ARI AÐ ALLS STAÐAR VORU
AÐ LOKAST DYR; Á VINNUSTAÐ, HJÁ
FJÖLSKYLDU OG Í UMHVERFI HANS.
HANN SEGIR AÐ ÞAÐ HAFI HJÁLPAÐ
HONUM AÐ TAKA Á
SÍNUM VANDA - AÐ FÓLK HAFI
EKKI KÓAÐ MEÐ HONUM.
Texti: Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Myndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
Viðtal