Morgunblaðið - 12.12.2013, Page 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2013
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
VIFTUR
Í MIKLU ÚRVALI
Það borgar sig að nota það besta!
www.falkinn.is
• Bor›viftur
• Gluggaviftur
• I›na›arviftur
• Loftviftur
• Rörablásarar
• Ba›viftur
• Veggviftur
Bækur, pakkningar með
garni og uppskrift og margt fleira
Verið velkomin
Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is
ÚRVAL
JÓLAGJAFAHUGMYNDA
FYRIR PRJÓNARANN
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Fjöldi mótmælenda særðist þegar
óeirðalögregla réðst gegn þeim á
Sjálfstæðistorginu í Kíev í Úkraínu í
fyrrinótt. Mótmælendur létu þó ekki
deigan síga, enda barst þeim liðsauki
þúsunda til viðbótar og fór svo að lok-
um að lögregluliðið hörfaði, við mik-
inn fögnuð viðstaddra.
„Við höfum ekki unnið stríðið en við
höfum ótvírætt unnið þennan bar-
daga. Yfirvöld örvænta. Við munum
halda áfram að berjast fyrir landinu
okkar,“ sagði einn mótmælenda við
AFP í gær.
Harkaleg framganga óeirðalög-
reglunnar gegn mótmælendum vakti
mikla athygli í gær. John Kerry, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, var
meðal þeirra sem lýstu vanþóknun
sinni á tilburðunum. Washington
„lýsir andstyggð sinni á ákvörðun
úkraínskra stjórnvalda að mæta frið-
samlegum mótmælum á Maidan-
torgi í Kíev með óeirðalögreglu, jarð-
ýtum og kylfum, frekar en virðingu
fyrir lýðræðislegum réttindum og
mannlegri reisn,“ sagði Kerry. „Þetta
andsvar er hvorki ásættanlegt né
sæmandi lýðræðisríki.“
Aðgerðir lögreglu komu á einkar
sérkennilegum tíma þar sem Victoria
Nuland, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Catherine Ashton,
utanríkismálastjóri Evrópusam-
bandsins, voru staddar í Kíev á sama
tíma, til að eiga viðræður við forset-
ann, Viktor Janúkóvítsj.
Ashton lýsti sömuleiðis áhyggjum
af aðgerðum gegn mótmælendum.
„Ég hef verið afar snortin af friðsam-
legu og hugdjörfu eðli yfirstandandi
mótmæla til stuðnings evrópskri sam-
vinnu,“ sagði hún í yfirlýsingu. „Ég
fordæmi valdbeitingu og ofbeldi, sem
getur ekki verið svarið við friðsam-
legum mótmælum, og ég kalla eftir
ýtrustu stillingu,“ sagði Ashton.
Æðsti biskup úkraínsku rétttrún-
aðarkirkjunnar, Filaret, varaði við því
í gær að mótmælin þróuðust í borg-
arastríð og kallaði eftir því að stjórn-
völd undirrituðu samstarfssamning
við Evrópusambandið. Hann sagði að
ákvörðun forsetans um að hætta við
undirritun hefði komið mótmælunum
af stað og að skynsamlegasta lausnin í
stöðunni væri að ljúka viðræðum og
skrifa undir.
AFP
Afl Óeirðalögregla réðst gegn mótmælendum í fyrrinótt. Mótmælin höfðu að mestu farið friðsamlega fram.
Harkalegar aðgerðir
lögreglu fordæmdar
Andstyggilegar aðfarir, segir Kerry Vara við borgarastríði
Átök
» Þrettán lögreglumenn særð-
ust í átökunum við mótmæl-
endur, sem beittu m.a. bruna-
slöngum gegn yfirvaldinu.
» Óeirðarlögreglan hörfaði á
endanum, þegar mótmælendum
á torginu fjölgaði til muna.
Svo virðist sem
maðurinn sem
stóð við hlið Bar-
acks Obama við
minningarathöfn
um Nelson Man-
dela í Soweto á
þriðjudag, og
virtist túlka
ávarp Banda-
ríkjaforseta fyrir
heyrnarskerta,
hafi lítið annað gert en að banda
höndunum út í loftið. Heyrnarlausir
í Suður-Afríku botnuðu a.m.k.
hvorki upp né niður í handahreyf-
ingum mannsins og heyrnarskert
fólk víðsvegar um heim hefur sett
sig í samband við táknmálsmiðstöð
í Suður-Afríku og spurt hvað í
ósköpunum maðurinn var að gera.
„Hann var ekki að gera neitt. Það
var ekki eitt tákn þarna. Ekkert.
Hann var bókstaflega að blaka
höndunum,“ segir Cara Loening,
framkvæmdastjóri táknmáls-
miðstöðvarinnar í Höfðaborg.
„Samfélag heyrnarlausra í Suður-
Afríku er stórhneykslað og enginn
veit hver maðurinn er,“ segir hún.
Samskiptaskrifstofa ríkis-
stjórnar Suður-Afríku sagði í gær
að von væri á yfirlýsingu vegna
málsins en ekki hafði náðst í stjórn-
endur ríkisfjölmiðilsins sem sýndi
frá viðburðinum.
SUÐUR-AFRÍKA
Táknmálstúlkurinn veifaði bara höndunum
Engin veit hver
maðurinn er.
Heilbrigðisráðherrar G8-ríkjanna fund-
uðu með sérfræðingum í Lundúnum í
gær og ræddu andlega hrörnun, vitglöp,
sem eru ólæknanleg en þjá 44 milljónir
manna um allan heim, sérstaklega eldra
fólk. Vonir standa til að fundurinn, og
samstillt átak ríkjanna, muni marka
þáttaskil í baráttunni gegn vitglöpum.
Algengasta form vitglapa er Alzheim-
ers-sjúkdómurinn en hann hefur áhrif á
minni fólks, rökhugsun og aðra heila-
starfsemi og veldur því að margt fólk
þarf umönnun allan sólahringinn. Alþjóðabandalag Alzheimers-samtaka
gerir ráð fyrir að fjöldi þeirra sem þjást af sjúkdómnum muni þrefaldast á
næstu 40 árum en samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni nam kostn-
aðurinn við sjúkdóminn 604 milljörðum evra árið 2010.
ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF
Ráðherrar G8-ríkjanna funda um vitglöp
Jarðarbúar eru að eldast.