Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Qupperneq 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2013 S ir Alex Ferguson hlýtur að vera búinn að átta sig á því að hann hefði aldrei átt að leyfa Paul Pogba að fara frá Manchester United. Pogba kom til liðsins frá Le Havre árið 2009 og vissu stuðningsmenn Manchester United, sem fylgjast með unglingaliðinu, að þarna færi framtíð- arstjarna félagsins. En Fergie fann aldrei spilatíma fyrir ungstirnið og þegar Juventus bauð honum samning stökk hann á tækifærið. Hefur blómstrað þar á meðan miðja Manchester United hefur þótt frekar veikburða. Phil Jones er látinn spila á miðri miðjunni þrátt fyrir að vera lítill miðjumaður en stór skrokkur. Pogba hefur farið á kostum með ítalska stórliðinu og skoraði um síðustu helgi stórbrotið mark gegn Napólí. Fékk boltann fyrir utan teig en móttaka hans var slök og boltinn skoppaði upp í loft. Í stað- inn fyrir að fara á taugum ákvað Pogba að þruma boltanum að marki og inn fór hann, framhjá Pepe Reina. Umdeild félagaskipti til Englands Pogba fæddist í Lagny-sur-Marne-hverfinu í París og eru bræður hans, Florentin og Mathias, einnig atvinnumenn í fótbolta. Florentin spilar með Sedan og Mathias með Crewe Alexandra. Foreldrar þeirra eru frá Gíneu en settust að í París. Pogba var snemma álitinn afburðaknattspyrnumaður og eftir að hafa verið fyrirliði hverfisliðs- ins gekk hann í raðir Le Havre. Þá var hann kominn í U16 ára lið Gömul kona frekar en rauður djöfull STUÐNINGSMENN MANCHESTER UNITED GRÁTA ENN AÐ HAFA MISST PAUL POGBA. UNITED VANTAR MANN SEM ER STÓR OG STERKUR, KEMUR INN Í TEIGINN OG SKORAR NOKKUR MÖRK. ÞEIR ÁTTU ÞANNIG MANN EN SIR ALEX GAF HONUM ALDREI TÆKIFÆRI. POGBA FÓR ÞVÍ TIL JUVENTUS ÞAR SEM HANN HEFUR SLEGIÐ Í GEGN. Það hafa margir franskir meistarar spilað í búningi Juventus; Zidane, Deschamps og auðvitað Platini. Pogba fæddist 1993 og er 188 sentimetrar. Hann hefur verið í frábæru formi með Juventus það sem af er tímabili. Frakka. Arsenal, Juventus, Marseille og fleiri stórlið fylgdust grannt með kauða, sem var bæði stór og sterkur miðað við aldur. Það kom því ekki á óvart að hann skyldi semja við Manchester United en það sem kom á óvart var hvernig hann samdi við félagið. Le Havre hélt að félagið hefði verið með munnlegt samkomulag ekki bara við drenginn sjálfan heldur einnig foreldra hans. Vegna aldurs hans mátti franska félagið ekki gera atvinnumannssamning við hann. United bauð hins vegar gull og græna skóga fyrir hvaða fimmtán ára pilt sem er og samdi skriflega við Pogba. Le Havre reyndi að fá félagaskiptabann á Man. Utd en FIFA samþykkti þá beiðni ekki. Pogba varð því leikmaður Manchester United 8. október 2009. Scholes dreginn á flot Pogba var fljótur að stimpla sig inn í unglingaliðið og síðar varaliðið en tækifærið kom aldrei með aðalliðinu. Ferguson færði hann upp í aðalliðshópinn fyrir tímabilið 2011-2012 og sagði af því tilefni: „Ef við höldum aftur af honum mun hann fara. Við verðum að gefa hon- um tíma og tækifæri til að sjá hvernig hann stendur sig.“ Paul Scholes hafði hætt fyrir þetta tímabil og margir bjuggust við að Pogba yrði eftirmaður hans á miðjunni. En í staðinn fyrir að gefa ungum leikmönnum eins og Ravel Morrisson og Pogba tækifæri dró Fergie Scholes aftur á flot þegar meiðslavandræði bönkuðu á dyr * Stóru liðin hafa endurnýjaðáhuga sinn á Pogba og er hannverðlagður á 50 milljónir punda. Nú er það franska landsliðið sem á hug hans allan enda þarf það á kröftum Pogba að halda til að komast á HM. Ímynd franska landsliðsins er enn í molum eftir síðasta HM, þar sem leikmenn fóru í verkfall á miðju móti. „Hann er betri en ég var á hans aldri. Aðeins tíminn mun leiða í ljós hve langt hann mun ná en hann á möguleika á að eiga frábæran feril.“ Patrick Vieira um Pogba. Boltinn BENEDIKT BÓAS benedikt@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.