Morgunblaðið - 06.12.2013, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013
Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra
setti formlega söfnunarátakið
„Græn framtíð farsíma.“ Gamlir og
bilaðir símar í skúffum og
geymslum geta fengið framhaldslíf
um leið og landsmenn styrkja gott
málefni. Græn framtíð, Pósturinn
og Síminn standa að söfnunarátak-
inu. Söfnunarpokar verða sendir
inn á öll heimili landsins á næstu
dögum á vegum Póstsins og er fólk
hvatt til að finna gamla síma, setja í
poka og skila þeim til sölustaða
Símans. Á pokanum má merkja við
málefni sem fólk vill styrkja og all-
ur ágóði rennur óskiptur til þess fé-
lags sem fólk kýs. Málefnin eru:
Hjálparsími Rauða krossins 1717,
Samhjálp, Skógræktarfélag Ís-
lands, Stígamót eða annað félag
sem fólk kýs. Átakið stendur dag-
ana 6. til 16. desember.
Græn framtíð mun sjá um að
koma öllum símununum í endur-
vinnslu og endurnýtingu.
Gamlir símar fá
framhaldslíf
ADHD samtökin fagna 25 ára af-
mæli í ár og af því tilefni fengu allir
starfsmenn grunnskóla á landinu,
rúmlega 7 þúsund manns, bækling-
inn „ADHD utan skólastofunnar“
Bæklingurinn er ætlaður öllu
starfsfólki skóla, til þess að skilja
betur hegðun og líðan barna og
unglinga með ADHD og hvernig
hægt er að styðja þau og styrkja,
segir í tilkynningu.
Börn og unglingar með ADHD
eiga oft mjög erfitt í aðstæðum ut-
an hefðbundinnar skólastofu, eins
og t.d. í frímínútum, á göngum, í
matsal, búningsklefum, íþróttum,
opnum rýmum, vettvangsferðum
o.s.frv. þar sem umhverfi og að-
stæður eru ekki eins skipulagðar
og fyrirsjáanlegar.
Starfsmenn grunn-
skólar fá bækling
Hópur áhugamanna um bætt mann-
líf í Vesturbænum og á Seltjarn-
arnesi hefur komið á fót flóamark-
aði á Eiðistorgi í samstarfi við
bæjaryfirvöld. Eiðistorg hefur ver-
ið endurnýjað að undanförnu og nú
er allt til reiðu til að skapa
skemmtilega markaðsstemningu.
Næsti markaður verður haldinn
á morgun, laugardaginn 7. desem-
ber. Rúmlega 40 básar verða á
markaðinum þar sem boðið verður
uppá fjölbreytt úrval af vörum.
Flóamarkaður á
Eiðistorgi á morgun
STUTT
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Hér greinast fleiri karlmenn með
krabbamein á hverju ári heldur en
konur. Það deyja líka færri konur á
Íslandi vegna krabbameins heldur
en karlar. Samt er ekkert skipulagt
forvarnastarf vegna krabbameins í
karlmönnum,“ sagði Jóhannes V.
Reynisson, stofnandi Bláa naglans.
Hann benti einnig á að samkvæmt
krabbameinsskráningu deyi fleiri ís-
lenskir karlar vegna krabbameins í
æxlunarfærum en konur og eru þá
meðtalin andlát kvenna sem rekja
má til brjóstakrabbameins.
Jóhannes sagði að skipulegar for-
varnir gegn leghálskrabbameini
hefðu byrjað hér árið 1964, fyrir
bráðum hálfri öld. Þetta forvarna-
starf hafi skilað miklum árangri og
orðið fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir. Á
sama tíma hafi ekki verið skipulagð-
ar neinar sambærilegar krabba-
meinsforvarnir fyrir íslenska karl-
menn. Hann kvaðst hafa rætt þetta
við lækna og sagði að þeir væru sam-
mála sér.
Karlar eru illa upplýstir
„Tökum blöðruhálskrabbamein
sem dæmi. Það er ekkert gert skipu-
lega í að leita að því,“ sagði Jóhann-
es. Krabbamein í blöðruhálskirtli
var algengasta krabbameinið hjá ís-
lenskum körlum á árunum 2007-
2011. Hann sagði að mörgum þætti
skrítið að körlum skuli ekki vera
boðið með skipulegum hætti að fara í
PSA-mælingu, en hún getur gefið
vísbendingu um hvort blöðruháls-
kirtilskrabbi sé til staðar.
„Karlmenn eru almennt mjög illa
upplýstir um PSA-mælingar og
blöðruhálskrabbamein. Það vantar
upplýsingar um afleiðingar þess að
fara í geislameðferð, lyfjameðferð
eða skurðaðgerð vegna blöðruháls-
krabbameins. Líka hvað gerist eftir
aðgerðina. Það er ekkert verið að
fræða karlmenn skipulega um það.
