Morgunblaðið - 06.12.2013, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Það er ým-islegtbetra en
að eiga afmæli í
prófum. Svo fær
maður líka yf-
irleitt saman af-
mælis- og jóla-
gjafir.
Fyrirfram meira
að segja. Í fyrra
fékk ég úlpu. Og
upp í þvottavél.
Mér finnst því
sanngjarnt að ég
kaupi mér viskí í
afmælisgjöf,“
segir Hermann
Hermannsson.
„Þetta var allt
í lagi þegar ég
var í MA, þá
voru prófin allt-
af eftir jól. Þá
tók maður bara
góða lotu eftir
jólafríið, þannig
að desember var
ljúfur. Það var
því svolítil að-
lögun að fara í Háskóla Íslands.“ Hermann lauk BA-gráðu í mann-
fræði í vor, en stundar nú nám í mannauðsstjórnun. Hann flutti til
Akureyrar til að sækja Menntaskólann á Akureyri, en býr nú í
Reykjavík. Hermann og kærasta hans, Sunna Guðný Högnadóttir,
eiga dótturina Arndísi, sem verður tíu mánaða gömul á morgun.
Hermann fer í próf í dag sem lýkur klukkan fjögur. „Sunna fer að
vinna þá þannig að ég fæ mér örugglega einn bjór á Stúdentakjall-
aranum eftir prófið og fer svo heim, elda og svæfi dömuna. Þannig
að ég ætla bara að hafa það náðugt.“ Hann á ekki von á heimsókn
frá foreldrum sínum úr Stykkishólmi. Móður sína segir hann hins
vegar hafa verið hjá þeim síðustu tvær helgar til að líta eftir dóttur
þeirra meðan þau sinna námi. „Það er lúmskur kostur að vera upp-
tekinn á afmælisdaginn – í fyrra varð svona hálfgerð innrásarveisla.
Ég nenni aldrei að halda veislur sjálfur, en það vildu svo margir
koma til mín þennan dag og ég gat ekki neitað því, þannig að ég
varð bara að halda eitthvert kaffiboð.“ gunnardofri@mbl.is
Hermann Hermannsson er 24 ára í dag
Innrásarveisla
á afmælisdaginn
Upp í loft Hermann Hermannsson og dóttir hans,
Arndís. Hún verður tíu mánaða á morgun.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Írena Mist fæddist 29.
mars kl. 9.10. Hún vó
3.582 gr og var 49 cm
löng Foreldrar hennar
eru Ásdís Gunn-
arsdóttir og Sigurður
Steinberg Stefánsson.
Nýr borgari
M
atthías fæddist á
Landspítalanum
6.12. 1973 en ólst
upp á Seltjarn-
arnesinu: „Þegar
ég var níu ára flutti fjölskyldan
til Tallahassee í Florída í
Bandaríkjunum. Þar stunduðu
foreldrar mínir framhaldsnám
en ég nam við Lillian Ruediger
Elementary School hjá fröken
Wilson.
Sú reynsla kom mér ansi vel
enda naut ég þess að hafa bæði
mjög elskulegan en jafnframt
agaðan kennara sem hafði þá
föstu reglu að hafa stafsetning-
arpróf í hverri viku. Sú þekking
hefur reynst mér vel í því al-
þjóðlega umhverfi sem ég nú
starfa.“
Matthías var einnig í Ísaks-
skóla, Mýrarhúsaskóla, Valhúsa-
skóla og Tjarnarskóla. Hann
lauk stúdentsprófi frá Verzl-
unarskóla Íslands árið 1993.
Hann lauk prófi í viðskiptafræði
frá Háskóla Íslands árið 1999 og
MSc.-prófi í hagfræði frá Co-
penhagen Business School árið
2002.
Eignuðust danska
tvíbura!
„Við Saga fórum til Kaup-
mannahafnar í framhaldsnám og
vorum þar búsett í fimm ár. Þar
eru tvíburarnir okkar fæddir á
Ríkisspítalanum og virðast hafa
sterkar taugar til Danmerkur,
þrátt fyrir ítrekaðar útskýr-
ingar foreldranna þess efnis að
þeir séu Íslendingar en ekki
Danir.“
Áður en Matthías hóf nám í
Kaupmannahöfn starfaði hann
við greiningardeild Kaupþings á
Íslandi. Að loknu hagfræðinámi
var Matthías lánasérfræðingur í
málefnum fjármálafyrirtækja
hjá HSH Nordbank í Kaup-
mannahöfn og síðar við-
Matthías H. Johannessen, framkvæmdastjóri hjá Actavis – 40 ára
Fjölskyldan Matthías og Saga, tvíburarnir Haraldur og Daníel, Tómas og Eva.
Fjölskyldumaður og
vinsamlegur húmoristi
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is