Morgunblaðið - 06.12.2013, Qupperneq 1
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Nelson Mandela, frelsishetja og fyrrverandi forseti
Suður-Afríku, lést á heimili sínu í Jóhannesarborg í
gær, 95 ára gamall. „Ég heilsa ykkur öllum í nafni
friðar, lýðræðis og frelsis til handa öllum. Ég stend
frammi fyrir ykkur, ekki sem spámaður, heldur sem
auðmjúkur þjónn ykkar, fólksins,“ sagði Mandela þeg-
ar hann var látinn laus árið 1990, eftir 27 ára fangels-
isvist en frelsun hans markaði þáttaskil í sögu suður-
afrísku þjóðarinnar.
„Þjóð okkar hefur misst sinn mikilfenglegasta son,“
sagði Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, þegar hann
tilkynnti andlát Mandela í gær. „Það sem gerði Nelson
Mandela mikilfenglegan er nákvæmlega það sem gerði
hann mannlegan,“ sagði hann.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sagði að Mandela hefði verið innblástur frið-
arhreyfinga úti um allan heim og Barack Obama, for-
seti Bandaríkjanna, sagði að hann hefði verið
hugdjarfur og innilega góður. »27
Nelson Mandela látinn
EPA
Frelsishetja Barack Obama sagði í gær að Mandela hefði tekið söguna í hendur sér og sveigt
boga hins siðræna heims í átt að réttlæti. Leiðtoginn hefði fórnað sínu frelsi fyrir frelsi annarra.
F Ö S T U D A G U R 6. D E S E M B E R 2 0 1 3
284. tölublað 101. árgangur
Spennandi leikur
á www.jolamjolk.is
dagar til jóla
18
ALFREÐ BESTI
ÞJÁLFARI
HEIMS
TÓNLEIKAR
OG NÝ
PLATA
SKRAUTLEGUR
HUGARHEIMUR
KRISTÍNAR
ÁRNI HEIÐAR 48 SÖGUPERSÓNUR 10HANDBOLTI ÍÞRÓTTIR
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Nærri lætur að á þessu ári og
áfram á næstu mánuðum verði unn-
ið hér á landi að verkefnum fyrir
einn og hálfan milljarð króna við
hönnun og smíði tækja og búnaðar í
tvö frystiskip sem eru í smíðum í
Tyrklandi. Mörg íslensk fyrirtæki
koma að verkefnunum og eiga þau
öll það sameiginlegt að hafa staðist
alþjóðlega samkeppni hvað varðar
verð, gæði og tækni. Sum þessara
verkefna eru mjög mannaflsfrek, en
önnur kalla frekar á tæknivinnu og
lausnir.
Skilar okkur áfram
í þróun og nýsköpun
Um er að ræða tvo frystitogara
sem verið er að smíða rétt við Ist-
anbúl. Annað skipanna er í eigu UK
Fisheries í Bretlandi, sem er í
helmings eigu Samherja á Ak-
ureyri. Hitt skipið er smíðað fyrir
þýskt fyrirtæki, en eigendur þess
eiga jafnframt helming í UK Fis-
heries á móti Samherja.
Kristján Vilhelmsson, útgerð-
arstjóri Samherja, er annar tveggja
verkefnisstjóra við smíði skipanna.
Hann segir að það sé vissulega
ánægjulegt að íslensk fyrirtæki fái
verkefni tengd þessari skipasmíði.
Þau skipti miklu máli fyrir fyr-
irtækin og fólkið sem þar starfar.
„Það skiptir miklu máli fyrir sjáv-
arútveg, það er fiskveiðar og fisk-
vinnslu að öflugur þjónustuiðnaður
sem tengist útgerð og fiskvinnslu sé
til staðar á Íslandi,“ segir Kristján.
„Meðan við getum sótt trausta
vöru, nýjungar, þróun og þjónustu í
þessi íslensku fyrirtæki þá er það
mikill ávinningur. Slíkt skilar okkur
áfram í þróun og nýsköpun, sem
skilar sér síðan margfalt til baka í
verðmætum, sem landið nýtur góðs
af.“
M Sterk og samkeppnishæf »16
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Handtök Sigurður Lárusson og Hjálmar Björnsson í Slippnum á Akureyri í
gær. Þar er unnið við smíði á vinnslulínu o.fl. í tvo erlenda frystitogara.
Mörg fyrirtæki með stór verkefni
Unnið fyrir 1,5 milljarða króna við hönnun og smíði tækja og búnaðar í tvö er-
lend frystiskip Standast alþjóðlega samkeppni hvað varðar verð, gæði og tækni
Ríkisstjórnin nýtur stuðnings rétt
ríflega helmings svarenda sem af-
stöðu taka í nýrri netkönnun Fé-
lagsvísindastofnunar Háskóla Ís-
lands, sem gerð var fyrir
Morgunblaðið. Af þeim sem tóku af-
stöðu sögðust 50,3% styðja rík-
isstjórnina en 49,7% sögðust ekki
gera það. Könnunin var gerð eftir
að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í
skuldamálum voru kynntar. »4
Um helmingur styð-
ur ríkisstjórnina
Styður þú
ríkisstjórnina?*
*Netkönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands 1.-3. desember. Vikmörk voru 3,3%.
JáNei
50,3%49,7%
Nýr línuhraðall Landspítalans
verður væntanlega tekinn í notkun
eftir miðjan desember. Í næstu viku
munu sérfræðingar frá framleið-
andanum kenna starfsfólki spít-
alans á tækið. Gangi allt að óskum
er reiknað með að fyrsti sjúkling-
urinn verði meðhöndlaður í línu-
hraðlinum í vikunni þar á eftir. Er-
lendu sérfræðingarnir verða þá
starfsfólki spítalans til aðstoðar.
„Við byrjum rólega,“ sagði Jakob
Jóhannsson, yfirlæknir geisla-
meðferðar krabbameina á Land-
spítalanum. Til að byrja með verð-
ur línuhraðallinn notaður við
hefðbundna meðferð. Jakob á von á
að línuhraðallinn verði kominn í
fulla notkun í febrúar nk. »22
Nýi línuhraðallinn
fer brátt í notkun
AFP
Syrgja Suður-Afríkubúar söfnuðust saman fyrir utan
heimili Mandela í gær, til að syrgja „föður þjóðarinnar“.