Þeir eiga alveg eins rétt á forvörnum
gegn krabbameini og kvenfólkið,“
sagði Jóhannes. „Ég hef hitt fullt af
mönnum sem eru í bullandi þung-
lyndi út af þessu. Þeir hafa greinst
með blöðruhálskrabba og farið í að-
gerð. Þeir eru lausir við krabbann en
það er komið nýtt vandamál. Þetta
er ekki einfalt mál.“
Söfnun Bláa naglans
Jóhannes gekk sjálfur í gegnum
krabbameinsmeðferð og þekkir því
vel kjör krabbameinssjúklinga.
Hann stofnaði Bláa naglann, sem
hefur barist gegn blöðruhálskrabba-
meini og safnað fé til kaupa á línu-
hraðli fyrir Landspítalann.
Söluátak Bláa naglans hófst á
sumardaginn fyrsta 2012. Því var
hrint af stað í kjölfar samnefndrar
heimildarmyndar um glímu Jóhann-
esar við blöðruhálskrabbamein. Nú
er búið að texta heimildarmyndina á
ensku og þýsku, í lok desember kem-
ur myndin einnig með frönskum og
spænskum texta og í mars með rúss-
neskum og arabískum skýringar-
texta.
Söfnuninni er ekki að fullu lokið og
er unnið að því að innheimta söfn-
unarloforð og vefsíða söfnunarinnar
(www.blainaglinn.is) er enn opin.
„Söfnunin mun væntanlega skila
um 19 milljónum á þessu ári,“ sagði
Jóhannes. Hann sagði að söfnunar-
fénu yrði skilað í tvennu lagi. Fyrri
greiðslan kemur á næstu dögum og
sú síðari fyrir áramótin. Peningarnir
verða lagðir inn á söfnunarreikning
hjá Landspítalanum. Nánari upplýs-
ingar um það verða birtar á mánu-
daginn kemur.
Næsta söfnunarátak
„Ég ætla að halda áfram að vekja
athygli á forvörnum fyrir karlmenn
vegna krabbameins,“ sagði Jóhann-
es. Hann sagði að næsta stóra söfn-
unarátakið hlyti að verða skurð-
stofuþjarki (robot) fyrir
Landspítalann. Tækið muni auð-
velda mjög nákvæmnisskurðlækn-
ingar, meðal annars við aðgerðir
vegna blöðruhálskrabbameins.
Ekkert forvarnastarf fyrir karla
Jóhannes V. Reynisson, stofnandi Bláa naglans, vill að íslenskir karlar fái að njóta skipulags for-
varnastarfs gegn krabbameini Hann bendir á að fleiri karlar veikist af krabbameini en konur
Morgunblaðið/RAX
Blái naglinn Jóhannes V. Reynisson, stofnandi Bláa naglans, hefur staðið fyrir söfnun til tækjakaupa fyrir Land-
spítalann. Nú er nýr línuhraðall í sjónmáli og næst vill Jóhannes safna fyrir skurðstofuþjarki (robot).
Krabbamein kynjanna
» Á árabilinu 2007 til 2011
greindust að meðaltali 739
karlar og 685 konur með
krabbamein á hverju ári, sam-
kvæmt Krabbameinsskrá Ís-
lands.
» Á þessu sama árabili greind-
ust 214 karlar með krabbamein
í blöðruhálskirtli og 202 konur
greindust með brjósta-
krabbamein.
» Í árslok 2011 var 11.841 Ís-
lendingur á lífi sem greinst
hafði með krabbamein, 5.228
karlar og 6.613 konur.
Stefnt er að því að Þjóðkirkjan af-
hendi söfnunarfé til kaupa á nýjum
línuhraðli Landspítalans undir lok
þessa mánaðar. Blái naglinn og
Framför, krabbameinsfélag karla,
hafa einnig safnað.
Einstaklingar hafa einnig lagt
sitt af mörkum. Guðrún Ísleifs-
dóttir safnaði einni milljón króna á
Facebook og hefur afhent hana.
Maður sem var í meðferð á Land-
spítalanum gaf hálfa milljón. Fólk
hefur einnig
safnað í
tengslum við af-
mæli sín.
Jakob Jó-
hannsson yf-
irlæknir sagði að
sér kæmi ekki á
óvart ef söfn-
unarféð næmi
samtals tugum
milljóna þegar upp yrði staðið.
Nemur líklega tugum milljóna
MARGIR HAFA SAFNAÐ FÉ TIL KAUPA Á NÝJUM LÍNUHRAÐLI
Jakob
Jóhannsson
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16
Hönnun: Jahn Aamodt
Stóll + skemill kr. 379.000
NÚ Á JÓLATILBOÐI
STÓLL + SKEMILL kr. 315.000
TIMEOUT